Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007
Afrit af öðrum vef
7.11.2007 | 14:24
Hjálparbeiðni
Vigdís Ellertsdóttir er einstæð móðir þriggja barna 9 , 11 og 13 ára.
Fjölskyldan býr í Njarðvík.
Fyrir nokkrum dögum greindist elsti drengurinn, Sigfinnur, með mjög slæmt
krabbamein í lifur og einnig fundust meinvörp í báðum lungum þannig að
ástandið er ekki gott.
Til að létta undir með Vigdísi og börnum hennar á þessum erfiðu tímum
hefur verið opnaður reikningur í Landsbankanum og leitum við til ykkar
sem sjáið ykkur fært að láta eitthvað af hendi rakna.
Munum bara að margt smátt gerir eitt STÓRT. Það er engin upphæð lítil.
Reikningur : 0142-05-072955 kkt: 140860-3289
Með kærri kveðju og fyriframm þökk.
VINKONUR.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
hrmpf
7.11.2007 | 08:53
ég held að ég hafi farið öfugum megin framúr í morgun. Að öllu jöfnu hefði það ekki gert til en nú er ég í vinnunni. Það er óheppilegt að vera krumpaður í vinnunni. Ég er bæði búin að virkja pókerfeis og Pollýönnu. Annað hvort hlýtur að fara að skila sér bráðum.
Allt undanfarið ár hefur verið álag í vinnunni, það er mikið að gera hér og oft alls ekki nógu margir til að vinna þau störf sem fyrir liggja. Þetta veldur aukaálagi og það safnast upp þreyta. Það er slæmt.
Eftir að Himminn minn fór þá er ég minni bógur, þolmörkin eru áberandi neðar. Kjarkurinn er minni og úthaldið nánast ekkert. Svo fer ég inn á síður þeirra kjarnakvenna sem kljást við veikindi og ég verð reið við sjálfa mig.
Kvöldið samt lofar góðu, við systur ákváðum fyrir löngu að okkur veitti ekki af smá gleði og pöntuðum miða á Ladda. Með okkur fara þessir 4 karlar sem eru heimilisfastir hjá okkur, synir hennar og Steinar og Björninn.
Mér gengur ekki vel að sofa og það er kannski skýringin á krumpunni þennan morguninn. Það er bara segin saga að um leið og ég sé koddann þá kemur Himmi upp í hugann og ég skottast með honum í huganum um allar jarðir. Það er svo margs að minnast. Hann var mikill gleðigjafi eins og þau öll krakkarnir. Þau eru miklir húmoristar og hafa gaman af lífinu. Nú er allt ónýtt.
Geðvonskutauti lokið í bili....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Stórmerkileg kona fallin frá
6.11.2007 | 22:42
Þessi kona var ein þeirra sem ég dáðist reglulega að, hún sýndi að þar sem er vilji þar er vegur.
Fréttin er tekin af Vísi.
Andlát: Marta G. Guðmundsdóttir
Marta G. Guðmundsdóttir kennari og Grænlandsjökulsfari lést á krabbameinsdeild Landspítalans í gær, 37 ára að aldri.
Marta fæddist 29. apríl 1970 í Reykjavík. Hún var dóttir hjónanna Hallberu Ágústsdóttur húsmóður og Guðmundar Finnssonar pípulagningarmeistara í Grindavík. Marta lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Suðurnesja og kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands. Hún starfaði sem grunnskólakennari bæði á Englandi og í Grindavík.
Marta var liðtæk íþróttakona, lék körfuknattleik með Grindavík og Keflavík, knattspyrnu með Grindavík og var í unglingalandsliðinu í körfuknattleik.
Marta vakti þjóðarathygli þegar hún í maí og júní sl. gekk á gönguskíðum þvert yfir Grænlandsjökul til að vekja athygli kvenna á mikilvægi þess að fara reglulega í brjóstaskoðun og til að afla fé til frekari rannsókna á brjóstakrabbameini.
Sjálf greindist Marta með brjóstakrabbamein í október 2005 og gekkst undir uppskurð ásamt lyfja- og geislameðferð í kjölfarið sem lauk í júní 2006. Meðan á meðferðinni stóð reyndi Marta að setja sér ýmis markmið til að ná fyrri heilsu að meðferð lokinni.
Marta einbeitti sér að því að hreyfa sig eins og þrek leyfði og einnig fannst henni mikilvægt að reyna að lifa sem eðlilegustu lífi þrátt fyrir veikindin og tók þátt í daglegu amstri eins og hún treysti sér til. Marta fór í nokkrar gönguskíðaferðir hér heima, m.a. á Sprengisandi, til að undirbúa sig fyrir Grænlandsferðina.
Marta sinnti starfi sínu áfram sem kennari þar til fyrir skömmu er hún greindist með illvíg meinvörp í höfði.
Marta lætur eftir sig eina stúlku, Andreu Björt Ólafsdóttur, sem fædd er 1995.
Fjölskyldu hennar sendi ég samúðarkveðjur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Hvenær verður komið nóg?
6.11.2007 | 19:51
Bankar græða á tá og fingri en herða kverkatakið á almennum viðskiptavinum. Jú gott og vel, það er hægt að færa lánið milli eigna. Dæmið ss ekki alveg harðlæst en hvert stefnir þetta allt með hækkandi fasteignaverði og minni aðgangi að lánsfé ? Björn sagði mér í dag að flestir vinir hans byggju orðið heima, það kæmi til vegna þess að ungt fólk réði í dag ekki við íbúðakaup. Svo kom þessi frétt sem ég vitna í.
Nú er að sjá hvort hinir bankarnir koma með viðlíka reglur.
Ja svei...nóg borgum við samt í afleiddan kostnað af því að vera blankur...og þurfa lán.
Breytt kjör við yfirtöku íbúðalána Kaupþings banka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Lét mig hafa það
6.11.2007 | 14:21
og er sátt með sjálfa mig. Þegar ég var búin að skrifa pistilinn um vinnuna mína þá bara stökk ég af stað og fór að vinna. Ég vann ekki lengi en fór þó nokkrar ferðir. Ég mun ekki fjalla að ráði um vinnuna mína enda bundin þagnareiði í allar áttir. Það kom út bók um árið um leigubílasögur, ég fékk hana í jólagjöf og las hana. Ég var lengi óviss um að sú bók ætti rétt á sér vegna þess að við eigum ekki að segja frá því sem gerist í bílunum, bókin var hinsvegar almennt orðuð og ekki hægt að þekkja nokkurn mann af þeim sögum sem birtust. Við bílstjórarnir tölum hinsvegar nokkuð saman sérstaklega um fólk sem við lendum í vanda með, það er nokkurskonar áfallahjálp og líka viðvörun fyrir aðra bílstjóra svo þeir passi sig á viðkomandi farþegum eða ákveðnum húsum. Stundum (sérstaklega um helgar) hættum við að senda á ákveðin heimilisföng. Þá erum við kannski búnar að senda bíla þangað og það kemur aldrei neinn farþegi. Bílarnir í "plati" eins og það er kallað. Þá er kannski 12 manna partý og hringt til okkar og pantaðir 4 bílar, það er líka hringt á Hreyfil og pantaðir 4 bílar. Í þessu dæmi verða alltaf 4 bílar afgangs sem eyða tíma í að bíða fyrir utan hús þar sem enginn kemur og á meðan bíður annað fólk eftir því að fá bíla. Og við fáum skammir fyrir að vera lengi á leiðinni og bla bla bla.....
Munið ljósasíðurnar...
PS
Björn þurfti í banka í dag, hann spurði móður sína hvort hann ætti ekki bara að fara í þjónustufulltrúa ? Jú áreiðanlega sagði mamman. ,,Ég fer bara á þessa sem ég þekki !" dagði kokhraustur Björn. ,,tihíhíhí" heyrðist í móðurinni.,, Björn maður fer ekki Á konur bara sisvona" sagði móðir. ,, Ohh mamma, þú átt ekkert að hugsa svona!! Þessi brandari var að skjótast upp í hausinn á mér "
Björn fór inn í bankann, mamma beið úti...og glotti.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Lausbeislaða þjóð
5.11.2007 | 21:20
sem stundum hagar sér einkennilega. Helgi eftir helgi eru fréttir af veseni í miðborginni,svo og svo margir vistaðir í fangageymslum. Við glottum góðlátlega og hristum hausinn,það líða nokkrir dagar og svo hefst vitleysan öll á ný.
Í 20 ár hef ég haft milli lifibrauð af fólki sem er drukkið. Ég er í 2 vinnum og önnur snýr að því að senda þessu fólki leigubifreiðar en hin snýr að því að aka þeim sjálf sem leigubifreiðarstjóri í Reykjavík. Eitt það versta sem ég lendi í þegar ég er að aka eru ælur í bílinn, mér er ekki nokkur leið að þrífa þetta upp. Mér finnst þetta svo ógeðslegt. Miskunnarlaust ætlast fólk til þess að maður hreinsi þetta upp eftir það. Því finnst það vera inn í gjaldinu sem ekið er gegn. Mín eina leið er oftast sú að hringja í karlinn minn og fá hann til að hjálpa mér við að hreinsa þetta. Ég hef fengið nánast alla mögulega líkamsúrganga í bílinn minn. Fólk er ótrúlega ósiðað í leigubílum. Svo rífst fólk og skammast yfir því að ekki fáist leigubílar í miðborgina. Málið er að eftir ákveðinn tíma á nóttunni þá hættum við flest, þessi gömlu, að aka í miðborgina. Þá er líka kominn sá tími sem fólk er að fara í flug. Notalegur flugfarþegi slær við byttu úr bænum,anytime. Stundum mætti fólk minnast þess að við erum til að veita ákveðna þjónustu, við erum ekki til að skeyta skapi sínu á. Leigubílar eru ekki almenningsklósett, bíllinn þarf að fara aðra ferð og enginn vill fá leigubíl -illa lyktandi með fúlum bílstjóra vegna þess að síðasti farþegi lét eins og asni í bílnum.
Það tekur mig c.a. 3 mínútur að komast að því hvort farþeginn minn er utanbæjarmanneskja eða borgarbúi. Undantekningarlaust spjalla utanbæjarmenn og eru bara þrælskemmtilegir farþegar meðan borgarbúinn steinþegir og virkar fúll, hann er það kannski ekki, viðkomandi er kannski bara að hvíla sig enda býr hann í hröðu og þreytandi þjóðfélagi.
Oftast höfum við kvenbílstjórar haft betra næði í vinnunni en nú er annað uppi. Dómurinn í dag er annar dómurinn á stuttum tíma þar sem ráðist er að kvenleigubílstjóra. Dómurinn í dag.
Fáir voru fegnari en ég þegar posarnir komu í bílana, fram að því hafði einungis verið tímaspursmál hvenær leigubílstjórar hefðu verið rændir. Við sluppum við það ef frá er talin árásin í vor. Við erum oft á tíðum varnarlaus, ein í bílunum. Suma farþega tekur maður ekki upp í, við erum fljót að þekkja vandæðafólk í sjón og vandræðahús. Stundum er það ekki nóg.
Síðan ég missti Himma þá hef ég ekki farið nema í aðra vinnuna, ég hef bara ekki orkað hina. Nú ætla ég að fara að breyta þessu og koma mér af stað í báðum vinnunum. Það verður átak en ég skal, ég skal.
Að lokum...komið fram við aðra eins og þið viljið láta koma fram við ykkur. Þetta gengur allt miklu betur svoleiðis.
Munið ljós fyrir Gillí.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Ég er eðal
5.11.2007 | 13:54
en ég fattaði það ekki fyrr en í gær. Hjá mér eins og öllum öðrum eru mánaðamót og þá þarf að greiða reikninga heimilisins. Þeir eru náttlega ýmiskonar, húsnæðislán,bílalán og skatturinn. Hakaði bara í allt og borgaði á föstudaginn. Svo fór ég að hugsa málið, innanum þarna var einn sem kemur bara tvisvar á ári. Hann er búinn að vera þarna ja...15 ár eða eitthvað. Man nú ekki árið sem lífhræðslan greip mig en þetta er jú líftrygging. Ég er sko eðalkona, líftryggð. Miðað við fréttir undanfarið þá er ekki auðvelt mál að vera með slíka tryggingu. Ef þú færð krabba þá gengur það ekki, jafnvel þó það sé bara frumubreytingar sem næst að koma í veg fyrir. Ef þú ákveður að HÆTTA að drekka og ferð í meðferð, þá færðu ekki tryggingu. Ef þú hinsvegar heldur áfram að drekka og talar ekki um það við tryggingasölumanninn (já og nærð að komast ófullur og laus við mikinn tremma og skjálfta) þá tryggja þeir þig.
Ég ætla ekki að segja tryggingunum að ég sé með líkþorn á litlu tánni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Gerðum gott
5.11.2007 | 11:26
úr gærdeginum. Solla kom eftir að hafa farið upp í garð til litla bróður síns og mér datt í hug að fara með þeim út að borða. Þeim Jóni leist vel á það og við skelltum okkur á grillhúsið. Það er okkar staður, þangað förum við nokkuð oft.
Svo fórum við gamli bara að sofa snemma. Og ég vaknaði aftur um hálfþrjú, glaðvaknaði. Lá uppí rúmi og þá fór rafmagnið. Ég þorði ekki annað en að hnippa í Steinar enda er hann með cpap vél sem gengur fyrir rafmagni. Þar með vaknaði hann og við röltum hér um húsið í klukkutíma með kertaljós. Agalega rómó...okkur tókst loksins að fara að sofa aftur og enn rafmagnlaust. Ég rumskaði svo undir morgun, útvarpsklukkan blikkaði og kallinn kominn með vélina aftur á sig.
Ég sé fátt markvert í fréttum enda ekki alveg búin að rannsaka það nógu vel.
Við Björn erum enn að spá í þessa 460 ára kúskel, já þessa sem vísindamennirnir hentu vegna þess að þeir föttuðu ekki hversu gömul hún var. Hvernig líf er að vera kúskel í 460 ár ? Hafiði hugmynd ? Ekki við en Björn heldur að hún hafi beðið eftir að einhver bankaði ?
Munið eftir Gíslínu og öðrum ljósasíðum sem eru hér í hlekkjum.
Smáviðbót við færsluna, nenni ekki að skrifa nýja og bæta þessu við, en þetta fann ég á vísi.is. Það er um áfengisfrumvarpið.
Á móti:
Steingrímur J. Sigfússon, VG
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Samfylkingu
Álfheiður Ingadóttir, VG
Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki
Magnús Stefánsson, Framsóknarflokki
Ellert B. Schram, Samfylkingu, með fyrirvara
Atli Gíslason, VG
Guðbjartur Hannesson, Samfylkingu
Karl V. Matthíasson, Samfylkingu
Jón Magnússon, Frjálslyndum, á móti í óbreyttri mynd
Árni Þór Sigurðsson, VG
Ögmundur Jónasson, VG
Bjarni Harðarson, Framsóknarflokki
Árni Johnsen, Sjálfstæðisflokki
Katrín Jakobsdóttir, VG
Jón Bjarnason, VG
Þuríður Bachman, VG
Katrín Júlíusdóttir, Samfylkingu
Fylgjandi:
Pétur Blöndal, Sjálfstæðisflokki
Ágúst Ólafur Ágústsson, Samfylkingu
Arnbjörg Sveinssdóttir, Sjálfstæðisflokki
Birkir Jón Jónsson, Framsóknarflokki
Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki
Kristján Þór Júlíusson, Sjálfstæðisflokki
Birgir Ármansson, Sjálfstæðisflokki
Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki
Neita að svara:
Kristján L. Möller, Samfylkingu
Kolbrún Halldórsdóttir, VG
Ef maður skoðar aldursamsetningu þá eru meðmæltir hinir yngri þingmenn, sem lífið hefur enn ekki barið til hlýðni. Þeir eru eru á móti eru aftur reyndir og þroskaðar sálir.
Mikið ferlega er samt erfitt þegar lífið lemur mann sífellt niður - lærdómurinn sem maður dregur af því er samt nokkuð magnaður. Ég er núna í lokaáfanga ,,að missa barn" . Guð má vita hvenær það nám klárast ....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Var að hugsa um að nenna ekki
3.11.2007 | 14:38
að blogga...en ákvað að nenna því samt.
Á forsíðu er fjallað um þá staðreynd að það eru 6 mánuðir frá hvarfi Madeleine litlu. Mamma hennar heldur enn í vonina um að hitta hana aftur, eðlilega. Ég skil harm hennar betur nú en ég gerði, eins og ég skil betur ótta foreldra sem þjást með langveikum börnum sínum. Munurinn á mér og móður Maddie litlu er sá að mínu er lokið, ég VEIT hvar Hilmar er. Hún heldur enn í vonina um að finna barnið sitt. Hennar barn er líklega jafndáið og mitt barn, og þó. Kannski er telpan í höndum barnaníðinga eða seld í mansal. Þá er Hilmar minn vísast heppnari.
Undanfarið hafa sótt að mér pælingar um það hvar Hilmar sé. Liggur hann þarna upp í Gufunesi eða er til eitthvað æðra sem tekur við okkur að þessu lífi loknu ? Það getur náttlega enginn svarað þessu,þetta veit enginn með vissu.
Ég sakna hans hvern dag, stundum er sorgin kæfandi þung. Ég hugsa um allt sem hann missti af. Hann fékk ekki að verða fullorðinn (hann var svo mikið barn í hjarta sínu) hann fékk ekki að verða faðir. Hann missti af svo miklu. Himmi átti að koma upp nafni móður sinnar (sjálfhverf ?) Það gerist ekki. Hann hét Már að millinafni, það er vegna þess að pabbi var kallaður Hilmar Mýr til styttingar á Mýrkjartansson .Björn átti að koma upp nafni afa síns, Hafsteins Björnssonar. Hann ber svo líka nafn föður síns.Hjalti fékk bara að eiga nafn sitt mest aleinn. Hann heitir bara eftir Hjalta í sögunni um Önnu frá Stóru Borg og Hjalta litla í sögum Stefáns Jónssonar. Millinafnið hans er í höfuðið á ömmu hans, Þórdísi. Sólrún Björk heitir eftir föðursystur sinni sem dó ung, sú litla var með Downs og þá vísast hjartagalla og það sem stundum fylgir þeim litningagalla. Þá voru bara ekki eins mikil úrræði og nú eru til að laga þessa galla. Mig dreymdi hana þegar ég gekk með Sollu. Ég gat lýst barninu sem mig dreymdi fyrir Erlu,ömmu hennar Sollu og hún þekkti sína. Hjördís heitir eftir föðursystur minni, indælli konu. Hún lá mikið veik á sjúkrahúsi þegar ég gekk með Hjöddu síðustu vikurnar og ég hét því á hana að ef hún yrði komin heim þá myndi ég láta skíra eftir henni....annað skilyrði var að ég gengi með telpu. Millinafnið hennar er í höfuðið á föðurömmunni, henni Eddu frá Hafnarnesi.
Af öllum þessum sem þau heita eftir eru fáir á lífi. Pabbi er hér enn, tæplega áttræður. Pabbi strákanna er líka hérna enn. Aðrir eru farnir.
Bráðum koma jólin, ég er komin með smá jólafiðring en hann er blandaður miklum kvíða. Í fyrra var Himmi ekki hjá mér á jólum, ég ætlaði hins vegar að hafa hann hérna þetta árið ásamt Hjalta og Anítu. Ég vissi ekki fyrr en eftir síðustu jól að þau hírðust saman þrjú heima hjá Hjalta. Eitthvað borðuðu þau nú en ekki held ég að það hafi verið hefðbundinn jólamatur. Þetta kvelur mig nú. Þetta árið ætla ég að reyna að smala saman sem flestum af mínum, öllum sem ekki ætla að vera hjá öðrum foreldrum. Ég held að ég leggi á borð fyrir Hilmar líka. Æj það er sárt að hugsa um þetta....
Munið eftir Gillí okkar. Ég leit á kertasíðuna hennar áðan og það loga 230 falleg kerti. Hver og einn má vel kveikja á fleiri en einu, ekki veitir henni af öllu í þessum ójafna bardaga. Biðjum líka um að fjölskyldunni verði sendur styrkur. Sporin þeirra þekki ég orðið of vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
hmm margt að gerast
2.11.2007 | 15:29
fólk rífst á annarri hvorri bloggsíðu um Bónus og Krónuna. Ég hallast að því að um rógburð sé að ræða. Afhverju segið þið, vegna þess að ég er ekki búin að skilja hvernig á að framkvæma glæpinn...þegar inn kemur einhver að taka könnun þá er of umfangsmikið verk og óframkvæmanlegt að breyta í snatri hillumerkingum. Verðkönnunarnáunginn sagði að þeir tækju hilluverðið. Málið er að afbrotið þarf að vera framkvæmanlegt.
Rjúpnaveiðitímabilið er hafið. Björgunarsveitir voru kallaðar út í gær. Einn skyttan skakklappaðist full á fjöll og stakkst á hausinn. Lá í roti en vegfarandi (staðkunnugur líklega) rak augun í spánnýja þúfu í landslaginu og hringdi í þartilgerð yfirvöld. Þúfan var reist við og skutlað til byggða. Af afla þúfunnar fór engum sögum. Ekki vildi ég vera heiðarleg,ófull skytta þar sem næsti er svona fullur, það er líkur á því að hann plaffaði bara á mann í misgripum
Ég er aldrei með rjúpur á jólum, hef tvívegis smakkað rjúpur og fannst þær bara ekki góðar *hóst* vondar bara. Ekki þýðir að kenna matreiðslunni um það, seinna skiptið var þetta framborið á margra stjörnu veitingastað.
Ég er búin að vera umkringd dularfullum hljóðum í morgun...bank bank klonk klonk...frammi. Þorði fram eftir klukkutíma, eldhúsglugginn að skrölta. Áðan heyrði ég furðulega kveinstafi og tíst, hjartað fór aftur niður í brækur, nýkomið þaðan. Ég hreyfði mig ekki og eyrun sperrtust, ég var að hugsa um að hætta að anda en fannst eins og það kæmi niður á athyglinni ja amk bráðlega.....ég hlustaði og hlustaði....
fannða.....garnagaul í Lappa sem sefur hér.
Er maður að vera paranojaður hér í ellinni
Ég leit við á kertasíðu Gillíar í gær áður en ég fór að sofa, ég fékk tár í augun. Það voru komin 100 kerti á síðuna hennar. Á bakvið hvert kerti er fyrirbæn, kannski ekki skrifleg en hún er þarna í hugum fólks og hjarta. Það er alveg magnað að fylgjast með þessu. Síðast þegar ég gáði þá voru þau komin yfir 150.
Linkur á kertasíðuna hennar er hérna til hægri.
MSN er bilað, Björn skrapp út en ég fæ hann til að setja það upp aftur ef hann kemur áður en ég fer í vinnuna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)