Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Fja....(má ekki skrifa svona orð hér í fyrirsögn)

þá fer hann, uppáhaldsráðherrann minn...

annars held ég að plottið sé svona...

kynnt úrræði fyrir heimilin

á undan Icesave í þeirri von að fari allt til helv.... þá muni fólk kjósa stjórnarflokkana aftur komi til skyndilegra kosninga.

Samkvæmt könnun um daginn þá eru Sjallar á svífandi siglingu og þá er ég ekki að vitna í sjálfstæðisfræið sem truflaði alla vini sína og sendi þá flugleiðis til að kjósa sig sjálfan.

 

það er vont þetta í lausuloftidæmi og nú er Sigmundur Davíð kominn í útvarpið..ó mig auma !


mbl.is Ögmundur segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fari hann

þá er ég ekki alveg róleg. Það er mikið steitment fólgið í því að segja af sér frekar en að samþykkja eitthvað en trú minni sannfæringu þá vil ég fólk greiði einfaldlega atkvæði á móti, ekki gera eins og Lilja Mó gerði í sumar (kalla inn varamann) eða eins og gefið er í skyn hér með Ögmund (segja af sér)

Plís...greiðið frekar atkvæði á móti !


mbl.is Ögmundur á fund Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann minnir mig á

ansi marga bloggara síðan hrunið varð fyrir ári eða sko nafnið á honum. Ef þið smellið á myndina þá sjáið þið þennan fisk betur, virkilega fallegur þessi. Ég hef aldrei heyrt um hann fyrr en þið ?
mbl.is Náðu lifandi urrara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í minningu sona og til styrktar mæðrum sem syrgja

Drottinn er minn hirðir

 

 

Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um réttan veg
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt því þú ert hjá mér.

Sproti þinn og stafur huggar mig.
Þú býrð mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyrð höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi drottins bý ég langa ævi.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.

 

Elskurnar mínar Ólöf og Ásthildur

Megi allar góðar vættir styrkja ykkur í þessum hræðilega erfiðu sporum sem aðstæður neyða ykkur nú til að feta.

Hugur minn og hjarta er hjá ykkur.


Já heyrðu

þetta var eitt sem ergði mig um helgina, ég hélt bara að svona skíthælsleg vinnubrögð væru ekki notuð lengur ?

Alveg furðulegt dæmi !


mbl.is Smölun í tengslum við SUS kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja

þá er nú að hugsa á blað.

Byrja á að ég varð alveg fokill um helgina, svona vond snöggillska sem fjaraði sem betur fer hratt út.  Það var verið að spila aftur hrokaviðtalið við Geir Haarde síðan þeir voru nappaðir á undarlegum fundi um helgi fyrir næstum ári. ,,það er sko oftar en þið haldið !" Og ég urraði. Fréttamenn höfðu alveg rétt fyrir sér, það var eitthvað að !

Hér er alveg brakandi blíða í dag, hundabælið, mottan og ullarponsjóið mitt allt komið í viðrun út í garð. Tumi Tígur úti að viðra sig og Keli að passa krakkann. Þeir eru allir að verða ágætir saman. Rómi nöldrar aðeins þegar enginn friður er með rófuna fyrir smákrakkanum.

Loksins finnst mér einhverjar aðgerðir vera yfirvofandi en þetta hefur tekið OF langan tíma ...Ég er samt mun vonbetri en áður. Við höfum náð að halda í horfinu hér á heimilinu og fyrir það er ég þakklát. Ég get ekki hugsað mér að þurfa að flytja héðan, ég hef aldrei kunnað eins vel við mig neinsstaðar og hérna á norðurnesinu á Álftanesi.

Eru ekki nokkrar prjónakonur sem lesa ? Hvernig væri að við kellur prjónuðum aðeins til góðs þetta haustið ? Það vantar vettlinga og sokka á mannskapinn í Dagsetri Hjálpræðishersins. Sumir þeirra þurfa að liggja úti á næturnar- þetta eru mennirnir sem ekki var pláss fyrir í góðærinu og það verður sko áreiðanlega ekki pláss fyrir þá í kreppunni nema við gerum eitthvað sjálf fyrir þá. Ég er að spá í að senda svona ákall inn á prjónaklúbb sem ég er í á facebook og sjá hvort einhver viðbrögð verða.

Best að fara að kíkja hvort kettlingurinn er strokinn !


Sjálfsvíg

Eftirfarandi texti er tekinn traustataki af vefmiðlinum Vísi ,

38 sjálfsvíg

Krabbamein er næst stærsti flokkur dánameina, Þriðji stærsti flokkurinn eru sjúkdómar í öndunarfærum og sá fjórði er dauðsföll vegna ytri orsaka. „Af þeim voru dauðsföll sem tengdust óhöppum almennt voru alls 63 og í þeim hópi voru 22 konur og 41 karl. Alls létust 16 manns í umferðarslysum. Sjálfsvíg voru 38 á árinu og féllu 11 konur og 27 karlar fyrir eigin hendi. Það er svipuð tíðni og undanfarin ár."

Leturbreyting er mín.

Ef við hugsum þetta aðeins og breytum dánarorsök þessa fólks yfir í eitthvað annað eins og til dæmis umferðarslys, hvað haldið þið að myndu dælast yfir okkur margar auglýsingar í forvarnarskyni ? Eða einhver tiltekin krabbameinstegund ? Það yrði reynt að skima sérstaklega fyrir henni.

Hvar eru forvarnir vegna sjálfsvíga ?

Ég get alveg kinnroðalaust viðurkennt að mér datt ekki í hug fyrr en eftir að sonur minn, Hilmar Már, fyrirfór sér, að svona margir létust af eigin völdum árlega . Og við vitum að þeir eru fleiri en þessir opinberlega skráðu.

Ein kelling pípandi á priki er nú ekki mikið forvörn né kynning á málstaðnum. Nú skora ég á ykkur að flytja þessa færslu mína á facebook og sýna þar með stuðning í verki !

 


Fáránlega dýrt orðið að

versla inn til heimilisins ! Við erum bara tvö hér - ja sko mennsk, við erum farin að fara með ansi marga þúsundkalla í hvert sinn sem við verslum inn.

Svakalegt !

 


mbl.is 9% verðmunur á Bónus og Krónunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja

þá getur kona í Skerjafirði andað léttar. Voðalega klént að eiga atvinnulausan mann !

Þeir sem hafa hætt ;

Anna vélstýra

Einar Indriða

Skorrdal

DísaDóra

Endilega bætið við listann, ég hef ekki yfirsýn

 


mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sko

Ég get svo svarið að Halli var svona skrýtinn áður en hann giftist systur minni !!!!!!!!!!! Hann var enn álíka skrýtinn þegar þau skildu......

Kallinn er F L O T T U R !!

Hann er alveg eðalnáungi og hann er vinur minn, til eilífðar.

Knús á þig kall

 

(mér finnst bíllinn samt ljótur bleikur Errm)


mbl.is Stóð við loforð um bleikan bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband