Bloggfærslur mánaðarins, mars 2012

Var ansi brugðið

í dag þegar ég skreið loksins á fætur og las yfir fréttamiðlana á netinu. Þessi árás hjá þeim á Lagastoð sló mig alveg útaf laginu. Umræðan í þjóðfélaginu og hatrið er líka löngu orðið svo mikið. Er þetta þannig þjóðfélag sem við viljum tilheyra ? Þjóðfélag þar sem fólk sem mætir í sína vinnu að morgni eigi alls ekki víst að komast heim að kvöldi ? Er þetta það sem fólk vill ?

Ég er alveg viss um að meirihlutinn vill þetta ekki.

Svo er hitt. Fyrir hverju er barist ? dauðum hlutum ? Er það lögmönnum að kenna að fólk fær innheimtubréf frá þeim ? Ég hef alveg staðið í þeim sporum. En ég fann sökudólginn - það var ég. Ég ýmisst borgaði ekki reikninginn vegna gleymsku eða peningaleysis. Það var ekki þeim að kenna samt.

Ég hef misst íbúð á uppboð og verið í tómu tjóni fjárhagslega. Þegar upp er staðið þá skiptir það ekki máli. Það má alltaf útvega sér annað húsnæði eða aðra bíla ef þeir fara.

Reynum að skríða upp úr þessum skotgröfum, hjálpumst að við að leysa málin en án haturs og ömurlegrar umræðu. Högum okkur eins og fólk en ekki eins og skynlausar skepnum.

Manninum sem varð fyrir árásinni óska ég góðs bata og velfarnaðar og öllum þeim sem að Lagastoð koma - starfsfólki og fjölskyldum þeirra. Sömu ósk ber ég í brjósti fyrir þá sem að árásarmanninum standa. Þeirra spor eru líka þung.

(það er ekki lokað fyrir athugasemdir en ég þarf að samþykkja þær áður en þær birtast)


Í dag

er afmælisdagur ömmu hans Himma og skírnardagurinn hans. Amma hans dó þegar hann var pínuponsulítill og við frestuðum skírn hans um nokkurn tíma en ákváðum svo að nota afmælisdag Þórdísar ömmu hans.

Örn Bárður jós dreng vatni í Grindavíkurkirkju á æskulýðsdegi.

 

Fámenn veisla bara heima á eftir.

skirnarmynd_af_himma.jpg 

Hérna erum við mæðgin daginn þann, árið er 1986 :) 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband