Smá tilkynning hehe

Sko við Björn vorum að ræða afmælið hans. Hann ætlar ekki að halda upp á það á réttum degi, nennir því ómögulega segir hann. Það er vinnuhelgi hjá honum. Hann er að hugsa um laugardaginn þar á eftir og vill bjóða sem flestum úr familíunni. Þar á hann við sitt fólk í Grindavík og þau systkini sem vilja koma og gleðjast með honum á þessum tímamótum, Sigga frænka og strákarnir og auðvitað hann afi á Skóló.

Takið daginn allaveganna frá í bili.

Við þurfum að væla í Siggu frænku að gera brauðréttinn sinn góða. Ég hef reynt að gera hann en hann er aldrei eins góður og hjá henni.

Kveðja í allar áttir 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Noh bara veisla framundan með namminammi.  Öfund.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.3.2008 kl. 14:54

2 Smámynd: Solla

jibby, ég mæti. En Mr.Björn klukkan hvað ertu að spá í að hafa þetta??? Veit að Jón er að vinna til kl.17:30

Solla, 19.3.2008 kl. 16:19

3 Smámynd: Ragnheiður

Það er enn alveg óvíst klukkan hvað...ætli það verði ekki bara galopið hús allan daginn ?

Ragnheiður , 19.3.2008 kl. 16:25

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hafðu það gott Ragga mín

Kristín Katla Árnadóttir, 19.3.2008 kl. 18:11

5 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Við mætum ekki spurning ég er mikið búin að hugsa hvað ætti að gefa Bjössanum okkar og ef það er eitthvað sem ég get lagt til endilega að láta vita....

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 19.3.2008 kl. 19:10

6 Smámynd: Helga skjol

Bara innlitskvitt.

Helga skjol, 19.3.2008 kl. 19:10

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég fæ hroll þegar ég hugsa um veislur!   Hafðu það gott Ragga mín

Huld S. Ringsted, 19.3.2008 kl. 20:15

8 Smámynd: Brynja skordal

Hafðu það rosa gott um páskana Ragga mín gleðilegt páskaknús

Brynja skordal, 19.3.2008 kl. 21:41

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Afmælisknús á Bangsann  Bunny Face  Easter Bunny  Chick

Ásdís Sigurðardóttir, 19.3.2008 kl. 22:34

10 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Gleðilega páska  Og til hamingju með yngsta soninn

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.3.2008 kl. 02:52

11 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Spennandi :)

Guðborg Eyjólfsdóttir, 20.3.2008 kl. 08:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband