Mamma fanatíker hljóp á sig í gær

Með bravör eins og oftast þegar kelling fer framúr sér.

Málið var svona.

Meistari Björn birtist heima, haldandi á þremur ókennilegum brúsum. (Móðir vanaföst og kaupir allar vörur eins síðastliðin 25 ár)

Mamma : Hvað ertu að gera ! Bera brennivín inn til mín ?

Björn ; Uhh nei, þetta er tómatsósa og svoleiðis !! Ég var sendur með þetta úr Grindavík !!

( Björn heldur brúnaþungur þegar hér var komið sögu)

Mamma: nei vá ! flott, ég var einmitt að henda næstum öllu úr ísskápnum í dag, var sko að taka til Whistling

Næst ætla ég að lesa á hlutina áður en ég fæ flog en af þessu má greinilega sjá að ég er fanatísk á vín.

Hrmpf...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heheheh, held að ég sé hálf-fanatísk líka. Fimmtugsafmælið mitt í sumar verður alla vega haldið án víns. Bara kökur og geggjað kaffi! Fólk hefur verið ánægt með slíkar veislur hjá mér síðan ég var 29 ára.

Guðríður Haraldsdóttir, 2.6.2008 kl. 09:20

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Fotttar báðar, þ.e. Gurrí og Ragga.

Ég er ekki fanatísk á vín, dey bara ef ég myndi drekka það.  Hehe.

Helvítis búsið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.6.2008 kl. 09:58

3 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Ég varð alveg ein auðu og skildi ekki í hvað Björn var að bera inn 3 flöskur en kannast við þessar flöskur samt vona að þið getið notað þetta ef þetta ætti allta að borðast hér yrðum við bara tómat og sinnep.

Var búin að vera að hugsa hverjum ég gæti gefið helming svo kom Björn hér og ég var fljót að spyrja viltu ekki taka eina flössku af hvoru til mömmu þinnar .

Kveðja til ykkar á nesinu. 

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 2.6.2008 kl. 12:55

4 Smámynd: Ylfa Lind Gylfadóttir

Hahaha brjálaðamamman.is

Ylfa Lind Gylfadóttir, 2.6.2008 kl. 13:08

5 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hvernig datt þér í  hug að það væri brennivín í tómatsósuflöskum? Þarf ekki heilmikið ímyndunarafl í það?

Helga Magnúsdóttir, 2.6.2008 kl. 13:18

6 Smámynd: Ragnheiður

Já kærar þakkir Heiður

Sko þetta lítur ekkert út eins og tómatsósuflöskur, lítur út eins og Breezer eða eitthvað

Ragnheiður , 2.6.2008 kl. 13:30

7 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

He he vonum að þú hellir ekki breezer á pylsurnar næst

nýtt á bæjarins bestu :Ein með breezer.

Eyrún Gísladóttir, 2.6.2008 kl. 16:08

8 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.6.2008 kl. 19:16

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já maður getur nú svona í fljótheitum orðið fljótfær
Ég segi það sama og þið stelpur mínar hér eru ekki haldin boð þar sem boðið er upp á vín.
                                  Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.6.2008 kl. 19:29

10 Smámynd: Linda litla

hehehehe annrs erum við stundum soldið dugleg að framkvæma án þess að hugsa...

Linda litla, 2.6.2008 kl. 19:33

11 Smámynd: Linda litla

By the way.... skál í tómatsósu ;o)

Linda litla, 2.6.2008 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband