32 dagar til jóla
Færsluflokkar
Eldri færslur
2024
2021
2018
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Tenglar
Englar á himnum
Fyrirbænirnar
Ég hvet ykkur til að lesa
21.5.2008 | 11:42
þessa grein í mogganum í dag og hugleiða stöðu barnanna sem fjallað er um.
Hjalli minn á afmæli í dag, nú er hann orðinn 21 árs þessi elska
Um 20 fíklar látist frá börnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bloggar | Breytt 21.9.2009 kl. 11:28 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Til hamingju með Hjalla þinn.
SigrúnSveitó, 21.5.2008 kl. 11:49
Til hamingju með hann Ragga mín.
þetta er sorglegra en orð fá lýst, þessum litlu skynnum er hennt til og frá eins og dúkkum en ekki litlum börnum sem þurfa allan þann kærleika sem hægt er að gefa þeim.
Kveðja til ykkar allra
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.5.2008 kl. 12:19
Til hamingju með strákinn :)
Takk fyrir að benda á þessa grein sem Ingibjörg skrifaði í moggann í dag, mjög áhugaverður lestur sem skilur mann eftir með fullt af spurningum og efasemdum, augljóslega að það þurfi að hrista aðeins til í barnaverndarmálum hér á landi.
E.R Gunnlaugs, 21.5.2008 kl. 12:21
já, eða benda á greinina um börnin sem leiddi mig að greininni hennar ingibjargar... (þokann!!) :)
E.R Gunnlaugs, 21.5.2008 kl. 12:22
Þetta er alveg hræðilegt..... þarna er talað um 20 fíkla sem hafa látist frá börnunum sínum síðustu 12 mánuði, en hvað voru það margir fíklar sem dóu síðustu 12 mánuði, þá á ég við karlmenn og þá sem ekki eiga börn eða eiga uppkomin börn.
Þetta er sorglegt, og þetta er eitthvað sem verður að takast á í þjóðfélaginu.
Til hamingju með Hjalla þinn
Linda litla, 21.5.2008 kl. 12:51
Til hamingju með Hjalla, elsku Ragga. Knúsaðu hann.
Ég treysti mér ekki út í að ræða einusinni efni þessarar greinar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2008 kl. 13:44
Búin að lesa greinina og sjokkerast yfir henni.
Til hamingju með Hjalla þinn!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.5.2008 kl. 13:47
Til hamingju með daginn Hjalti!! 21 ár er stór áfangi! Þá eru bara 3 ár í að þú megir heimsækja nektarbúllur - skv. mínum upplýsingum.....
Til hamingju með strákinn Ragga mín. Það er alltaf gaman að verða tuttuguogeins.......
Ég græt hinsvegar yfir þessum börnum. 20 börn!! Spáið í það!! Ótrúlegur fjöldi á ekki lengri tíma........ ég hreinlega græt!
Hrönn Sigurðardóttir, 21.5.2008 kl. 14:14
Til hamingju með strákinn.
Las þessa grein í Mogganum í hádeginu, hún er rosaleg! Hvenær fá sprautufíklar rétta hjálp? Geðlæknar hafa skrifað flottar greinar um lausn þessa vanda en ekki hefur verið hlustað.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 21.5.2008 kl. 14:41
Til hamingju með Hjalla þinn
Bryndís R (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 14:41
Til hamingju með Hjallan.
Ég las greinina og hún er vægast sagt sláandi!
Ragga (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 14:53
Til hamingju með Hjalla þinn.
Ég las þessa grein og grein Ingibjargar Benediktsdóttur í morgun og var mjög brugðið.
Sigrún Jónsdóttir, 21.5.2008 kl. 14:58
Til hamingju með Hjalta Ragga mín.
Ég á eftir að lesa þessa grein og fer til þess strax ég hef einmitt hugsað þetta hvað ætli margir fíklar látist á ári....
Kveðja til þín og þinna.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 21.5.2008 kl. 14:58
Til hamingju með stráksa
Langar svakalega að lesa þessa grein, en er ekki með aðgang
Hafðu gott kvöld.
Hulla Dan, 21.5.2008 kl. 16:24
Mín kæra Ragnheiður - til hamingju með stóra strákinn! 21 árs gerir mann stóran náttúrulega - fullorðinn eiginlega. Vonandi eigið þið yndislegan dag! Knús á þig mín kæra.
Tiger, 21.5.2008 kl. 16:25
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 16:40
Ég bendi líka á minningargrein um þessa sömu stúlku sem Jónína Ben skrifaði í Mbl líklega á mánudag. Þar koma fram sláandi upplýsingar sem gera mann reiðan.
Sorgmæddur (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 17:10
Til hamingju með stóra strákinn þinn vonandi átt ánægjulegan dag ;)
Ég las greinina sem er vægast sagt sláandi,,en þarna þekkti ég aðeins til og skil engan vegin hvers vegna litlu drengirnir voru á heimilinu þessa helgi.
Stór mistök barnavendaryfirvalda,vona svo sannarlega að þeir fái að vera saman litlu bræðurnir
Anna Margrét Bragadóttir, 21.5.2008 kl. 19:15
Til hamingju með Hjalla þinn.
Bergdís Rósantsdóttir, 21.5.2008 kl. 19:43
til hamingju með Hjallann þinn mín kæra
Guðrún Jóhannesdóttir, 21.5.2008 kl. 19:53
Til hamingju með Hjalla.
Knús til ykkar
Eyrún Gísladóttir, 21.5.2008 kl. 20:30
Til hamingju með drenginn
Ég sá viðtalið við frænkuna í Kastljósinu áðan og það er greinilega margt sem þarf að laga ef þetta hefur verið eins og hún lýsir. (Sem ég er alls ekki að draga í efa .....)
Anna Gísladóttir, 21.5.2008 kl. 20:49
Sæl Ragheiður. Til hamingju með drenginn. Ég hef oft lesið greinar á bloggi þínu og fellt tár þú ert örugglega góðhjörtuð kona það sé ég á skrifum þínum ,þú ert búin að ganga í gegnum svo erfiða tíma vegna fráfalls Himma.Nú í þessari umræðu í dag með þessari sorglegu umræðu verðum við að hugsa um alla, þessir elsku littlu drengir tveir eiga líka feður og fjölskyldur á bak við þá sem eru í mikilli sorg.
Ein sorgmædd. (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 21:09
Innilega til hamingju með stráksa. Njóttu dagsins dúlla.
Fjóla Æ., 21.5.2008 kl. 21:18
Til hamingju með strákinn. Er búin að lesa þessar greinar og þetta er þyngra en tárum taki.
Helga Magnúsdóttir, 21.5.2008 kl. 22:04
Sorgmædd ; það er alveg satt, það eiga margir um sárt að binda þegar slíkir atburðir verða.
Vonandi verður framtíð snáðanna eins björt og hægt er .
Ég get auðvitað ekki lagt neinn dóm á aðstæður þeirra nema bara það sem fram kemur í greininni. Móðir þeirra greinilega fárveik og miðað við myndir af henni svo falleg stúlka.
Ragnheiður , 21.5.2008 kl. 22:10
Ég er búin að lesa þessa grein og þetta er auðvita bara hræðilegt og ég finn svo til með þessu fólki,en eitt sem ég tók eftir í greininni er að það er talað um talsmann fyrir drengina og því er ég sammála að þurfi eða bara áfallhjálp einjverja ég vil bara segja hér afþví að þessir drengir eru á svipuðum aldri og mín börn að hlusta og tala við börnin og reyna að svara því sem hægt er( en það er líka erfitt fyrir þá sem næst standa því sorgin er svo mikil)þetta er mín reynsla síðan Himmi dó varðandi litlu systkini hans því börn syrgja hver á sinn hátt.
Kveðja í nóttina.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 21.5.2008 kl. 23:07
Til hamingju með Hjallann þinn elsku Ragga
Katrín Ósk Adamsdóttir, 21.5.2008 kl. 23:08
Til hamingju með soninn Svo er þetta með barnaverndina, hún er ekki að tryggja öryggi og velferð barna með svona framkomu. Þetta er ekki eina málið þar sem barnavernd bregst hlutverki sínu. Í nafninu kemur fram hlutverkið BARNAVERND en þeir virðast ekki vera til verndar börnum og hafa hagsmuni þeirra í fyrirrúmi. Mitt mat er að það á að reka alla sem vinna í Barnaverndarnefnd Reykjavíkur. Ég hef heyrt hræðilegar sögur af vinnubrögðunum þar
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 22.5.2008 kl. 01:27
Til hamingju með Hjalla ykkur
Brynja skordal, 22.5.2008 kl. 09:03
Til hamingju með Hjalla og megi árið verða honum gott.
Hef ekki komist í þessar greinar en ætla að gera það við fyrsta tækifæri.
Knús og klús
Kidda (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 11:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.