Jólakveðja frá Flensustöðum í Sjúkrasveit

100_0948

Jólahænsnakofi.

100_0944

Jólalegur Bonzó

100_0947

Við settum tunnuna inn í skúr í gær. Öskukallar komu hér í rjómalogni í morgun og hafa af hugvitssemi stolið öskutunnu einhvers nágrannans til að setja hérna. Nú eru þær tvær. Nema þetta hafi verið gjörningaveður og valdið tvöföldun hluta.........nei þá væru fjórir bensar úti, 2 suzuki jeppar og 2 toyotur.

Vantar einhvern sætan Suzuki Vitara ? Hann er smá bilaður en fæst á smá aura á móti.

GLEYMDI !

100_0950

Ég á ringlaðan jólahund...

Brandari í boði hússins;

Kallinn minn er bara snillingur. Hann er búinn að þvo og þurrka þvott í gríð og erg í dag. Segist búa með aumingja. Áðan braut hann saman heilan þvottaskammt og dæsir svo upp úr eins manns hljóði ; Ég held að sonur þinn þarna inn í herbergi sé eineygður ! Ég leit upp og sá að hann hélt á 2 stökum sokkum. Þá meinti kallinn áreiðanlega einfættur....ég hló og hló....æj æj ó boj.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Settu þær bara báðar inn í nótt. Þá áttu fjórar næst!! Og ert alveg seif um jólin..........

Hrönn Sigurðardóttir, 13.12.2007 kl. 19:32

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vona bara að það sé ekki flugnaflensa að bögga þig.  Krúttkvðeðja.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.12.2007 kl. 20:22

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ehmmmm....allt tvöfalt.... ertu nokkuð drukkin Ragnheiður ?  Og hundurinn kannski líka ??

Anna Einarsdóttir, 13.12.2007 kl. 20:29

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Eruði nokkuð full á Nesinu?  Segi svona, en vóffi lítur út fyrir að vera smá ringló.

Smjútsí.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.12.2007 kl. 20:39

5 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Jæja Karlinn þinn er að standa sig í þvottinum  Er runnið af þér og voffa ?

Katrín Ósk Adamsdóttir, 13.12.2007 kl. 23:12

6 Smámynd: Brattur

... gott að eiga tvær ruslatunnur... ef maður á ekkert þá á maður ekkert rusl... sagði spekingurinn einhverntíman...

Brattur, 13.12.2007 kl. 23:13

7 Smámynd: Ragnheiður

Við voffi erum stakir reglupésar, hann er svona bjánalegur á myndinni vegna þess að hann er að leita að þessu skrambans ljósi (myndavélarflassinu)

Fann náttlega ekkert í hvítum snjónum hehe ....

Ég er ekkert full...bara með furðufuglaflensu,virkar svipað hehe

Ragnheiður , 13.12.2007 kl. 23:22

8 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Já skrítið með tunnuna. Hann stendur sig vel kallinn þinn. Vonanadi verða þetta ekki flensustaðir lengi.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 13.12.2007 kl. 23:36

9 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Vonandi fer flensan að yfirgefa þig

Björg K. Sigurðardóttir, 13.12.2007 kl. 23:54

10 Smámynd: Rut Rúnarsdóttir

Takk kærlega fyrir að samþykkja mig sem bloggvin :)

Rut Rúnarsdóttir, 14.12.2007 kl. 00:02

11 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Vonandi fer furðufuglaflensan að lagast hjá þér skvís. LOL, ég vona að bærinn fari ekki að rukka þig fyrir aukatunnuna, hef lent í því sjálf og neyddist til að borga því mig vantaði aukatunnuna.

Bjarndís Helena Mitchell, 14.12.2007 kl. 00:19

12 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Eineygður...haha fór sjálf í búð í kvöld  borgaði með debetkorti og spurði afgreiðslumann hvort hann gæti borgað fyrirfram.....ha, neeeei sagði hann, ég var smá stund að kveikja, þetta átti auðvitað að vera geturðu tekið  umfram...

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 14.12.2007 kl. 00:30

13 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Synir mínir héldu því fram á sínum tíma að "eineygðir" sokkar væru geimverur sem hefðu orðið eftir og rötuðu ekki heim til sín!

Það sem krökkum dettur ekki í hug! 

Greta Björg Úlfsdóttir, 14.12.2007 kl. 18:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband