Færsluflokkur: Bloggar

Ég er komin

heim eftir frábæra helgi. Við lögðum af stað vestur klukkan 21.30 á föstudagskvöldið, með bílinn á vetrardekkjunum að kröfu kvenpersónunnar sem sat í farþegasætinu. Húsbóndanum fannst það óþarfi en sá hversu stíft frúin sótti það og ákvað að gegna bara. Við útbjuggum bílinn þannig að hægt væri að sofa í honum, settum í hann dýnur og sængur. Förinni var heitið vestur í sveitina "mína", í Hænuvík við Patreksfjörð. Þar stóð til að ferma yngri heimasætuna á bænum. Okkar fólk er að mestu leyti þarna fyrir vestan og það var aldrei spurning um að drífa sig vestur.

Í dölunum var slydda og slabb á veginum. Við skröngluðumst áfram vestur og eftirtektarvert er að hvergi er búið að opna nein vertshús á vesturleiðinni. Við vorum í samfloti með trukk, vorum farin að uppnefna hann og kalla hann vin okkar. Spáðum í hans aðbúnað og svoleiðis á leiðinni. Hann sendi okkur framúr sér á Holtavörðuheiðinni Bröttubrekku en við sáum alltaf grilla í hann hinumegin í öllum fjörðum eftir það.  Fínn ferðafélagi alveg.

Steinar var ákveðinn í að keyra vestur að Klettshálsi og það passaði, þar fyrir neðan var útskot og þar lögðum við gamla bílnum og skriðum aftur í að sofa. Það var hlýtt að sofa þarna nema hvað nefið á mér varð kalt öðruhvoru, ég var eiginlega alveg búin að hanna húfu á nefið þegar við vöknuðum klukkan 9. Þá þurfti auðvitað að skreppa út í móa og eitthvað svoleiðis. Steinar fór á undan mér út og ég reif upp afturhurðina. (gamli er eins og sendibíll) og stakkst niður einhvern bakka og nærri út í læk. Þá hafði Steinar bakkað, í myrkrinu, að einhverjum kanti og ég tók ekkert eftir því þegar ég stökk niður.

Okkur bráðvantaði kaffi þegar við vöknuðum en það þýddi ekki að spá í það. Siggi Atli segir að það sé hægt að kaupa kaffivél sem gengur fyrir bílarafmagni í Ellingsen, það verður sko athugað hehe. Kvöldið áður höfðum við séð ljós á Klettshálsinum og hugsuðum bæði það sama. Þessi ljós hreyfast ekki, þessir eru stopp þarna uppi ?

Þegar við komum í fyrstu beygjuna á hálsinum þá var ruðningstæki þar, að keðja að framan. Við ókum framhjá honum og aðeins lengra upp. Þá sáum við "vin okkar" aftastan í 3 trukka röð en fyrir ofan þá var einn trukkur og 2 smábílar. Við bökkuðum í útskot á veginum og biðum í klukkutíma meðan vegurinn var hreinsaður.

Við skriðum svo framhjá trukkunum þegar þeir stoppuðu til að taka keðjurnar af. Enn fannst hvergi kaffisala og við héldum áfram á Patreksfjörð. Kíktum á hurðina á Brjánslæk til að sjá hvort Baldur passaði við ferð okkar til baka en gátum ekki séð það. Á Patró fékkst loks þetta langþráða kaffi. Við vorum að fara þaðan út aftur þegar trukkurinn, vinur okkar, birtist...sá var feginn að vera kominn heim. Það lá við að við klöppuðum fyrir honum.

Þá lá næst leiðin í sveitina. Kíktum við á "flugvellinum", en þar hefur frænka mín (kona frænda míns en ég kalla þetta allt frænkur og frændur fyrir því) verið með greiðasölu á sumrin. Þar var enginn en þar skiptum við yfir í sparifötin. Við fórum svo inn á Sellátranes til að komast á kló og svona fyrir messuna sem átti að vera klukkan 14 í Sauðlauksdalskirkju. Ég var nokkuð spennt að sjá kirkjuna að innan en auðvitað enn spenntari að sjá ættingjana mína alla þarna. Sigga systir var komin að kirkjunni þegar við komum, þau fóru úr bænum um klukkan 7. Þarna urðu fagnaðarfundir....oh það er svo gaman að hitta fólkið okkar fyrir vestan.

Við fengum blað í hendur og sálmabók. Haukur frændi minn hélt á sálmabókinni enda ég gleraugnalaus og bókin mun læsilegri í smáfjarlægð. Sumt var feitletrað og þá átti liðið að rísa úr sætum, ég vissi ekki hversu fegin maður varð að fá að standa upp. Bekkirnir í kirkjunni eru svo hörmulega vond sæti..jesús minn. En öll lifðum við bekkina af og fermingarbarnið var stórglæsilegt, báðar Hænuvíkurstúlkurnar í upphlut og Guðný, sú eldri tók virkan þátt í messunni. Bjarnveig Ásta var eina fermingarbarnið.

Við fórum svo út á Sellátranes og réttum úr okkur eftir kirkjubekkina. Það er sko ekki hægt að sofna í þessari kirkju. Bekkirnir koma alveg í veg fyrir slíkt. Mjóir trébekkir með einni fjöl í bakið sem sett er svo framarlega að maður situr alveg fattur. Rassar á kirkjugestum hafa verið nettari í gamla daga.

Okkur var boðið hús til láns og við ákváðum að þiggja það. Gistum í sumarhúsi Guðna og Ingu á Nesi. Næsta dag sátum við í Nesi með Svenna og Steinu og skemmtum okkur vel, borið í okkur veislumatur og bara ótrúlega notalegt ...Ég vildi svo endilega líta við í Hænuvík og kveðja þau þar, fékk að kíkja í fjárhúsin og klóra aðeins rollum undir hökunni. Það er fallegt féð í Hænuvík. Systur sýndu okkur kanínur, hænur og ref sem reyndar fékk nærri hjartastopp af hræðslu, óvanur gestum blessaður.

Versta við að fara vestur er að mig langar alls ekki heim þegar ég er búin að vera þar. Ég hefði alveg getað verið kyrr í Hænuvík og verið með í sauðburði og haft það æðislegt á meðan. Ég er allaveganna ákveðin í að fara vestur aftur í sumar og vera lengur. Ég endurnærðist öll og mér fannst ég skilja byrðina eftir fyrir sunnan.

Heim er ég komin, andlega endurnærð.

Missti af þessum mæðradegi enda sjálfsagt ekki mikið í símasambandi á leiðinni og enn er ekki komið símasamband á vestfirði, meðan svo er þá er ekki von með Himnaríki.

Takk fyrir frábæra þátttöku í spurningunni í síðustu færslu. Það komu mörg svör en flest eru þannig að fólk telur sig hafa verið einhversstaðar áður en það fæddist.

Mín skoðun er sú (amk eins og sakir standa) að ég tel mig einfaldlega ekki hafa verið til og þegar ég dey þá tel ég sama upp á teningum, ég verð einfaldlega ekki til lengur en munurinn er sá að þá mun ég lifa áfram í hjörtum fólksins míns meðan þau sem mig þekktu mig lifa enn.

Viðbót við þessa löngu færslu ;

Í byrjun mai fæddist drengur í fjölskyldunni, Árni Grétar frændi minn á þennan snáða. Rétt fyrir hvítasunnuhelgi eignaðist Óli bróðir hans stúlkubarn, sem að vísu kom 6 vikum of fljótt en var þó rúmar 8 merkur og 48 cm löng. Í fermingarveislunni hitti ég svo Jóhönnu frænku mína og Ásgeir hennar mann. Hún var með skráðan dag 18 maí en í gærmorgun ákvað snáðinni að koma í heiminn og gerði það á Ísafirði. Það er ekki hægt að fæða á Patró, ljósan sinnir bara mæðraeftirliti en ekki fæðingum. Undarlegt....undarlegt.

En þessi yngsti frændi af þremur krílum sem komu nánast í sömu vikunni öll er á vefsíðu sjúkrahúss Ísafjarðar og þar náði ég í mynd af honum.

Jóhönnu og Ásgeirssonur

Mesti myndarpiltur þarna á ferðinni.

 

 


Spurning fyrir helgina, endilega sem flestir að koma með álit

Spurningin er ; hvar vorum við áður en við fæddumst ?

Ég skýri spurninguna síðar þegar ég er búin að lesa svör ykkar.

Þetta lag er sett til heiðurs elsku Ásdísinni minni, hún birti í morgun íslenska textann við þetta. Ég fór og skoðaði úrvalið á youtube og leist best á þessa herramenn enda mikill aðdáandi þeirra.

Svo fann ég þetta, þið munið, lagið sem á að syngja yfir mér þegar ég verð komin í hvíta kassann.


Jæja

Mæðradagurinn er á sunnudaginn og klessist ofan í hvítasunnudag. 1 mai og uppstigningardagur runnu líka saman í einn. Það er næstum verið að svíkja mann um auka hátíðardag !

Mæðradagur minnir mig á Himma.

riiinng rinnnggg!

Mamma : halló?

Himmi: til hamingju með daginn

Mamma : Ha? ég á ekkert afmæli núna ?

Himmi: Mamma! Það er mæðradagurinn !!

Svo fylgdi þessi óborganlegi,letilegi hlátur.

Mamma: Ó...eheh takk Himmi minn.

Þennan mæðradag hringir ekki Himmi, það er bannað að hringja úr "hinumegin". Það skiptir ekki máli. Ég verð eitthvað takmarkað í símasambandi þann daginn.

-----------------------------------------------------

Var að lesa á www.visir.is og rakst á þetta.

"Ræninginn, sem ógnaði starfsfólki bankans með hnívi, komst undan með 250 þúsund krónur í reiðufé"

--------------------------------------------------

Svo las ég einhverja fj. umfjöllun um best/verst klæddu konur landsins...svona ala american style umfjöllun. Mér fannst þessi umfjöllun ráðast verulega að Ragnhildi Steinunni Kastljóskonu. Mér finnst einmitt hún svo flott og skemmtileg. Ég krumpaði saman blaðið og fannst þeir sem skrifuðu eða gáfu álit ómerkilegir með það sama. Sko maður getur haft álit og sagt það kurteislega, það er engin þ-rf á dónaskap/ruddaskap.

Oft finnst mér einhver undirtónn öfundar á bak við slíka umfjöllun.

Hætt að nöldra yfir þessu enda bara í íþróttabuxum á leið í vinnuna....spariföt í gær og á morgun en annars er ég bara í drasli sem má fara fjandans til ef eitthvað kemur upp á. Ég hef alveg reynt að vera í betri fötum við að vinna en þá lendir maður í einhverju sem spælir lúkkið þann daginn.

--------------------------------------------------

Þetta er áreiðanlega mjög óviðeigandi færsla að mati Ólafs F. En ég slepp, hann les ekki bloggið mitt. Borgin er búin að greiða tæpar 600 millur fyrir brunarústirnar í miðborginni. Borgin ætlar bara að borga JFM rúmar 10 millur fyrir árið sem miðborgar** eitthvað** Laugavegshúsin kostuðu líka slatta af millum. Hvaðan kemur allur þessi peningur ?

Getur verið að þetta sé sami peningurinn og er ekki fáanlegur fyrir velferðarsvið borgarinnar ? Miðað við hrakspár Seðlabankans þá er eins gott fyrir þessa borg að vera viðbúin því að geta hýst sína borgara þegar fólk verður búið að missa ofan af sér.

_________________________________

Stjórnmálamenn verða móðgaðir við fréttastofur sem reyna að reka óuppfyllt kosningaloforð upp í nefið á þeim. Fréttastofur eru sakaðar um að reka stjórnmálaflokk og sakaðar um einelti af foringja Haarde. Það má til sanns vegar færa. Það hefði mátt koma með fleiri óuppfyllt loforð, frá fleiri flokkum. Kannski lofuðu hinir engu svona ákveðið og utanríkisráðherrann fyrir síðustu kosningar ? Ég er týpískur íslenskur kjósandi og ég man það bara auðvitað ekki.

Það gerir ekki til...ég mun ekki kjósa sjallana, ekki samfó, ekki framsókn,tæplega FF og hvað er þá eftir ? Shit..ég á svo eftir að verða í klandri....

Farin. Bless.


Snilldartónleikar í kvöld

í Salnum í Kópavogi. Útskriftartónleikar vinar míns, Þorvaldar Þorvaldssonar. Hann brá sér í ýmissa kvikinda líki og söng á rússnesku, ítölsku, þýsku og ítölsku..hvert öðru flottara og betra. Boðið var upp á léttar veitingar að lokum og svo lögðum við af stað heim. Ákváðum að fá okkur ís í sjoppu á leiðinni heim, oft keypt ís þar og hann verið góður. Þessi var ekki góður, stoppuðum við næsta sjáanlega rusladall og fleygðum honum.

Nú er framundan helgi helguð stórfjölskyldunni sem er að vísu orðin ansi fámenn en það er sama. Þetta er fólkið okkar og þau eru hvert öðru frábærara.

Sjáum til með blogg næstu dagana.

 


Auglýsing til dreifingar á bloggvef

 

 

Kæri vinur,
It is important to show children that not all adults are caught up in the conspiracy of silence!

Bið þig að senda þetta áfram á þinn vinahóp og spyrja hvort þau vilji hafa áhrif á hvort börn verði fyrir kynferðislegu ofbeldi á Íslandi ??

Eftir fyrstu auglýsingaherferð Blátt áfram, kom til mín kona með tárin í augunum og sagðist vilja þakka fyrir að hafa séð auglýsinguna í sjónvarpinu. Sat og horfði á með 11 ára gamalli dóttur sinni sem brotnaði saman og sagði frá kynferðislegu ofbeldi.

Önnur ung stúlka sagði frá og kom þá í ljós að sá maður var að beita margar ungar stúlkur kynferðislegu ofbeldi og fékk hann dóm í kjölfarið.

Þetta hefur áhrif !

1 af hverjum 5 stúlkum og 1 af hverjum 10 drengjum verða fyrir kynferðislgu ofbeldi fyrir 18 ára aldur(Hrefna Ólafsdóttir 2002)

Styrktartónleikar verða haldnir á fimmtudaginn til að safna fyrir birtingu á nýrri auglýsingaherferð, átakið „Verndarar barna“

Blátt áfram þarf á þinni hjálp að halda, komdu og hlustaðu á eina af þínum uppáhaldshljómsveitum og styrktu gott málefni.

 

Styrktartónleikar 8 maí 2008
Stórtónleikar á NASA

 

Styrktar tónleikar á NASA 8 maí 2008.

12 af bestu hljómsveitum landsins koma fram

Húsið opnar klukkan 19:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00

Fram koma:

Nylon, Sálin hans Jóns míns, Ný Dönsk, Ljótu Hálfvitarnir, Buff, Á móti sól, Merzedes club, Rokksveit Rúnars Júlíussonar, Einar Ágúst, Brain Police, Sverrir Bergmann, Bermuda

Miðaverð er 2000 kr og rennur allur ágóðinn til Blátt áfram.

Safnað er fyrir nýrri auglýsingaherferð „Verndarar barna“

Miðasala á Pizzo Pizzería á Grensásveg !!

Blátt áfram þakkar fyrir þetta frábæra framtak!

Bestu kveðjur,
Sigríður Björnsdóttir
Blátt áfram!
 
 
 
Kringlunni4-6, 6. hæð, 103 Reykjavík
Sími GSM (mobile): 893-2929, Netfang (e-mail):   sigga@blattafram.is
Heimasíða (homepage):   www.blattafram.is   Forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum

orkusparandi aðgerðir

eftir vinnuna. Ók heim í hreinum sparakstri og lagðist svo til öryggis í sófann, át afganga síðan í gær . Mikið rosalega held ég að Foringi Haarde sé sáttur við mig.

Annars er allt við það sama, ég hef mikið að gera um þessar mundir og tölvan er þá sett í kuldann.

Ég er annars alveg hugmyndalaus, ég ætti kannski að gleðja Foringjann og slökkva á öllu og fara að sofa ?

Mér hryllir náttúrlega við þessu máli á Selfossi og líka máli háskólakennarans. Ég skil ekki svona kalla með nokkru móti. Hinsvegar er ég enn afar efins um nafn og myndbirtingar meðan mál eru á rannsóknastigi. Sjáið til dæmið fréttaflutningana af þessum tveimur íslensku málum, annar maðurinn er settur framan á dagblöð og nafn hans stöðugt í umræðunni. Hinn er ekki nafngreindur enn og engin mynd af honum komin nema svona "blörruð" á forsíðunni.

Hvað veldur þessu misræmi ?

Nú skal það tekið fram, miðað við fréttir af málunum þá er mál þess blörraða mun alvarlegra en hitt.

Ég hallast ekki að myndbirtingum fyrr en dómur er fallinn !

En mikið djö fannst mér málflutningur lögmannsins lélegur, klína þessu á kvennabaráttuna. Andskotans auli er maðurinn að segja svona.

----------------------------------------------------------------------

Annað sem hefur verið hugsað um á þessu heimili er borgarstjórinn og liðið hans. Ég hlustaði á alla orðræðuna um daginn um skipulagstillöguna og ég skil ekki hvar er verið að mistúlka orð Ólafs ? Hann rífur niður þessa tillögu en hann sagði allt annað þegar tillagan vann á sínum tíma. Er það ekki að skipta um skoðun?

Svo verja Sjallagreyin hann af áfergju, bara til að halda völdum. Mér fannst málflutningur Gísla Marteins og Hönnu Birnu afskaplega lélegt yfirklór.

---------------------------------------------------------------------------------------

Um ríkisstjórnina ræði ég ekki, þvílíkt glatað lið að öllu leyti. 


Væri ekki gáfulegra

að byrja á að spara í ríkisbatteríinu ? Ég var að hugsa um að hafa titil þessarar færslu svona (/%&/$&#&%$(/!!!!! en hætti við. Hann Geir Haarde ..........urg .....á morgunvaktinni í morgun. Nú á fólk ekki að taka lán NEMA það þurfi þess ( ég hef aldrei tekið lán öðruvísi!) og ekki keyra nema þess þurfi !!!!!

Annars hef ég mikið að gera þessa dagana og tölvan situr alfarið á hakanum.

Þannig að skipun dagsins er, labbið aularnir ykkar og ekki pína bankana til að lána ykkur aura !

Hér kemur trukkablogg um sama og alveg fantagott blogg


Tazer fyrir lögregluna ?

Ég segi ;nei takk.

Ég hef hinsvegar fulla samúð með þeim vegna árása á þá en þessar rafbyssur líst mér ekki á. Hvað sem manni annars á að finnast um aðgerðir við Rauðavatn þá fannst mér lögreglan ganga fram með allt of mikilli hörku. Ég hafði ekki myndað mér skoðun á þessum rafbyssum fyrr en þá, ég sá fyrir mér þær notaðar við slíkar aðstæður.

Ég hef haft dálítið mikið að gera undanfarið og hef tekið ýmsar ákvarðanir sem höfðu beðið umhugsunar lengi.

Færsla hennar Heiðar minnar vakti mig líka til umhugsunar. Það eru til sorgarsamtök á Íslandi. Þau eru vísast ágæt til síns brúks. Við sem eigum aðstandendur sem svipta sig lífi erum dálítið sér á báti. Ég veit ekki til þess að við eigum okkur nokkurn félagsskap og ég veit að ekki veitir af. Við burðumst með svo sárar tilfinningar og spurningar. Ég hef í hyggju að bæta úr þessu með því að hitta mæður sem verið hafa í slíkum sporum, sjá hvort grundvöllur verður fyrir stofnun grasrótarsamtaka sem munu reyna að sjá um stuðning fyrir aðstandendur í þessum sporum.

Ef einhver les hér sem er móðir/faðir ungmennis sem hefur svipt sig lífi og hefur áhuga á slíkum stuðning þá er emailið mitt hérna í höfundarboxi og hérna ragghh@simnet.is

Ég mun bara spila þetta svona eftir hendinni og sjá hverjar undirtektir verða. Hitt er svo líka velkomið að hitta mig ein/einn ef fólki finnst það betra.

Njótið dagsins, það ætla ég að gera.


Ó

Það var allt í pati hjá honum í fyrrakvöld !

Annars hefur mér alltaf fundist þessi leikari vera með mögnuð augu en hann getur nú átt sig fyrir mér að öðru leyti.

 


mbl.is CSI leikari handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er töffari

en sumu nenni ég ekki.

Eitt það versta er að fara á bílaverkstæði. Ég er pínulítil kelling, oftast í svörtum jakka með kássu af rennilásum og mjög oft með sólgleraugu. Ég lít út eins og miniútgáfa af handrukkara. Ég virðist vera voða jaxl og svaka töffari. Ég fer samt helst ekki á verkstæði. Þar hef ég of oft lent í að vera rengd um það sem er að bílnum eða nánast klædd úr með glyrnum kallpungs sem mér kemur ekki við. Þá tosa ég gleraugun fram á nefið og hvessi brúnar glyrnur framan í viðkomandi. Það virkar, oftast. Mér finnst samt betra að senda Steinar í þessar kallaherbúðir. Mér er alveg sama þó hann sé berháttaður í hausnum á einhverjum og líklega honum líka hehe. En ég fór samt á verkstæði áðan...seig.

Ég á Benz og þeir hafa verið með boddýgalla undanfarin ár. Verksmiðjurnar úti hafa átt annríkt með að bæta þennan galla en hafa þó gert það. Í fyrra var skipt um allar hurðir hjá mér fyrir utan eina sem virðist vera í lagi. Bonzó lenti í tjóni og fékk sér nýtt nef nema annað frambrettið. Á það var komin ryðbóla. Askja rak okkur með hann í skoðun á verkstæðið sem sá um hurðadæmið og það stendur heima, brettið er ónýtt og ég fæ nýtt. Í leiðinni læt ég gera við skemmd aftaná síðan í vetur. Bonzó rann í hálku og rak sig í blásaklausan staur á Ásvallagötunni. Á meðan svaf ég heima.

Nú er komið sumar og bjart og þá gengur ekki að hafa svona búbú á Bonzó. Smámunasemi er í þér , segja kallarnir hérna og hlægja að mér. Hann kom nú úr allsherjarhreinsun í gær...og er ofsalega fínn að innan.

Ég meina það, fólk verður nú að geta ferðast í sæmilegum leigubíl þó fæstir spái nokkuð í því vegna ákveðins ástands.

ég ætlaði að skrifa meira og um annað...

pistillinn, afhverju ég , bíður betri tíma


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband