kallkrúttið
19.5.2009 | 22:41
eins og Ásdís mín segir um sinn, þessi hefur verið himnasending...eini heiðarlegi maðurinn í heiminum öllum finnst fólkinu og er það nema von?
Hlustaði á ræðudótið í gær, brá fyrir þunglyndi þegar ég hlustaði á Sigmund Davíð...maðurinn minn á vaktinni og eins og hver annar skáti, ávallt viðbúinn...benti mér snöfurmannlega á sérstakan takka á fjarstýringunni sem tók orðið af þessum leiðinlega framsóknarmanni. Nú heitir takkinn forðumstFramsókn.
Ég hafði hugsað mér að setja inn myndir af peysum og vestum, er að setja þetta inn á fésið og set líka hérna.
Argentínumenn hlaða gjöfum á leigubílsstjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það eru ekki svo margir sem eru svona heiðarlegir því miður.Þunglyndur af því að horfa og hlusta á stjórnmálamenn og konur er sennilega það sem flestir finna fyrir í dag.Nema þingmennirnir sjálfir.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 19.5.2009 kl. 23:25
Sæl og blessuð
Fyndið: "Nú heitir takkinn forðumst Framsókn."
Vertu Guði falin
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 20.5.2009 kl. 00:20
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.5.2009 kl. 01:02
Ég læt það vera að hlusta á alla nema að ég vildi heyra í Borgarahreyfingunni og varð ekki fyrir vonbrigðum þar. Þau halda vonandi áfram á sömu braut.
Hve lengi eigum við að bíða að hugsað verði um okkur, bara spyr út í loftið.
Knús og klús
Kidda (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 08:08
Æji ég er komin á þann aldur að að hafa upplifað þær nokkrar "Borgarahreyfingarnar" Tel þetta bæði tíma og peningasóun. Veit um vetfang sem sárblæðir vegna peningaleysis sem mundi sýna okkur meiri árangurtl lengri tíma litið. Eða barnavernd.
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 18:53
Hallgerður : Það vantar peninga allsstaðar og í allskyns þörf málefni. Ég er til í að sjá hvað Borgarahreyfingin gerir.
Takk fyrir innlegg
Ragnheiður , 20.5.2009 kl. 19:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.