við Keli
16.5.2009 | 14:14
löbbuðum, Rómeó nennti ekki með enda var hann á músaveiðum í nótt. Við Keli tókum með poka en gátum svo ekki notað hann, það sem hann skildi eftir smaug milli steina við hestastíginn...heldur lint sko!
núna er staðan 3-0 fyrir Róma...mýslurnar eru að skíttapa þessu !
Rakst á þetta og langar að biðja ykkur að dreifa slóðinni
ég hef lengi fylgst með Björk og hún er mögnuð kona og síðan hennar afar falleg og uppbyggileg þrátt fyrir hennar erfiðleika.
Athugasemdir
Takk fyrir að setja linkinn hérna inn, Ragga mín.
Ég þekki aðeins hana Björk og hafði fylgst með henni á blogginu hennar, en það var liðinn töluvert langur tími núna frá því ég hafði kíkt þar inn.
Mér fannst skelfilegt að lesa það, að hún væri orðin svona mikið veik af krabbameininu. Og ömurlegt að hugsa til þess að hún og hennar fólk þurfi að hafa fjárhagsáhyggjur ofan á allt saman. Ég setti inn á reikninginn hennar smá pening og vona að fleiri geri slíkt hið sama.
Kær kveðja
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 16.5.2009 kl. 15:00
Done. Takk fyrir ábendinguna.
Anna Einarsdóttir, 16.5.2009 kl. 15:21
Að sjálfsögðu styrki ég Björk, hún er gömul skólasystir mín úr barnaskóla, það er víst nóg fyrir hana að kljást við krabbann þó að fjárhagsáhyggjur bætist ekki við. Takk fyrir að benda fólki á þetta Ragga
Huld S. Ringsted, 16.5.2009 kl. 23:01
Sæl Ragga mín.
Las færsluna sem þú vísaðir á. Þetta er hræðilegt og viðurkenni ég að ég varð beygð að lesa.
Þakka þér fyrir að segja okkur frá Björk og hennar baráttu við krabbameinið.
Megi almáttugur guð miskunna Björk.
Guð veri með þér og þínum
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.5.2009 kl. 00:22
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.5.2009 kl. 00:23
Minn hundur hefur líka fengið steinsmugu, þá er erfitt að taka það í pokann sem fylgir okkur alltaf á okkar göngutúrum. Því miður hef ég ekki tök á því að styrkja Björk núna en athuga það eftir mánaðarmótin næstu.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 17.5.2009 kl. 02:52
Innlitskvittt og kær kveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 17.5.2009 kl. 13:42
Hér sendi ég þér ljúfan koss í fögru sólskínsveðri elsku vinkona mín
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 17.5.2009 kl. 17:32
Takk fyrir þetta.Veit hver Björk er.Geri það sem ég get.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 19.5.2009 kl. 10:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.