Fyrir nokkrum dögum

átti maður afmæli, hann varð fertugur. Hans minnisstæðasta gjöf var hugrekki og kjarkur eiginkonu hans, sem dauðveik reyndi sitt ítrasta til að gleðja hann þennan dag. Þetta var síðastliðinn skírdag.

Snemma að morgni föstudagsins langa fór hann með hana inn á sjúkrahúsið, þá gat hún ekki meira. Baráttan við krabbameinið hafði staðið síðan í maí á síðasta ári. En frá upphafi var við mikið ofurefli að etja. Í hennar huga var þó ekki til nokkur uppgjöf nú frekar en fyrr á hennar æfi.

Hún kannaðist aldrei við að geta ekki eitthvað.

Fólkið hennar kom í bæinn á laugardaginn, óku frá Höfn og frá Grenivík. Ég er ekki viss um að hún hafi orðið vör við þau með meðvitund en við sögðum henni að þau væru komin. Ég var á morgunvöktum þessa helgi í vinnunni.

Í gær fór ég heim áður en ég fór til hennar. Fólkið hennar birtist allt hér stuttu seinna, ég gaf þeim að borða og svo fórum við niður á spítala.

Breytingin til hins verra mjög afgerandi.

Við skiptumst á að vera hjá henni, ég náði að standa ein hjá henni nokkurn tíma og ég notaði hann til að rifja upp eitthvað sem við bara tvær vissum...svo láku tárin, á sængina hennar og fölu hendurnar.

Smátt og smátt fækkaði fólki. Þær á spítalanum gátu ekki alveg sagt til um hversu langan tíma þetta tæki. Um miðnætti vorum við Steinar og Bjössi ein eftir, auðvitað fyrir utan Lalla. Lalli orðinn svo þreyttur.

Við ákváðum að skreppa aðeins heim og sjá hvort Lalla tækist að sofa aðeins, við komum aftur eftir 2-3 tíma sögðum við. Bjössi beið aðeins hjá Öldu meðan Lalli skrapp aðeins....örstutt..innan við hálftíma.

Svo labbaði Björn heim.

Þá var klukkan um eitt....

Heima bylti ég mér...en hrökk upp rétt fyrir 3.

Var að hugsa um að ýta við Steinari til að keyra mig niðureftir..en þá hringdi Lalli.

Rétt fyrir 3 vöktu hjúkrunarkonurnar hann.

Alda var að fara

Hálfu öðru ári eftir að hún fylgdi Himma sínum til grafar þá deyr hún sjálf, 34 ára gömul..

Kærar þakkir þið- fyrir fyrirbænir og aðrar góðar hugsanir til hennar og hennar fjölskyldu.

Guð geymi hana Öldu mína


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ elsku hjartans Ragga mín.

Mikið ofboðslega tekur það mig sárt að lesa þetta. Þannig að krabbameinið hafði þá betur í baráttu Öldu við það, skelfilegt bara. 

Hugur minn núna er hjá manninum hennar og börnunum - og ykkur fólkinu, sem stóð henni nærri. Ég samhryggist ykkur innilega.

Góður Guð geymi Öldu og veiti ykkur öllum styrk til að takast á við missinn.

Kær kveðja

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 16:04

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hvað getur maður sagt? 

Ég samhryggist ykkur elsku stelpan mín

Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2009 kl. 16:14

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elsku Ragga mín, það er svo sárt að lesa þetta, þú skrifar af innri tilfinningu og kærleik sem ekki er öllum gefinn.  Guð blessi Öldu ykkar og ykkur öll sem þjáist svo mikið núna og hafið þjáðst og munuð þjást áfram því miður.  Sorgina tekur enginn á einu bretti það veist þú manna best, eina sem ég get boðið þér eru fyrirbænir og hlýr hugur.  Ég held ég verði að kíkja fljótlega aftur á nesið til þín.  Gangi ykkur vel á erfiðum dögum sem framundan eru, þú ert ávallt í hjarta mínu. Guð geymi ykkur.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.4.2009 kl. 16:14

4 Smámynd: Brynja skordal

Sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur Elsku Ragga mín og guð veri með ykkur á þessum erfiðu stundum ljós og kærleik til ykkar knús

Brynja skordal, 13.4.2009 kl. 16:18

5 identicon

Hjördís Edda (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 16:23

6 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

ég sendi ykkur mínar innlegustu samúðarkveðjur .mínar hugsanir eru hjá ykkur

Guðrún unnur þórsdóttir, 13.4.2009 kl. 16:24

7 identicon

Mummi (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 16:24

8 identicon

Patrekur Máni (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 16:24

9 Smámynd: ThoR-E

Samhryggist innilega Ragga mín.

Kv.

Einar

ThoR-E, 13.4.2009 kl. 16:28

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Innilegar samúðarkveðjur, elsku Ragga mín.

Guðríður Haraldsdóttir, 13.4.2009 kl. 16:34

11 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Guð veri með ykkur og styrki Ragga mín. 

Ía Jóhannsdóttir, 13.4.2009 kl. 16:35

12 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

 æi hvað þetta er sárt ... knús í þinn bæ Ragga mín.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 13.4.2009 kl. 16:43

13 Smámynd: Erna

Sendi þér Ragga mín og þeim sem eiga um sárt að binda við fráfall Öldu mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiða tíma

Erna, 13.4.2009 kl. 16:55

14 Smámynd: Marta smarta

Æ hvað þetta er sárt.

Elsku Ragga mín og Öldu fjölskylda.  Mér er orðavant, heyrumst.

Marta

Marta smarta, 13.4.2009 kl. 17:10

15 Smámynd: Sigrún Óskars

fallega skrifað - en sárt að lesa. sendi þér samúðarkveðjur og vona að Guð verði með ykkur og veiti ykkur styrk til að takast á við sorgina.

Sigrún Óskars, 13.4.2009 kl. 17:11

16 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Mín innilegasta samúðarkveðja. 34 ár eru alltof stuttur tími fyrir eina mannsævi...

Margrét Birna Auðunsdóttir, 13.4.2009 kl. 18:13

17 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir


Christian Glitter by www.christianglitter.com

Kæra Ragga

Ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð.

Guð veri með ykkur á þessum erfiða tíma.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 13.4.2009 kl. 18:37

18 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra elsku Ragga

Sigrún Jónsdóttir, 13.4.2009 kl. 19:29

19 identicon

Ég votta ykkur mína dýpstu samúð, Guð verði með ykkur og veiti ykkur styrk til að takast á við þessa miklu sorg.

Álfhildur (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 19:39

20 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra Ragga mín.  Hugur minn er hjá ykkur.

Bergdís Rósantsdóttir, 13.4.2009 kl. 19:46

21 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Orð eru fánýt á svona stundum.   Mínar hlýjustu hugsanir elsku Ragga mín og samúðarkveðjur til fjölskyldunnar allrar. 

Anna Einarsdóttir, 13.4.2009 kl. 19:46

22 Smámynd: Huld S. Ringsted

Elsku Ragga mín,ég samhryggist þér innilega. Guð veri með ykkur öllum og styrki

Huld S. Ringsted, 13.4.2009 kl. 20:08

23 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Elsku Ragga mín ég samhryggist þér og fjölskyldu Öldu svo innilega.

34 ár er alltof stutt ævi.ég sendi þér áfram hlýjar hugsanir,og geymi þig í hjarta mínu

Knús á fjölskylduna alla

Anna Margrét Bragadóttir, 13.4.2009 kl. 20:54

24 Smámynd: Daggardropinn

get ekkert gert nema að senda þér og fjölskyldu hennar mínar dýpstu samúðarkveðjur

Daggardropinn, 13.4.2009 kl. 21:30

25 Smámynd: Einar Indriðason

Samhugur, og *RISAKNUS*

Meira get ég ekki sagt núna

Einar Indriðason, 13.4.2009 kl. 21:32

26 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Elsku Ragga mín.

Hugur minn hefur mikið verið hjá ykkur og fjölskyldu Öldu í dag ég áttaði mig á hvað hefði gerst.

Ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur og hugsa til ykkar og Lalla og stelpnana og fjölskyldu Öldu.

Guð geymi Öldu.

Kveðja Heiður Gísli og Börn.

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 13.4.2009 kl. 21:42

27 identicon

Mínar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra

Auður Proppé (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 22:21

28 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Innilegar samúðarkveðjur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.4.2009 kl. 23:26

29 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Elsku Ragga, sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur, megi Guð gefa ykkur styrk.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 14.4.2009 kl. 00:32

30 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Innilegar samúðarkveðjur, til ykkar allra sem nú eiga um sárt að binda. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.4.2009 kl. 00:45

31 Smámynd: Tiger

 Stórt knús á þig Ragnheiður mín! Ég samhryggist þér og ykkur öllum!

Tiger, 14.4.2009 kl. 00:53

32 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 14.4.2009 kl. 01:39

33 identicon

Æi það er svo fátt hægt að segja.Mínar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 03:39

34 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Elsku besta vina mín, ég samhryggist þér og ykkur af öllu hjarta.
Sendi ljós og kærleik til ykkar.
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.4.2009 kl. 15:10

35 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Elsku Ragga, Mínar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra,,,Það er erfitt að upplifa þetta, láttu mig vita það

Erna Friðriksdóttir, 15.4.2009 kl. 02:23

36 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Elsku Ragga, ég samhryggist þér og aðstandendum innilega.

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 15.4.2009 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband