Þið sem eruð með flensu

og langar til að halda sambandi við hana eftir að ykkur batnar, þið getið sent henni bréf á heimilisfangið mitt. Ég skal lesa fyrir hana.

En að öllu gamni slepptu þá held ég að flensan sé flutt inn hjá mér, endanlega. Þetta er ekkert að lagast og þó, hóstinn er að minnka.

Ég hef líka hóstað á mig herðakistil. Ég fékk mikinn hálsríg fljótlega þegar flensan skellti mér. Ég gat ekki snúið hausnum og bara asnaleg. Svo var ég að kvarta við Steinar (þið skiljið núna afhverju hann býr í vinnunni LOL ) og strauk yfir öxlina og þá var stór kúla á öxlinni. Ég botna nú ekki í þessu.

En þetta hlýtur að lagast, einhverntímann.

 

 

Hætt að pæla í þessu, fer að snýta mér


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hér ríkir flensan endalausa.  Kannski er mín systir þinnar?

Láttu þér batna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.2.2009 kl. 13:45

2 Smámynd: Einar Indriðason

Hmm?  síðum lokað?  Alveg farið fram hjá mér.  Enda er ég afkastamikill blogg-lesari... eða þannig.

Hvaða síður, og hvers vegna?

En, já... flensan.  Ullabjakk flensa!  Hentu henni út, og sparkaðu í hana!  Sigaðu henni út á útsjó, eða... jafnvel kannski á pólitíkusa og seðlabankastjóra?  

Einar Indriðason, 12.2.2009 kl. 14:34

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehehe "halda sambandi við flensuna" kona..........

Hrönn Sigurðardóttir, 12.2.2009 kl. 15:58

4 Smámynd: Ragnheiður

Jenný þær eru allavega frænkur !

Einar, það er ekkert varið í að spá í þetta bloggvesen, ég er búin að reyna að skutla kvikindinu út en hún fer ekkert. Stendur bara geðvond út í garði þar til ég opna næst. Ekki sendi ég hana á nágrannana ? Það gengur ekki, á góða nágranna.

Hrönn : ég er sko bestasti vinur hennar

Ragnheiður , 12.2.2009 kl. 16:08

5 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Láttu þér batna.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 12.2.2009 kl. 17:19

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég er vizz um það þezzi flenza smitast með bloggi.

Nú nem ég smitberana greinilegar.

Steingrímur Helgason, 12.2.2009 kl. 19:03

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég má nú ekki við frú flensu núna, lá í desember og verð að vera frísk til að komast á hælið. Farðu extra vel með þig

Ásdís Sigurðardóttir, 12.2.2009 kl. 20:19

8 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Allir hjá mér hafa losnað við flensuna enn sem komið er, 7 9 13, ekki einu sinni kötturinn hefur hóstað.

Helga Magnúsdóttir, 12.2.2009 kl. 20:23

9 Smámynd: Sigrún Óskars

Segi eins og Helga 7-9-13 hef ekki fengið þessa flensu.  Vona bara að flensan þín hunskist út á sjó og það fljótlega

Það er einmitt búið að loka á eina bloggvinkonu mína

Sigrún Óskars, 12.2.2009 kl. 21:48

10 Smámynd: Einar Indriðason

prentaðu flensuna út, settu í umslag, og sendu sem ábyrgðarpóst til Hr.Seðlabankastjóri.  Skrifaðu "frá aðdáenda".  Ef við erum heppin, þá fer flensan.

Bloggið já.... fyrr eða síðar dett ég af bloggamogginu.  (kominn bloggleiði í mig að einhverju leyti (hvort sem það er moggabloggsleiði, eða bloggleiði yfirhöfuð).)

Einar Indriðason, 13.2.2009 kl. 08:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband