Mér hefur liðið

eins og jójói undanfarið...þó tók steininn úr í gærkvöldi. Ég sat í vinnunni, alein, og allt í einu fylltist ég að gleði...svona búbblu tilfinning alveg. Það var asnalegt.

Ég ákvað að annaðhvort væri ég að fá slag eða einhver væri að fikta í hjartastöðinni minni.

Svo er ég hundfúl inn á milli...

Hvar leggur maður inn pöntun um að hafa geðbrigðin minni og jafnari ?

Anyone?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

  Uss Ragnheiður mín .. bara sitja og fá sér kaffisopa með mínum af og til - og þá getur þú ekki annað en verið ... fúl alla daga! Alltaf stöðuglynd - alltaf fúl .. hljómar geggjað ekki satt? Hmmmm ... nei annars, það hljómar fekar bad - doesn´t it?

Annars er bara flott að vera með ákveðnar skapsveiflur - svo framalega sem maður sveiflar sér ekki of langt og sparkar í rassa og svoleiðis stuff ...

Knús á þig elskulegust og dragðu sólina inn ... hún er alltaf innan seilingar ef maður leyfir henni að vera það!

Tiger, 11.12.2008 kl. 00:37

2 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Pass.

Magnús Paul Korntop, 11.12.2008 kl. 01:01

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það á að grípa gleðina þegar hún kemur til manns, og njóta hennar. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 11.12.2008 kl. 01:03

4 identicon

Gleðin kemur aftur smátt og smátt.Njóttu hvers augnabliks eins vel og þú getur.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 01:06

5 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Anna Margrét Bragadóttir, 11.12.2008 kl. 07:18

6 Smámynd: Einar Indriðason

Hmm... Ég held ég taki bara undir með Tígra :-)

Svo bæti ég við svona broskornum eins og ... Brosa!  Og hvað var það fleira?  Hmm... jákvætt var það, meira en neikvætt!

Farðu vel með þig og ykkur.

Einar Indriðason, 11.12.2008 kl. 08:30

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Æj hvað það er gott að þú fannst þessa tilfinningu! Mikið er ég glöð

Hrönn Sigurðardóttir, 11.12.2008 kl. 08:54

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Góðan daginn elsku vinkona og ljúfar kveðjur:):)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.12.2008 kl. 09:57

9 Smámynd: Tína

Frábært að þú skulir finna svona til mikillar gleði allt í einu. Svo lengjast þessir tímar smátt og smátt. Njóttu þeirra bara vinkona.

Knús á meðan

Tína, 11.12.2008 kl. 10:31

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

"Búbblu tilfinning".    Það er þó nýyrði sem ég hef aldrei heyrt en skemmtilegt er það.

Ef þú ert glöð er ég líka glöð. 

Anna Einarsdóttir, 11.12.2008 kl. 12:19

11 identicon

Njóttu þess að fá svona gleðitilfinningar í botn

Knús og klús

Kidda (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband