Hver á hvað?
9.12.2008 | 11:39
Sko við sem viljum taka þátt í þöglum mótmælum, t.d. með því að versla ekki við "útrásarvíkingagengið" þurfum einfaldlega að fá að vita hver á hvaða fyrirtæki. Ég var að velta þessu fyrir mér um daginn þegar BT músin breyttist á nokkrum dögum í Hagamús. Er þetta það sem koma skal ? Einhver strandar í rekstrinum og þá kemur einhver annar Palli nýríki og reddar þessu ? (bið fyrirfram alla heiðarlega Palla afsökunar)
Hvað er málið með Noa Noa og Next ? Sömu hjónin komin með þann rekstur aftur ?
Mér finnst vera b***** skítalykt af þessu orðið öllu saman.
Ég versla í lágvöruverðsverslunum en hver á þær ? Auðvitað veit ég hver á Bónus en hver á þá Krónuna ? Hagkaupsveldið ? Konan hans ?
Hvernig væri að skutla þessu öllu upp á borðið og hafa sér dálk í mogganum og fréttablaðinu sem uppfærist eftir breytingu á eignarhaldi. Þá getur maður kannski stýrt sínum viðskiptum aðeins eftir því og verslað við venjulega heiðarlega kaupmenn. Vesturbæingar eru ekki í vanda staddir, þeir hafa bæði Kjötborg og Melabúðina. Fjarðarkaup er hérna næst mér og það er verslun sem er alveg prýðileg.
Verð ég virkilega að hætta að versla í ódýrustu búðunum?
Ég get bara ekki lengur varið það fyrir sjálfri mér að ausa peningum í þessa aðila....þið sem sáuð atriðið með Jóni Ásgeiri í spaugstofunni...það setti punktinn yfir I-ið.
Þið sem sífellt skammist yfir rolugangi okkar hinna sem ekki höfum mætt í mótmælin, hjálpið okkur frekar að finna leiðir til að mótmæla á annan hátt. Ég hef ekki nokkurn kjark í að ráðast inn í þing, seðlabanka né ráðherrabústað. Ég er ekki þessi mannfjöldamanneskja heldur....fæ andarteppu í stórum verslunum vegna fólksfjölda og því fegnust að sleppa þaðan út.
En ég held að þessir jólar finni mest fyrir í veskinu en til þess að það virki þá þurfa nokkuð margir að sniðganga þá, ég er bara ein kelling með lítið heimili ......
Athugasemdir
þetta er alger frumskógur og ferlega erfitt að fylgjast með hver á hvað!
mesta lágkúran finnst mér þó jólalán Hagkaupa... hræsni held ég að sé ágætt orð yfir það.
E.R Gunnlaugs, 9.12.2008 kl. 12:44
Þetta er sterkur punktur hjá þér Ragga mín, það má nefnilega mótmæla á margan hátt. Ég hef samt ekki efni á því að versla annarsstaðar en í Bónus, en kaupi eins lítið og ég get, enda nokkur kíló sem mega fjúka
Ásdís Sigurðardóttir, 9.12.2008 kl. 13:25
já hver á hvað og hvenær. hver skilur þetta?
versla mikið í Fjarðarkaup, enda er sú búð frábær og sæmilega ódýr.
Sigrún Óskars, 9.12.2008 kl. 17:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.