Ég labbaði í bæinn (nei nei djók)

Ég labbaði bara hérna Jörfaveginn, skömmustuleg, með voffana mína.

Ég hef komist að því að háræðakerfið í rassinum á mér er ekki upp á hálfan fisk. Það vantaði bara að rassinn dytti af. Ég persónulega hefði fagnað því en ég veit ekkert hvað nágrannarnir hefðu haldið, finnandi rass á víðavangi.

Keli dró mig ...hann missir sig alltaf í gleðinni þegar ég labba með hann. Ég tilkynnti honum formlega á heimleiðinni að ef hann hefði verið hestur þá væri hann orðinn að buffi með sósu. Þetta er auðvitað frekar asnalegt eigandavandamál að eiga fullorðinn hund sem ekki er taumbetri en þetta.

Ég leit út eins og Michelin kallinn þarna á labbinu. Mér fannst ég heyra heilmikið vindgnauð áður en ég tölti af stað. Úti var blankalogn og ég hugsaði nágrannanum með sögina þegjandi þörfina, í smástund. Þá áttaði ég mig á að þetta er mun betri fitubrennsla.

Ég vind bara spikið úr fötunum þegar ég kem heim.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehehe þú ert frábær! Líka svona skömmustuleg

Ég fór í norparanum mínum út! Hélt að puttarnir dyttu af mér......... hvílíkur fimbulkuldi!! Er ekki frá því að þeir séu enn frekar kaldir! 

Hrönn Sigurðardóttir, 1.12.2008 kl. 20:29

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Dásamleg lesning, ég hló hressilega.  Ekkert að detta af mér enda bara inni í hitanum.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.12.2008 kl. 20:43

3 Smámynd: Brattur

Skemmtilegt... en hvernig var Keli í framan þegar þú sagðir þetta við hann... vildi ég hefði sé svipinn á honum...

Brattur, 1.12.2008 kl. 21:09

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Er Keli ekki feginn að vera ekki hross?

Helga Magnúsdóttir, 1.12.2008 kl. 21:19

5 Smámynd: Ragnheiður

Hrönn: nákvæmlega, það sem maður taldi fast verður laust í þessum kulda.

Ásdís ; þar áttu líka bara að vera dúllan mín

Brattur ; hann horfði á mig eins og ég væri asninn

Helga: Ja , ég er fegin að hann er ekki hross. Hann er í rúminu mínu !

Ragnheiður , 1.12.2008 kl. 22:26

6 Smámynd: Dísa Dóra

hahahaha þú kannt svo sannarlega að segja skemmtilega frá

Dísa Dóra, 1.12.2008 kl. 22:51

7 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Skemmtilegt blogg hjá þér... hehehe....

Já það er skítkalt...ég þoli illa svona kulda. brrr.....

hafðu það gott.

kv Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 1.12.2008 kl. 22:52

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Ég vandi minn hund af því að draga okkur fjölskylduna með hengingaról, eftir að hann var búinn að fella örverpið nokkrum sinnum.  Núna tekur hann aldrei í ólina

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.12.2008 kl. 01:45

9 Smámynd: Tiger

  Hahaha ... þú ert óborganleg sko! Veit svo sem ekki alveg hvað ég myndi gera ef ég myndi finna rass sí svona á götunni - líklega myndi prufa að sparka í ann ... neinei ussuss - svona á mahrr ekki að gera sko !! haha!

Ég skellti bara uppúr þegar ég las þessa færslu hjá þér Ragnheiður mín - takk fyrir þetta!

Knús og kreist inn í nýja viku ljúfust...

Tiger, 2.12.2008 kl. 02:23

10 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

hahaha nú hló ég upphátt..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 2.12.2008 kl. 19:12

11 identicon

Góð

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 20:50

12 Smámynd: Sigrún Óskars

þú kannt að koma fyrir þig orði - hrikalega ertu fyndin.  Ef ég sé rass í hverfinu, þá veit ég hvar hann á heima . knús yfir

Sigrún Óskars, 2.12.2008 kl. 21:45

13 Smámynd: Brynja skordal

 frábær færsla ég vind bara spikið úr fötunum þegar ég kem heim þú ert yndi kona knús inn í daginn þinn Elskule

Brynja skordal, 3.12.2008 kl. 13:18

14 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég skellihló

Kristín Katla Árnadóttir, 3.12.2008 kl. 15:48

15 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þú hefur frábæra kímingáfu. Flott færsla.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 3.12.2008 kl. 23:30

16 Smámynd: Tiger

Hmmmm ... ekki ennþá búin að finna rassinn? Týndist ann ekki annars? 

Tiger, 4.12.2008 kl. 02:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband