Hérna megin
28.10.2008 | 13:44
ennþá en það er eiginlega bara tæknilega.
Búin að vera voða leið yfir þessu öllu saman og kvíðir mikið fyrir framhaldinu, ég held að ég sé lögst í smásjálfsvorkunn. Þar vil ég ekki vera. Er að finna mér leið upp úr því.
Það virðist vera sífellt að koma betur fram að fullt af fólki vissi hvað var í vændum en þagði. Steinþagði.
Ég vil losna við eftirtalda:
- ríkisstjórnina (en ekki fyrr en ró er komin á, nenni ekki meiri æsing í bili)
- seðlabankastjórn og bankaráð hans
- Alla í Fjármálaeftirlitinu
- Alla yfirstjórn allra bankanna og þar á meðal alla "nýju" bankastjóranna sem voru hvorteð er innanbúðar áður.
5.Alla þingmenn Framsóknar,Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar vegna aðildar.
6. Alla forsvarsmenn lífeyrissjóðanna fyrir fjárhættuspil (tillaga frá Hrönn)
Pirruð á ástandinu ? Nei afhverju heldurðu það?
- Þetta fer samt talsvert fyrir ofan garð og neðan, enda hef ég mun verri krísu um að hugsa.
Athugasemdir
....og ef ég má lengja listann af fólki sem þarf að losna við. Stjórnarmenn lífeyrissjóða - hvernig dettur þeim í hug að vera að gambla með mitt fé? Ég hef ekkert um það að segja hvort ég borgi í lífeyrissjóð en fjandakornið að ég vilji vera í áhættufjárfestingum með þann pening!!
Ennfremur vil ég nefna að mér þykir ósköp vænt um þig
Hrönn Sigurðardóttir, 28.10.2008 kl. 13:59
Sömuleiðis Hrönn mín, sömuleiðis.
Tek undir með þér og svo gleymdi ég hverjum einum og einasta útrásarvíking ! Ji minn eini...
Ragnheiður , 28.10.2008 kl. 14:04
Mér þykir líka vænt um þig og Hrönnsluna reyndar líka sem er auðvitað stórkostlega merkilegt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.10.2008 kl. 14:18
Ég mundi líka vilja sjá ýmsar breytingar á ýmsu þarna í ráðum og stjórnum og hvað þetta heitir allt saman
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 15:54
Knús knús og ljúfar kveðjur:)
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.10.2008 kl. 16:01
Sammál, það má sko losna við ansi marga, segja þeim upp hið fyrsta, það má líka byrja á að Ríkisstjórn fari sjálf að spara með ýmsum hætti... Þvílíkt bruðl hingað og þangað...........Og það má lækka launin við marga. Held að það þurfi einhver sem ekki hefur haft og mikið fé milli handana að taka aðeins til, sú manneskja veit hvar er hægt að spara. Knús til þín
Erna Friðriksdóttir, 28.10.2008 kl. 16:19
Ég gæti alveg bætt fullt við þennan lista.....en það er ágætt að byrja einhverstaðar.
Knús á þig og þína Ragga mín
Sigrún Jónsdóttir, 28.10.2008 kl. 16:43
Hér geysist ég fram á ritvöllinn.... átta mig á því hálfa leiðina... að ... það eina sem ég ætlaði í raun að skrifa er ... Jákvætt innlitskvitt :-)
Einar Indriðason, 28.10.2008 kl. 17:27
Ég tek undir að heldur vildi ég 100% verðbólgu, kreppu og atvinnuleysi en að ganga í gegnum það sama og þú horfist í augu við þessa dagana. Stóóóóórt knús.
Helga Magnúsdóttir, 28.10.2008 kl. 19:24
Knús á þig.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 28.10.2008 kl. 19:36
Heykvízla & haglabyzza gjörvallann liztann ...
Steingrímur Helgason, 28.10.2008 kl. 20:13
Daggardropinn, 28.10.2008 kl. 21:04
Góður listi hjá þér og svo mætti lengja hann í ýmsar áttir. Hef saknað þín af blogginu undanfarna daga. Knús knús.
Marta smarta, 28.10.2008 kl. 22:49
Sæl, já þetta er nú meira ófremdarástandið. Ég er að drepast úr áhyggjum og svo sá ég á mbl.is núna rétt áðan mynd af flóttamanni í Afríku með litla barnið sitt á öxlinni ásamt öllum eigum sínum og ég bað hann í hljóði afsökunar. Ég ætti að skammast mín, sit hér feit og södd inni í heitu húsinu mínu. Já lífeyrissjóðirnir, þeir eru náttúrulega ömurlegir. Þeir settu náttúrulega lögin sem leyfa þeim að fjárfesta eins og þeir gerðu. Áttu náttúrulega að vera bara með allt í innlánum. Til hvers eru þessi lög sem leyfa þeim að fjárfesta í skuldabréfum fyrirtækja ? Auðvitað áttu þeir að vita að allt myndi hrynja í einu, allt klabbið. Og þetta fólk í Fjármálaeftirlitinu, hafa víst verið um 30 manns þar að jafnaði undanfarin ár (miðað við 150 á Fiskistofu), það hefði nú alveg getað komið í veg fyrir að allt hrundi. Það ætti bara að standa fyrir aftan axlirnar á öllu banka, lífeyrissjóða, vátryggingarliðinu og passa hvernig það vinnur, hlusta á hvert símtal. Svo myndi ég setja á listann alla þá sem kjósa áfram þessa vitleysingja á Alþingi. Og líka landsmenn sem fóru á algjört neyslufillerý og voru að drepast úr græðgi, allir vildu græða og vera flottari en hinn. Og líka forseta Íslands, hann vantar á listann.
Svo fyrir utan þetta allt þá vona ég að allt fari vel hjá honum stráksa þínum. Hugsa til þín og ykkar. Kveðja, Steinvör
Steinvör (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 00:23
Listinn er góður en ófullnægjandi Ég vona að strákurinn þinn standi sig vel, og mamma hans líka.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.10.2008 kl. 00:57
Maddý (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 08:42
Knús
Svanhildur Karlsdóttir, 29.10.2008 kl. 09:29
Þetta er ljótt ástand ... sorglegt og ljótt. Blessun til þín, Ragga.
Hugarfluga, 29.10.2008 kl. 14:17
Held með þér.
persóna, 29.10.2008 kl. 15:17
Það eru margir sem fengju að fjúka ef ég hefði einhverju að ráða þarna á háu þingi voru. Sammála því að listinn sé mjög góður en fleiri mættu vel bætast á hann ...
Knús á þig Ragnheiður mín - vonandi hefur þú það ljúft! Megi allt annað ganga upp sem best í þínu ljúfa horni ..
Tiger, 29.10.2008 kl. 16:19
Anna Margrét Bragadóttir, 29.10.2008 kl. 18:37
ég vona svo innilega að allt gangi vel hjá ykkur - sendi góðar hugsanir í þína krísu og stórt knús
Sigrún Óskars, 29.10.2008 kl. 19:01
Ertu heima, ætlaru að koma í beina útsendingu - eða ertu í kaffi einhvers staðar í Breiðholtinu?
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 29.10.2008 kl. 21:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.