Skroppið til dýralæknisins

í dag. Strákarnir mínir fara árlega til dýró til að fá ormalyf og þær sprautur sem hvuttar þurfa að fá.

Við Steinar glottum við tönn þegar við ókum innkeyrsluna að húsi dýró. Á kantinum þrammaði brúnaþungur krummi, á svipinn eins og dýró hefði skellt hitamæli undir stélið.

Þegar við komum inn þá voru fáir en stuttu seinna birtist háklassadama, ljóshærð með slaufur í feldinum sínum. Svaka skutla. Mínir menn góndu uppnumdir á hana en henni leist nú ekki vel á þetta stóru svörtu hlunka og gerði hvellar athugasemdir við þá. Lappi tók það nú ekkert inn á sig en Keli gerði sig eins lítinn og hann gat og skalf á stóru beinunum sínum. Eigandi skvísunnar glotti.

Þarna var líka fallegur kisi í fangi eigandans. Ég þakkaði fyrir að mínir fá ekki flog við að sjá kisur. Þeir litu á manninn með kisuna en héldu svo áfram að spá í skvísuna fallegu.

Kelmundur fór fyrst upp á borðið, það var kíkt upp í hann og í augun og eyrun. Allt í lagi með það allt. Kúlan á fætinum skoðuð og úrskurður kom, varta ! Hún taldi engin tormerki á að taka þetta af honum ef hann þyrfti einhverntímann í aðgerð út af einhverju en það væri þó aðallega fegrunaraðgerð enda gerði þetta honum ekkert til. Þá kom að því versta í heimi ( að áliti Kela) honum er sama um kreppu og álag, en hann er brjálæðislega hræddur við að láta klippa á sér klærnar. Þær voru orðnar ansi langar. Það er annaðhvort að klippa þær eða lakka þær sagði dýró.

Steinar hélt Kela sem skældi af hræðslu og með eins sannfærandi hætti og hægt var. Hann varð tárvotur niður allar kinnar, grey kallinn. Núna heyrist varla í honum hér á parketinu en sá var feginn þegar klærnar voru búnar og hann mátti fara á gólfið aftur. Lappi gelti á gólfinu stórhneykslaður á meðferðinni á Kela bróður sínum. Lappi á Kela og það má ekki meiða Kela !!

Næst var það Lappi. Hann er enn of þungur en hann hefur amk ekki bætt neitt meira við sig. Dýró mælti með að raka hann niður, hann er með svo leiðinlegan feld. Fer í það bráðlega. Hann var í ágætu lagi en þó, hann er kominn með gigt greyið og er farinn að stirðna í fótum sérstaklega er annar afturfóturinn verri en hinar þrjár lappirnar.

Við ræddum það á heimleiðinni að Lappi fær að vera til meðan hann er ekki kvalinn. Um leið og hann fer að eiga bágt þá viljum við frekar láta svæfa hann, hann er svo mikill vinur okkar að við getum ekki látið hann þjást.

Þeir voru afskaplega fegnir að komast heim aftur og steinsofa núna á gólfinu.

Það er hætta á að þeir verði veikir af lifrarveikisprautunni en það stendur bara í sólarhring og kemur þá strax sagði dýró.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Æ þetta hefur verið mikil raun fyrir Kela og ekki er gott að Lappi sé með gigt. Blessaðir karlarnir.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 11.10.2008 kl. 12:25

2 Smámynd: M

M, 11.10.2008 kl. 12:29

3 identicon

Þetta minnir mig á að ég á eftir fara með bæði hundinn og köttinn.

Knús og klús  

Kidda (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 13:56

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Strákanginn! Minn er líka svona með klærnar! Það má enginn koma við fæturnar á honum!

....en ég hef líka oft sagt það - það er ekki sérvizka nema hún sjáist

Hrönn Sigurðardóttir, 11.10.2008 kl. 14:44

5 identicon

oh my. Ömmingja kallarnir. En þetta þarf víst að gera. Búin að fara með báðar skvísurnar á  þessu heimili. Sprautaðar og fínar. Og Ragga, ótrúlega gaman að lesa hjá þér þegar þú skrifar í þessum dúr. Þú yrðir örugglega góður rithöfundur.  Mér fanst ég vera að lesa skemmtisögu....  Kveðja á Björnin...

Gunnhildur (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 15:26

6 Smámynd: Sigrún Óskars

 elsku karlarnir - fegnir að vera búnir hjá dýró. En fékk krummi ekki að fari inn til dýró? bara hafður útá plani.

góða helgi í blíðunni.

Sigrún Óskars, 11.10.2008 kl. 15:38

7 identicon

Æi snata greyin.Minn gamli Labrador var til á meðann hann var ekki mjög kvalin af þeim sjúkdómi sem hann fékk.En um leið og við urðum vör við að lífsgæðin hans döluðu fékk hann að kveðja.Það var erfið ákvörðun að vera ekki eigingjarn.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 18:28

8 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Æj elsku voffarnir hann Lappi er alveg einstakur og á mínum bæ er þetta alveg spes voffi og talað um hann með virðingu,mér finnst Keli líka frábær á sinn hátt en ég hafði gaman af því þegar þú sagðir frá kisunni því Sokkur hitt hund um daginn og svo þegar ég fór að skima í kringum mig hvað hefði orðið af honum sá ég hann þrefaldan uppi á bílskílinu í næsta húsi alveg skelfilega hræddur.

Knú til ykkar á Nesinu frá okkur hér í Grindavíkinni.

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 11.10.2008 kl. 21:57

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi svo sætt að lesa um vóffana.  Algjörar dúllur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.10.2008 kl. 23:45

10 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Minn hvutti fór í sína árlegu sprautu og ormahreinsun í síðasta mánuði, á þriðjudaginn kemur verður hópferð með alla 5 kettina í sínar sprautur og ormahreinsun.  Ég hlakka ekki til að fara með 5 ketti í 3 búrum til dýralæknisins.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.10.2008 kl. 00:29

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 12.10.2008 kl. 09:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband