Þrælbein

og önnur bein.

Ástand mála er ekki gott. Nú hvessir almúginn í umferðinni, á fokdýru bensíni, augun á þreytulegu plebbana á dýru bílunum. Það er gjörsamlega búið að kafsigla okkur hér með bullútrás og öðru veseni hjá þeim sem töldu sig eiga heiminn. Það kom í ljós að þeir áttu hann ekki skuldlausan.

Skelfingu lostið fólk hefur hrúgast í Bónus og hamstrað, ég gerði það ekki. Ég var að sinna Mr Erli sem stappaðist um allt höfuðborgarsvæðið með aurana sem hann reif út úr bankanum á föstudaginn. Systir aðstoðaði við að reyna að koma Erli heim og upp í bæli svo honum tækist að þræla sér á Korputorg í dag. Ekki gengur að fara í svona nýja verslunarmiðstöð nema bara allra fyrstu dagana sem kvikindið er opið. Við systur fórum ekki heldur þangað.

Við tókum samt nýjan pól í hæðina hér á heimilinu, ég og nýuppgötvaða húsmóðirin, við ætlum að kaupa eins mikið af íslenskri vöru og við komumst upp með.

Annars erum við góð....

Hm já meðan ég man, maðurinnsemégtekekkimarkálengur, sagði áðan að þessi heimskreppa nú væri verri en sú sem varð á fjórða áratugnum. Þá varð ég hissa, hef alltaf séð þá kreppu fyrir mér sem hreinan hrylling. En svo rann upp fyrir mér ljós, það var verið að tala við manninnsemégtekekkimarkálengur.

Enn betra....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Nei ástandið er hreint ekki gott bara hreint út sagt ömurlegt því miður.

Eyrún Gísladóttir, 5.10.2008 kl. 19:49

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

"manninnsemégtekekkimarkálengur" Nákvæmlega!!

Hrönn Sigurðardóttir, 5.10.2008 kl. 20:44

3 Smámynd: Sigrún Óskars

ég kaupi einmitt eins mikið íslenskt og hægt er

"manninnsemégtekekkimarkálengur" - þú ert óborganleg

Sigrún Óskars, 5.10.2008 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband