Að taka beygju í lífinu
27.8.2008 | 01:02
það er hverjum manni hollt og nú ætla ég að taka skarpa beygju. Ég er þreytt á sjálfri mér og ætla að gera eitthvað til að mér líði betur í eigin skinni.
Ég er þreytt á endalausum vonbrigðum og sársauka en veit hvert ég get farið með þetta. Ég þarf að leggja frá mér byrðarnar.
Það tekur bara 1-2 tíma einu sinni í viku og jafnast ekki á við neitt.
Það þyrlast svo margt um í höfðinu. Ég þarf að koma því í skipulagða röð og koma sárunum til að gróa, sjálf ríf ég mig niður og það er ekki til bóta.
Minn stíll er ekki að gefast upp og það get ég auðvitað ekki gert núna.
Ég hef staðið í sömu sporum núna nokkuð lengi og vil fara að komast upp úr farinu. Það tekst en ég get það ekki ein. Það þurfti ég að viðurkenna fyrir mér og öðrum.
Nú ætla ég að halla mér og sjá hvort ég verði ekki bjartsýnni á morgun, mér leiðist að vera svona svartsýn og niðurdregin.
Til minnis : það er alltaf ljós við enda ganganna
Athugasemdir
Kærleikskveðja
Guðrún (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 01:13
Ég þarf líka að taka svona skarpa beygju, en ég er alltaf að láta annað trufla mig. Allskonar óþarfa sem engu máli skiptir. En ég mun gera það alveg á næstunni.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.8.2008 kl. 01:15
Elsku Ragga, Þú ert búinn að gefa stefnuljós og þá er að vinda sér í beygjuna. Gangi þér vel og góða nótt
Erna, 27.8.2008 kl. 03:31
Gangi þér vel
Anna Gísladóttir, 27.8.2008 kl. 05:01
Helga skjol, 27.8.2008 kl. 06:30
Ég er búin að vera að lesa bloggið þitt og mikið rosalega ertu heilsteypt og sterk kona, ég er betri manneskja eftir lesturinn hér.
Gangi þér vel kæra Ragga.
Elísabet Sigurðardóttir, 27.8.2008 kl. 08:47
alva (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 08:50
Þú hefur þennan eiginleika Ragga að takast á við hluti, enda eins gott í þínu tilfelli. Þú ert sterk kona og ég veit að það sem þú hefur ákveðið að gera fyrir sjálfan þig er ábyggilega það besta í stöðunni.
Mér finnst þú frábær kona.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2008 kl. 09:53
Ég hef fulla trú á að þér, Ragga. Það skín í gegn hversu heilsteypt þú ert og sterk, en þó maður sé sterkur getur maður ekki endalaust bætt á byrðarnar. Maður þarf stundum að fá að setjast niður og pústa. Láttu mig vita ef ég get orðið þér að einhverju liði.
Hugarfluga, 27.8.2008 kl. 10:04
Jákvætt innlitskvitt!
Einar Indriðason, 27.8.2008 kl. 10:48
Ljós fyrir frábæra konu
Sigrún Jónsdóttir, 27.8.2008 kl. 10:54
gangi þér vel Ragnheiður og þú ert dugleg og sterk kona. Kær kveðja frá mér. Guðný.
Guðný Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 11:43
Þú ert svo sannarlega sterk kona, ég hef trú á því að þú eigir eftir að baða þig í ljósinu við enda gangnanna.
Sigrún Óskars, 27.8.2008 kl. 11:54
Já, þú skuldar sjálfri þér að láta þér líða vel.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 27.8.2008 kl. 12:42
Marta smarta, 27.8.2008 kl. 14:07
Ég las í góðri bók að setningin " ég sjálf, eða fyrir mig" er EKKI blótsyrði...
Margrét Ingibjörg Lindquist, 27.8.2008 kl. 16:08
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 21:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.