Búinn !

Munið þið eftir þessum ? Nú kemur auðvitað skýringin á því hversu langan tíma þetta tók, dóninn neitaði að hvolfa í sig laxerolíu. Hann hefur kannski haldið að löggan myndi gefast upp á biðinni og senda hann heim með dópið....öhhh...nei.

Vísir, 16. jún. 2008 11:01

Átta hundruð grömm af kóki komu úr iðrum Hollendings

mynd

Hollendingurinn, sem hefur setið sveittur undanfarnar tvær vikur við að losa smokka fulla af kókaíni úr iðrum sínum, hefur lokið sér af. Og afraksturinn er rétt tæp 800 grömm af kókaíni. Þetta staðfesti Eyjólfur Kristjánsson hjá Lögreglunni á Suðurnesjum í samtali við Vísi.

Hollendingurinn, sem er rúmlega fertugur, var gripinn á leiðinni inn í landið fyrir rúmum tveimur vikum og kom í ljós við röntgenmyndatöku að hann hafði gleypt smokka sem grunur lék á að innihéldu eiturlyf. Illa gekk að koma smokkunum niður og hjálpaði ekki að hann neitaði að taka hægðalosandi lyf. Nú hefur hann hins vegar lokið sér af og situr í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

úff ekki vil ég fá það "djobb" að skeina eftir svona bið...

Ásta Björk Hermannsdóttir, 16.6.2008 kl. 11:47

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

jakk!

Hrönn Sigurðardóttir, 16.6.2008 kl. 11:51

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ætli þetta hafi loksins gengið hjá honum þegar hann fór með klósettvísur ? 

Anna Einarsdóttir, 16.6.2008 kl. 11:56

4 Smámynd: Hulla Dan

öhhh þetta er eiginlega mjög fynndin lesning, og alvarleg auðvitað.
Ekki var þetta orðað svona í blaðinu... eða hvað???

Þetta er ekkert smá magn!
Hvað er fólk eiginlega að hugsa? Kræst.

Hulla Dan, 16.6.2008 kl. 11:56

5 Smámynd: Ragnheiður

fréttin er afrituð af vísi bara inngangurinn er minn hehe

Ragnheiður , 16.6.2008 kl. 12:07

6 Smámynd: M

Hefði skilið ef þetta hefði verið sá á áttræðisaldrinum sem smyglaði með Norrænu  og hægðirnar eftir því

M, 16.6.2008 kl. 12:20

7 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

ÞAð er kúkalikt af þessu máli verð ég að segja

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 16.6.2008 kl. 12:24

8 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Það sem menn leggja á sig fyrir dópið...þetta er eins og ganga með tifandi tímasprengju inn í sér......

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 16.6.2008 kl. 12:40

9 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Það hafa þó nokkrir látist eftir að hafa gleypt svona drasl. Þetta sýnir bara hvað fólk er reiðubúið að gera fyrir peninga. Ekki hefði ég viljað taka efnin úr smokkunum  Oj bara.

Helga Magnúsdóttir, 16.6.2008 kl. 13:53

10 Smámynd: Mummi Guð

Greyið karlinn. mér finnst að það ætti að sýkna karlinn, hann er búinn að tala út sína refsingu. Búinn að sitja sveittur á klósettinu í tvær vikur að kúka!!

NOT. Þetta er gott á hann.

Mummi Guð, 16.6.2008 kl. 19:43

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Búin!

Sigrún Jónsdóttir, 16.6.2008 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband