Myndin með fréttinni
22.4.2008 | 12:20
Hvurn skrattann er Sturla með á hausnum ?
Það var samt gott að sjá þetta í fréttunum, ég fer þá ekki fyrr en seinna í dag á pósthúsið.
Annars á Lappi afmæli í dag. Hann kom í gær með þá hugmynd að bjóða köttum hverfisins í afmæli en ég taldi hann af því. Það hefði verið fjörugt afmæli
Hann er 5 ára í dag.
Bílstjórar stefna að Bessastöðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já ég held það bara
Ragnheiður , 22.4.2008 kl. 12:32
Mig langar að vita hver tróð þessu á höfuðið á aumingja manninum, trúi varla að hann hafi gert það sjálfur.
Helga Magnúsdóttir, 22.4.2008 kl. 12:33
Ég veina úr hlátri, maðurinn hefur greinilega húmor fyrir sjálfum sér.. nema hann hafi meitt sig og sé að nota klútinn fyrir plástur
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2008 kl. 12:37
Til hamingju með afmælið Lubbi. Vil fá menn eins og Sturlu í landsmálin.
Soll-ann, 22.4.2008 kl. 12:52
Ég er stórkostlega yfirmáta innilegar gjörsamlega hneykslaður á þessum rúnti að Bessastöðum, skil ekki svona. Það eina sem broslegt er yfir þessu er jú höfuðfat Stulla,meira er það ekki. Takk.
Kjartan Pálmarsson, 22.4.2008 kl. 12:57
Hálf er þetta höfuðfat nú ósóma-bin-lad-legt....
Steingrímur Helgason, 22.4.2008 kl. 13:02
HAHAH nema hann sé að fela hárið þar sem hárið á honum var umræðuefni í útvarpsþætti um daginn. Því var lýst eins og hann væri alltaf nýkominn úr bælinu, með svefngreiddann skallann En hann er flottur.
M, 22.4.2008 kl. 13:49
hahahaha ferlega flott! Og til hamingju með fimmuna og Lappann
Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 14:06
Til hamingju með Lappa Ég á hund sem verður 1 ára 29. júlí og hún dóttir mín sem er 8 ára er búin að plana afmælið, hún er búin að telja upp alla hunda sem við þekkjum sem eiga að koma, þannig að þið getið rétt ýmindað ykkur hvernig fjörið verður hérna þann dag ( EF HÚN FENGI AÐ RÁÐA )
Guðborg Eyjólfsdóttir, 22.4.2008 kl. 14:51
Hehe þetta höfuð fat er bara fyndið..
Til hamingju með Lappa nú finnst mér að allir eigi að klappa fyrir Lappa en hann ekki fyrir fólkið.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 22.4.2008 kl. 15:13
ÚPPPs ætlaði að enda þetta með KLAPP KLAPP fyrir Lappa.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 22.4.2008 kl. 15:14
Til hamingju með Lappann þinn.
Fjóla Æ., 22.4.2008 kl. 15:18
Uss... hálfgerð sjóræningjahúfa hjá kappanum þarna. Jú, líkt og Einar sagði er þetta örugglega eitthvað tengt komu Abbas. Til lukku með Lappann þinn ... og knús í daginn þinn Ragnheiður mín.
Tiger, 22.4.2008 kl. 15:35
Er ekki búið að vera tala um hann Sturlu og hans menn sem einkonar hryðjuverkamenn?... er hann þá ekki bara að lifa upp í hlutverkið?.... Svo má fara og rífast yfir því hvort þetta séu náttúrulega ekki bara fordómar í manninum og kannski bara stinga honum í fangelsi fyrir þessa hegðun... sko að vera með ljótan túrban á hausnum... annað eins h efur nú gerst
Signý, 22.4.2008 kl. 15:47
Signý, mér fannst höfuðfatið brilliant. Verst að fjöldamorðinginn sá það ekki, sérsveitin lokaði aðkeyrslunni að Bessastöðum.
En hey, ég sá trukkamótmæli í fyrsta sinn hehe. Varð að vísu að brölta upp á stól en ég sá amk glitta í þá
Ragnheiður , 22.4.2008 kl. 16:14
Til hamingju með Lappa þinn
Linda litla, 22.4.2008 kl. 16:16
Knús og afmæliskveðja til Lappa.Myndin er frábær,svo við hæfi hehehehe
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 18:46
Lappi á sama dag og Pálmi minn.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 22.4.2008 kl. 19:10
Til hamingju með Lappa þinn. En Sturla og höfuðfatið er bara flott
Kristín Katla Árnadóttir, 22.4.2008 kl. 19:41
Sendu Lappa mínar bestu afmæliskveðjur og bestu kveðjur til þín
Sigrún Óskars, 22.4.2008 kl. 19:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.