Þetta er besta frétt dagsins
17.4.2008 | 21:48
Snáði hefur verið feginn að komast heim til sín, krakkaskinnið.
Tilgangslausasta fréttin á móti var þessi með að Guðmundur áður í Byrginu væri orðinn afi. Hann persónulega er til skoðunar hjá yfirvöldum, það er lágkúra að draga börnin hans með í það.
Ég er enn með þessa helv. flensu sem er víst á undanhaldi samkvæmt FarsóttarHaraldi. Markhópurinn varð víst mun eldri með þessa síðustu en hinar á undan, alveg upp í 46 ára!
Djö skal ég næst láta bólusetja mig þó ég steinliggi af sprautunni líka eins og ég hef gert.
Skrapp að borða með Steinars fólki áðan, afskaplega notalegt. Þau voru að fara í leikhús og við hittumst öll áður. Tengdamamma náði að snúa á allan hópinn og borgaði matinn. Við Steinar ætlum að snúa á þau til baka við fyrsta tækifæri. Pabbi Steinars á afmæli í dag, hann er 75 ára blessaður.
Danski drengurinn fundinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvaða foreldrar skíra barnið sitt FarsóttarHaraldur ?
Gott hjá þér að fara út að borða. Enn betra að láta snúa á sig.
Anna Einarsdóttir, 17.4.2008 kl. 22:04
Já þetta voru gleðifréttir með litla snáðann
Vonandi ferðu að hressast.
M, 17.4.2008 kl. 22:14
Já gott að hans að fannst Blessað barnið. Ég vona að þú farir að lagast en þessi flensa er mjög vond.
Knús inn í nóttina
Kristín Katla Árnadóttir, 17.4.2008 kl. 22:41
skellti inn mynd af rótinni á síðunni minni
M, 17.4.2008 kl. 22:42
Já mér leið mjög vel þegar ég las þessa frétt
agaóðan bata
Eyrún Gísladóttir, 17.4.2008 kl. 23:01
Það er gott að hann er fundin heill á húfi.
Maðurinn minn á líka afmæli í dag ;)
Góðan bata
Anna Margrét Bragadóttir, 17.4.2008 kl. 23:51
Til hamingju með tengdó. Yndislegt að drengurinn fannst heill á húfi.
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.4.2008 kl. 23:57
hehehe segi nú eins og Anna! Er þetta ekki tilvísun á einelti?
Hrönn Sigurðardóttir, 18.4.2008 kl. 00:01
Æj hann þarna kall...Haraldur Briem hjá Farsóttardæminu þarna hjá Landlækni hehe...vonandi hefur hann ekki þá þegar verið kominn með þennan rosa farsóttaáhuga
Ragnheiður , 18.4.2008 kl. 00:11
Já það var besta frétt sem ég hef heyrt lengi að drengurinn komst heim aftur!!
Maddý (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 09:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.