á skjálftavaktinni

hér er trukkur að vesenast fram og til baka í götunni og voffar eru ekki sáttir við það. Öll ný hljóð í götunni valda háværum mótmælum á mínu heimili. Ég myndi ekki vilja vera sá morri sem kæmi í mína götu í vafasömum tilgangi.

Svo passa þeir af alefli bæði bakhúsin hjá mér, svo duglega stundum að íbúarnir sjálfir mega ekki hreyfa sig.

Það verður frumsýning á eftir, á hárinu. Nei ekki söngleiknum illarnir ykkar...hárinu á mér í vinnunni. Nú er að sjá hvort einhver kvartar yfir því að rótin er horfin,krullurnar og allt í einum lit, engar gráar strípur efst. Maður veit aldrei með kallana sem ég vinn með, undarlegir stundum hehehe

Nú er búið að dæma í Pólstjörnumálinu og fengu þeir þunga dóma. Ég myndi vilja sjá dómara nýta betur refsiheimildir í árásarmálum, nauðgunum og slíkum málum. Við getum ekki alltaf sagt svei þér við menn sem ganga um berjandi mann og annan.

Eins og ég sagði við mína krakka ; slæm hegðun hefur vondar afleiðingar.

Svo erum við með flóttamann á Íslandi, það er nýtt. Manni finnst það nú hálfgert æði að ætla að stinga -og allir þekkja mann í sjón.

Nú man ég ekki meira í bili.....

Með voff!  kveðju.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

VOff voff til þín.  Kallarnir á stöðinni neita örugglega að keyra í kvöld, vilja bara vera á staðnum að horfa á þig.  Hafðu það gott um helgina mín kæra.  Wink 

Ásdís Sigurðardóttir, 15.2.2008 kl. 15:22

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú ert fyrirmyndin mín.... fékk mér nýtt hár líka áðan. 

Anna Einarsdóttir, 15.2.2008 kl. 16:55

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég var að koma úr klippingu og strípum, plokkun og litun og ég er bjútífúl.

Eins og þú auðvitað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.2.2008 kl. 17:39

4 Smámynd: Sigrún Óskars

Þú verður örugglega með alla karlanna inná stöðinni í kvöld, þeir hljóta að verða hrifnir.

Keli sagði ekki orð í morgun, ætli hann sé óánægður með klippinguna mína, ég fór nefninlega í klippingu í gær  Það er bara notalegt þegar hundarnir heilsa manni útá plani. voff-voff kveðjur.

Sigrún Óskars, 15.2.2008 kl. 18:27

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég var líka settur í lagníngu á stofu í dag.

Nauðbeygður, þorrablót um helgina & konudýrið sagðist ekki bjóða mér með, nema ég skæri hár mitt & skegg & rúllaði mér inn á svona kerlíngarlagníngarkruðerí á Agureiriz...

Ég var ófríður fyrir, nú bara sést það betur...

En ég er fyrir þorramat...

Steingrímur Helgason, 15.2.2008 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband