opin augun

Síðasti skiladagur pakka út á land er í það...ómæ....Hjödda mín, ég er ekki búin að kaupa handa ykkur gjöfina. Það vill til að hægt er að senda með rútu eða trukki hehehe...já já fer í dag að redda málum...klús austur.

Sem sagt fer af stað í dag að redda gjöfunum..ætlaði að fara á morgun en núna er hið herfilega tímaleysi að renna upp fyrir mér...maður má ekkert liggja svona í flensu á aðventunni. Ég er svona aaaðeins að byrja að verða stressuð yfir þessu.....bara smá...pínupons...........

ARG

nei nei djók...

en hinsvegar er það ljóst að ég loka ekki að mér fyrir jólin og áramótin. Enn hefur ekki tekist að leysa málið með að opna fyrir alla bloggvinina sem ég ætlaði að hafa þannig að ég verð að leysa það á hinn mátann....lykilorð og þið pantið það í e maili.

Ástæður mínar eru, ja mínar og ég sé til með að upplýsa þær þegar málið verður komið í höfn. Annars breytir það engu, þið eruð ekkert fróðari með að vita það.

Munið eftir að biðja fyrir þeim sem þess þurfa, það tekur ekki langa stund. Smákertaljós á kvöldin.

Ég er eiginlega klumsa, ég er bara að bulla eitthvað hérna, ég hefði ekki átt að skrifa færslu um ekkert....

Dóh...farin ..bless

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fjóla Æ.

Gott að heyra að þú sért farin að hressast aðeins.

Mig langar í lykilorðið á síðuna þína, verð að lesa pælingarnar þínar þær eru eitthvað svo gefandi. Emilið mitt er fjolaa@hotmail.com

Fjóla Æ., 19.12.2007 kl. 15:09

2 Smámynd: kidda

Ert ekki ein um að finna aðeins fyrir smástressi Ég virðist ekki alveg hafa náð því að sannfæra mig um að jólin komi þó svo að allt sé eftir.

Á eftir flestallar jólagjafirnar og er hreinlega að spá í hvort það gangi ekki bara best þannig að skunda af stað á þorláksmessukvöld, fara bara í eina stórverslun og ákveða að ég fari ekki út úr henni fyrr en allt er búið. Hef ekki einu sinni hugmynd um hvað ég á að kaupa handa flestum.

En passaðu þig núna þegar þú ferð út að þér slái ekki niður

kidda, 19.12.2007 kl. 15:17

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er í angarkasti, jólaangistin réðst á mig með ofsa áðan.  Vó, tel upp að tíu og anda út.

Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.12.2007 kl. 15:28

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er bara slök. Sendir þú mér aðgangsorð eða á ég að senda þér meil??  ég gleymi aldrey bænunum bið oft aukalega þegar ég er andvaka. Farðu vel með þign.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.12.2007 kl. 15:39

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Gott að bulla..... bless ! 

Anna Einarsdóttir, 19.12.2007 kl. 17:53

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þú ert indæl. Vona að þú passir að fara gætilega með þig svo ekki þér slái niður!

Hrönn Sigurðardóttir, 19.12.2007 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband