Þið eruð náttlega indæl -viðbót 2

en ég ætlaðist nú ekki til að hérna birtist grátkór, ég er enn bara að spá í þetta...en var líka að spá í öðru.

Hérna er haugur af bloggvinum sem ég les stundum hjá, þeir kvitta aldrei hér og eru ekki í neinum samskiptum við frú Ragnheiði. Ég hef lengi haft hug á að fækka þeim til að ég nái að sinna betur þeim sem hérna vilja vera í samskiptum. Mitt keppikefli var ekki að safna bloggvinum....hér eru þeir allt of margir.

Þeir sem vilja vera hérna áfram listaðir sem bloggvinir verða að gera vart við sig í kommenti við þessa færslu. Öðrum mun ég eyða á næstu dögum. Endirinn verður líklegast að bloggið verður aðeins opið skráðum bloggvinum. Ég mun svo sjá til áfram eftir það.

Eftir því sem ég hugsa þetta betur þá verð ég vissari í minni sök um að loka bara fyrir síðuna þannig að einungis skráðir bloggvinir á nýtilteknum listum geti bloggað. Þið sem ekki eruð skráð á Moggablogg getið þess vegna stofnað síðu þannig að ég geti bætt ykkur við. Síðan má vera tóm en hún ætti að duga til að heimila þennan aðgang.

Ég kann bölvanlega við mig svona frammi fyrir alþjóð með oft persónulega hluti og vil heldur draga mig aðeins meira í hlé.

Fór í mis við kall minn í morgun, reyndi að hringja og hann á tali. Hringdi aftur og hann á tali. Hringdi oftar og hann enn á tali. Ætli þið séuð búin að fatta að honum finnst gaman að tala í símann ? Hann á einn vin sem hann talar rosalega mikið við, konan hans nennir aldrei að tala við hann í símann hohoho. Sé karlugluna úr Ártúnsbrekkunni. Hentist á eftir honum og uppað hlið hans og flautaði á hann og veifaði illilega símanum mínum. Hann segir með varahreyfingum að hann sé í símanum. Hvenær í ferlinu hefði ég ekki átt að fatta það !!! Ók við hlið hans nokkra stund og hvessi illilega á hann glyrnurnar. Hann varð svo héralegur á svipinn að ég sprakk úr hlátri og ákvað að tala bara við hann seinna....Ljóta súpan það að vera með bilaða konu í næsta bíl og eiga svo heima í sama húsi og vargurinn.

Hvað haldið þið að þyki sanngjarn tími að hafa uppi þessa bloggvinahvatningu ? Ég meina svo fólk segi ekki, ég vissi ekki um þetta ?

Sumum finnst áreiðanlega rosa flott að vera með svona marga bloggvini...ég vil hafa þetta öðruvísi, færri bloggvini og betri samskipti við þá. Þannig sýnist mér þetta kerfi virka best.

Ég fékk svo góða heimsókn áðan, bjartur og fallegur snáði, elsta ömmubarnið mitt-Vignir Blær- Hann mátti ekki vera að stoppa lengi, á leið austur með pabba og ömmu sinni. Hann lofaði ömmu að koma bráðum aftur og þá erum við að spá í að leika okkur í tölvunni hennar ömmu. Amma á Wiii leikjatölvu og spilar stundum í henni golf, Bjössi keypti um daginn annan leik í hana sem virðist passa fyrir yngra fólkið. Vignir er eldklár og lærir þetta vísast á undan ömmu sinni. Yndislegur snáði...náði mynd af honum með afa og hann var sko stærri en afinn !

100_0943

Barnið treystir afanum, það sést á fótaburðinum. Þeir eru báðir með hálfundarlegan svip samt. Þið fáið betri mynd seinna.

Hérna kemur svo næstelsti ömmustrákur, Patrekur Máni

100_0886

Prakkaralegur en það held ég að sé bara í ættinni ?

Hérna kemur svo Hilmar minnsti sponninn.....

100_0934

Óttalegt krútt..nýbúinn að spræna út allan ömmusófann. Ömmu fannst það bara fínt, það væri þá ekki eftir en mamman ekki alveg ánægð með barnungann..Hilmar eldri sprændi nú í augað á sér þegar hann var svona lítill. Mamman gólaði ógurlega en pabbinn hinn rólegasti og taldi þetta meinlaust úr svona nýjum leiðslum. Það reyndist rétt vera, barni var ekki meint af.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég var að lesa fyrri færsluna þína og er nú sammála "grátkórnum" að bloggheimar verði ekki þeir sömu ef þú hættir að blogga, svo þú ert vinsamlegast beðin um að halda því áfram!

Huld S. Ringsted, 8.12.2007 kl. 23:26

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, heldurðu að maður viti ekki hvernig á að fólk til að gera eins og maður vill?  Jújú, maður fer að grenja, búhú og bræðir hjörtu.  Annars er ég hér eins og grár köttur, eins og þú hjá mér.  Þó það nú væri Frú Ragnheiður.

Smjútsí

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.12.2007 kl. 23:29

3 Smámynd: Blómið

Ekki er ég skráð sem bloggvinur   Vinsamlega ekki loka mig úti  Please

Blómið, 8.12.2007 kl. 23:37

4 Smámynd: Signý

Stundum bara veit maður ekkert hvað maður á að segja kemur sjaldan fyrir mig... og þó... ég hef nú kommentað eitthvað...

Signý, 8.12.2007 kl. 23:38

5 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Má ég fá að vera áfram? Ég hef svosem ekki náð að kvitta alltaf fyrir mig í hvert sinn, en reyni eftir fremsta megni.....Knús til þín, þú mátt ekki yfirgefa okkur.

Bjarndís Helena Mitchell, 8.12.2007 kl. 23:50

6 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Jæja Ragga mín ! Þú veist að það er alveg bannað að eyða mér elskan  Hafðu það sem allra best

Katrín Ósk Adamsdóttir, 8.12.2007 kl. 23:52

7 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

Hallgrímur Óli Helgason, 8.12.2007 kl. 23:55

8 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þabbbaradona frú Ragnheiður... 

Ég náttla fer fram á að vera minna skorinn ....

Steingrímur Helgason, 9.12.2007 kl. 00:13

9 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

gerðu það???? má ég vera memm

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 9.12.2007 kl. 00:36

10 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég vil sko pottþétt fá að koma í heimsókn til þín áfram, frú Ragnheiður!

Ég gerði þetta sama sjálf fyrr á árinu, að vísu var ég ekki eins kurteis og þú að láta vita fyrirfram áður en ég henti fólki út...

Ég hélt þeim bloggvinum sem "kvittuðu fyrir" innlit, ef svo má segja, með athugasemd. Mér finnst að fólk sem les það sem maður skrifar geti í það minnsta gert vart við sig með broskalli, nú eða skeifu eða litla djöfsa, svona öðru hvoru og einstaka sinnum.

Að vísu hélt ég inni ýmsum sem mér finnst gaman að lesa, þó þeir kvitti aldrei.

Ég raða meira að segja bloggvinalistanum mínum eftir kerfi: Efst þeir sem ég þekki í eigin persónu (augliti til auglitis), næst þeir sem kvitta, svo þeir sem vil lesa, neðstir af þeim eru þeir sem eru með skrípó í staðinn fyrir mynd af SÉR. Neðst er Kristín Ástgeirs, skólasystir mín, sem hefur ekki bloggað síðan í september, hún er í fallhættu!

Læt þessari ritræpu á síðuna þína lokið, nóg er nú samt á minni eigin og annarra. (Já, konan verður smá manísk í skammdeginu!).

Greta Björg Úlfsdóttir, 9.12.2007 kl. 00:48

11 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

*auðvitað les ég allt sem þeir bloggvinir mínir sem kvitta skrifa!

Greta Björg Úlfsdóttir, 9.12.2007 kl. 00:50

12 Smámynd: Benna

Úpps sorry sætust hvað ég hef verið löt við að kvitta hef bara eiginlega ekkert verið að lesa hjá neinum búið að vera geggjað að gera....en ég vil alls ekki detta út af listanum þínum því þú ert mér mjög mikilvæg sem bloggvinkona og ég virði og hlakka ávallt til að lesa þín komment á minni síðu:)

Skal lofa að vera duglegri

Benna, 9.12.2007 kl. 00:55

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég þarf nú varla að segja þér að ég vil vera með........ en segi það samt. 

Anna Einarsdóttir, 9.12.2007 kl. 01:30

14 Smámynd: Brattur

Ragnheiður... ég er nýr bloggvinur... og vil halda áfram... hef reyndar verði latur að skrifa athugasemdir hjá bloggvinum mínum, en ný skal bætt úr því...

Brattur, 9.12.2007 kl. 01:36

15 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hér er ég, hér er ég, góðan daginn, daginn, daginn ...

Guðríður Haraldsdóttir, 9.12.2007 kl. 01:50

16 identicon

Rétti upp hend !!  Æ læk tú stei on vúman.

Er haggi annars ?

Guðrún B. (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 01:51

17 identicon

Ég viðurkenni að ég er löt að kvitta, en kíki á þig daglega. Þó ég sé ekki ein af moggabloggurunum, þá væri gaman að fá að fylgjast með þér áfram, bæði hér og á Alvörunni.

p.s. Ef þig vanta aðstoð fyrir jólin, hóaðu þá bara í mig, er vön að tuskast með moppuna.....lol....

fyrst karlarnir þínir svöruðu ekki áskoruninni

AnnaS (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 07:58

18 identicon

Hæ Ragga.

Ég les alltaf bloggið þitt,þú ert góður penni, gangi þér vel í baráttunni

kveðja úr vesturbænum

Jóhanna (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 09:00

19 Smámynd: Fjóla Æ.

Alveg myndi ég gjarnan vilja vera áfram bloggvinkona þín. Skrifin þín veita mér einhverskonar tilfinningu sem ég get ekki útskýrt. En ég þarf að minnsta kosti að kíkja reglulega hvort að þú hafir skrifað eitthvað nýtt. Kannski finn ég einhverskonar samsvörun við þig, mér finnst að minnsta kosti ég skilja hvað þú ert að díla við og að þú skiljir mig sömuleiðis.

Þetta er orðið of flókið þannig að ég bið að heilsa þér og óska þér góðs dags í dag og alla daga. 

Fjóla Æ., 9.12.2007 kl. 10:12

20 identicon

Ég kvitta ekki við  hverja færslu kannski en ég kíki og les og hverjum degi. Má ég vera lengur

Bryndís R (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 11:30

21 Smámynd: HAKMO

Sæl, ég kíki nú reglulega á þig en finnst ég ekki hafa neitt til málanna að leggja . Vil endilega fá að vera áfram

HAKMO, 9.12.2007 kl. 11:37

22 identicon

Sæl nafna,

Ég kvitta sjaldan, en kem hér vid næstum daglega. Er ekki med blogg sjálf, jú annars er búin ad stofna blogg en ekki haft mig í ad skrifa neitt enn. Fylgist med thér og hugsa oft til thín og thinna.

Kvedja Ragnheidur

Ragnheidur (ókunnug) (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 11:46

23 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er hér, verð hér og fer ekki neitt.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.12.2007 kl. 12:06

24 Smámynd: kidda

Ég segi nú bara eins og margir, ég fer ekki neitt.

Leitt að þeir svöruðu ekki áskoruninni en jólin eru ekki komin. Kannski hefur hlaupið í þá þrjóska en trúi ekki öðru en að þessar elskur muni standa sig mun betur en mínir menn þegar upp verður staðið

Knús og klús

kidda, 9.12.2007 kl. 12:21

25 Smámynd: Solla

Mamma ekki hætta að blogga, þá verð ég alveg skemmilögð. Þetta er það fyrsta og seinasta sem ég geri á daginn, ath hvernig mamma hefur það.

Og plísssss ekki henda mér út, þó ég se léleg að skrifa athugasemdir.

Love you. Hilmar og Vignir biðja að heilsa ömmu

Solla, 9.12.2007 kl. 12:51

26 identicon

 Haltu áfram stelpa, ég kvitta ekki alltaf.....

Kveðja.......

Jóhanna (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 13:30

27 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég vona að þú hendir mér ekki út ég fer ekki fet.

Kristín Katla Árnadóttir, 9.12.2007 kl. 13:37

28 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Held ég ætti að gera það sama og enn færri kvitta hjá mér. Mjög fáir ef ég nefni sorg. Þá ert þú og nokkrir sem kvitta. Takk fyrir það.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 9.12.2007 kl. 13:42

29 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Elsku Ragga, ekki eyða mér út Ég kvitta alltof sjaldan hjá öllum og er líka ógó ódugleg að blogga sjálf.......Þú ert ein af mínum uppáhaldsbloggvinum og ég les samt alltaf hjá þér og hugsa hlýtt til þín. Knús á þig mín kæra

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 9.12.2007 kl. 15:09

30 identicon

Ég les alltaf en kvitta sjaldnast einhvern vegin. Stundum hef ég bara ekkert að segja þótt ég lesi.

En þetta er svipað hjá mér, fullt af fólki sem rekur inn nefið en lætur ekki af sér vita en það angrar mig reyndar ekki neitt. 

Ragga (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 16:03

31 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hæ ÉG ER HÉRNA, og það er alveg forbannað að henda mér, enda er ég svo þung að þú réðir ekki við mig.

Hafðu það gott snúllan mín.

Þín Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.12.2007 kl. 16:13

32 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Sæl Ragga mín, vonandi hendirðu mér ekki út ég les alltaf bloggið þitt og svona oftast kommenta ég hjá þér , en maður sættir sig við þitt val dúllan mín, en sem sagt: hér er ég og hér langar mig að vera

Guðrún Jóhannesdóttir, 9.12.2007 kl. 16:57

33 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

He, he, annars verð ég nú að fara að endurskoða þessa uppröðun mína sem ég talaði um hér ofar,  þar sem síðustu daga hafa margir kvittað í heitar umræður......

Bestu kveðjur

Greta Björg Úlfsdóttir, 9.12.2007 kl. 16:58

34 Smámynd: Einar Indriðason

(tja... til að vera á listanum, þá þarf maður víst að komast á hann? :-)

Einar Indriðason, 9.12.2007 kl. 17:31

35 Smámynd: Ragnheiður

Ég fer nú varla að skutla út ættingjunum og þó..það er aldrei að vita hvað manni dettur í hug

Ragnheiður , 9.12.2007 kl. 18:16

36 Smámynd: Signý

miðað við renslið inná síðuna þá hugsa ég að þú þurfir ekki að hafa langan aðdraganda að þessu 2 daga?

Signý, 9.12.2007 kl. 18:29

37 Smámynd: Ragnheiður

Já ætli það sé ekki bara nóg  Signý ? Nenni ekki að hengslast með þetta lengi sko..

Ragnheiður , 9.12.2007 kl. 18:36

38 identicon

Segðu mér eitt Ragga, hvernig virkar það ef þú ert með lokaða síðu ?  Þarf maður leyniorð inn á hana ?

Ég fatta ekki alveg hvernig þetta virkar sko .. enda tæknifötluð á hæsta máta ??

Guðrún B. (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 18:36

39 Smámynd: Ragnheiður

nei ég held að þess þurfi ekki ef hún er opin fyrir skráða bloggvini...ég kemst betur að þessu með tíð og tíma

Ragnheiður , 9.12.2007 kl. 18:37

40 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Ekki er ég skráð sem bloggvinur, en kíki hérna inn reglulega. Ég hef ekki verið að safna bloggvinum, heldur bara þeim, sem ég hef áhuga á að lesa bloggið hjá, þannig að núna ætla ég að biðja þig um að vera bloggvinur minn, svo ég geti áfram haft samskipti við þig.

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 9.12.2007 kl. 18:47

41 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Heyrðu mig! Ef þú lokar mig úti þá........ &&%$$%&/()=! Og hana nú! :)

Heiða B. Heiðars, 9.12.2007 kl. 20:01

42 Smámynd: Ragnheiður

Nei heyrðu..dreg það til baka, ég er sko jaxl og ekkert hrædd við þig hehehe...

Loka ekki á þá sem eru virkir vinir..

Ragnheiður , 9.12.2007 kl. 20:03

43 Smámynd: .

Ég myndi sakna þess að sjá ekki til þín, það segi ég satt, sæki hér með um að verða ekki skutlað út í kuldann svona á jólaföstunni.

., 9.12.2007 kl. 20:28

44 Smámynd: Ragnheiður

Ég skutla út með hægð...á eftir að sjá hvernig er hægt að gera þetta þannig að bæði ég og þið verðið sátt.

Ragnheiður , 9.12.2007 kl. 20:32

45 Smámynd: Dísa Dóra

Vona nú að þú farir ekki að loka á mig skvís

Dísa Dóra, 9.12.2007 kl. 20:56

46 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Þetta er alveg rétt hjá þér Ragga mín. Það er ekki nóg að vera með langan lista og svo engin samskipti. Ég held að að þurfi alltaf að endurmeta lilstana hjá sér. En þetta með reiðina hjá þér í síðustu færslu er ofureðlileg viðbrögð við sorginni. Reiðin getur komið svo skyndilega og jafnvel kemur hún aftan að manni 2-3 árum seinna. Það tók mig tíma að fatta að þarna var sorgin að banka upp á og ég þurfti að fá útrás fyrir hana. Ég þarf að senda þér eina ágæta bók sem reyndist mér afskaplega vel á sínum tíma. Ég vona bara að hún sé enn til, en hún er eftir Karl Sigurbjörnsson sem nú er biskup. Þetta er nokkurs konar handleiðslu-handbók ef svo mætti segja. Vona að ég finni hana. Bless á meðan. Kv. Silla

Sigurlaug B. Gröndal, 9.12.2007 kl. 21:03

47 identicon

Æææjjjiii.  Ég er ekki skráð sem bloggvinur, en les alltaf. Viðurkenni þó að ég er ferlega léleg að kvitta fyrir inlitin. En comon. Má ér vera memm þó svo að ég eigi ekki moggablogg bara blogspotblogg....

Kveðja.. Söngfuglinn. 

Söngfuglinn góði (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 21:08

48 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Halló flotta kona ég er vöknuð eftir spennufallið og vill mjög gjarnan teljast bloggvinur þinn..

Knús á þig.

Kristín Snorradóttir, 9.12.2007 kl. 21:08

49 Smámynd: Mummi Guð

Ég tel mig vera bloggvin þinn þar sem ég les bloggið þitt, þó ég sé latur að kvitta. Læt frúna um það. Þar sem þú ert að tala um að fækka bloggvinum þínum, þá ætla ég óska eftir að verða bloggvinur þinn.

Mummi Guð, 9.12.2007 kl. 22:31

50 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ég pant líka vera bloggvinur áfram

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 9.12.2007 kl. 22:40

51 Smámynd: Ragnheiður

Sumum er bætt núna orðalaust við, það á við um þig Mummi...þið Fjóla eruð eitt í því efni. Búin að bæta inn þeim sem ekki voru og þess óskuðu...mun hinkra enn fram á morgundaginn áður en skellt verður í lás..

Krumma og Stína, auðvitað...og allir hinir góðu vinirnir...auðvitað. Ég mun upplýsa betur um ástæðu þessa þegar ég verð örugglega búin að loka að mér

Ragnheiður , 9.12.2007 kl. 22:44

52 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Ég vona að ég fái að fylgjast með þér áfram.  Gerðu það

Bergdís Rósantsdóttir, 9.12.2007 kl. 23:23

53 Smámynd: Fjóla Æ.

Mikið áttu fallega drengi þarna.

Veistu að mig hlakkar dálítið til að verða amma, en samt eftir slatta mörg ár. Krakkarnir eru enn of ung.

Fjóla Æ., 9.12.2007 kl. 23:28

54 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

það er lítið gaman að hafa langan blogg"vina"lista þar sem maður er lítið í tengslum við bloggara, ég er með örfáa, en nota bene aðeins þá sem ég heimsæki reglulega og oftast kommenta ég eitthvað hjá hverjum og einum.

Knús á þig kæra mín ofan af Skaga

Guðrún Jóhannesdóttir, 9.12.2007 kl. 23:29

55 identicon

Æji mamma þarf ég núna að fara að búa mér til blogg  hnuss ..

En þeir eru svo sætastir strákarnir allir

Hjördís Edda (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 23:36

56 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Þeir eru sætastir ömmuprinsarnir þínir 3  Eigðu góða viku og mundu að þú ert sko bestust Ragga mín 

Katrín Ósk Adamsdóttir, 9.12.2007 kl. 23:48

57 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Æi Ragga. Ég kvitta ekki alltaf en er eins og grár köttur hérna á síðunni þinni. Plís leyfðu mér að vera með.

Jóna Á. Gísladóttir, 10.12.2007 kl. 01:07

58 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Ragga losnar greinilege ekki svo glatt við okkur hehehe, knús

Guðrún Jóhannesdóttir, 10.12.2007 kl. 01:16

59 identicon

Dúddíruddídú... awwww  hvað þetta eru sætir strákar sem þú átt !

Guðrún B. (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 01:45

60 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég yrði afskaplega upp með mér, fengi ég að vera hér áfram.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 10.12.2007 kl. 09:30

61 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndisleg barnabörn Ragga mín, enda ekki von á öðru.

Sjáðu nú  hvað það eru margir sem vilja lesa bloggið þitt og deila með þér gleði og sorgum.  Þú ert heppin að því leytinu.

Smjútsí á þig inn í daginn.

Er í kasti yfir þessari myndrænu lýsingiu á ykkur karli í sitthvorum bílnum, hlið við hlið.  ROFL

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.12.2007 kl. 10:09

62 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég kíki oft á þig. Kommenta stundum, þó ekki alltaf. Er ekki á bloggvinalista en þætt vænt um að fá að heimsækja þig áfram. Ætti kannski að sækja um sem vinur?

Hrönn Sigurðardóttir, 10.12.2007 kl. 10:25

63 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Úpp nú kvitta ég væri þakklát fyrir að fá að vera hér sem bloggvinur áfram kommenta ekki við allar fæslur (er stundum kjaftstopp vegna okkar teingsla) það væri svo súrt að fá ekki fréttir af Álftanesinu.

Svo yrði hún Auður leið því hún er farin að spyrja mig ...hvað segir Ragga gott í dag.

Knús til ykkar. 

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 10.12.2007 kl. 10:53

64 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

takk

Hrönn Sigurðardóttir, 10.12.2007 kl. 11:27

65 Smámynd: kidda

Einhverra hluta vegna varstu ekki á þínum stað í bookmarkinu og ég fékk sjokk. Er hún búin að loka mig úti? En núna ertu allt í einu tvisvar sinnum í bookmarkinu .

knús og klús

kidda, 10.12.2007 kl. 12:15

66 identicon

Hurru kona góð, má ég vera memm? Ég er ekki bloggvinur þinn en eins og þú segir, ekki mottó að vera hér á blogginu með haug af vinum sem maður les ekki en ég les þig nú reglulega mín kæra

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 17:21

67 identicon

=(/%)/&"$(/$=(/  Sorry blótið en, þetta bloggvinakerfi hér er handónýtt og er búin að kvartanokkrum sinnum yfir því við kerfisstjórana, get ekki óskað eftir þér sem bloggvin

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 17:24

68 Smámynd: halkatla

ég skil þig mjög vel varðandi óþægindin af blogginu, skyndilega er maður frammi fyrir alþjóð og það er geðveikt skrítið. Ég vil gjarnan hafa þig sem bloggvin áfram, þannig að ég kommentaði, annars á ég alltof mikið af bloggvinum til að geta sinnt þeim sómasamlega, það verður heilt starf. Aðventukveðja

halkatla, 10.12.2007 kl. 17:55

69 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vona að ég fái að hanga inni Ragnheiður mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.12.2007 kl. 18:16

70 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Heyrðu! Þú ert "heitasta" konan í bloggheimnum í dag!  ...  kíki oft á þig..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 10.12.2007 kl. 19:49

71 identicon

Knús á þig , þú bjargaðir kerfistjórunum núna frá einhverju miður skemmtilegu, auðvitað varstu samþykk hehehehe

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 19:51

72 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Hef haft mikið gagn og gaman af því að lesa bloggið þitt og vona að ég megi lesa áfram.

Er óttalega löt við að kvitta almennt hjá bloggurum. 

Björg K. Sigurðardóttir, 10.12.2007 kl. 20:24

73 identicon

Var að komast á ról aftur. Viltu hafa mig?

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 22:14

74 identicon

Ég er hér einn laumuskoðari, er ekki með síðu og mun ekki stofna slíka, en mikið svakalega verður leiðinlegt að geta ekki kíkt á síðuna þína, get bara sjálfri mér um kennt um það, en fyndnari og frábærari manneskju hef ég nú sjaldan komist í, mér finnst þú bara stórkostleg, með svo dásamlega sýn á marga hluti og svakalega hnyttinn án þess að þú sért að rembast við að vera það!!!  Mun sakna þess að geta ekki kíkt á þínar hugrenningar, takk fyrir mig, gangi þér allt í haginn, frábæra kona!  Skil samt mætavel að þú viljir ekki skrifa fyrir alþjóð, gæti það ekki sjálf. Kveðja Guðný

Guðný (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 22:23

75 Smámynd: Benna

Ég ákvað nú barasta að kvitta aftur fyrir mig sæta, til að vera viss í minni sök að ég fái að hanga inni veit að ég er búin að vera léleg og það er enginn afsökun að það sé mikið að gera hjá mér isss...skal lofa að vera duglegri en veistu ég skil vel hugsanir þínar á bak við þetta, það er oft óþægilegt að vita ekki hverjir séu að lesa og hvaða áhirfa skriftir manns hafa á fólk út í bæ.....

en enn og aftur KNÚS..

Benna, 10.12.2007 kl. 23:07

76 identicon

Laust fyrir miðnætti 10 des kom hjordisedda.blog.is í heiminn. Móður og barni heilsast vel

Hjördís Edda (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 00:14

77 Smámynd: Ragnheiður

Hehehe varð ég enn amma hehehe Finn það og bæti þér á listann....

þá eru komnir 45....

Ragnheiður , 11.12.2007 kl. 00:18

78 Smámynd: Ólöf

Hef nú ekki verið mjög dugleg við að kvitta en hef fylgst með þér og myndi gjarnan vilja fá að gera það áfram.

Ólöf , 11.12.2007 kl. 08:01

79 identicon

Þarf maður að stofna blogg til að fá að halda áfram að fylgjast með þér? Kem hér inn daglega því ég held ég hafi aldrei lesið eins fallegt blogg eins og þitt. Það kemur allt beint frá hjartanu þínu og þó svo að maður þekki þig ekki neitt þá einhvernvegin nær þetta inn í hjartað mitt. Ekki það að ég get alveg kommentað hjá þér, hefði gert það fyrir löngu ef ég væri ekki svona mikil skræfa. Með von um að ekki vera lokuð úti

Kveðja Gunna

Gunna (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 08:27

80 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Les oft bloggið þitt og kvitta stundum

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 11.12.2007 kl. 15:20

81 Smámynd: Kolgrima

Ég lít við næstum því daglega, án þess þó að gera vart við mig. Takk fyrir mig.

Kolgrima, 11.12.2007 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband