Þetta lá í loftinu

en það sem ég er mest hugsi yfir eru viðbrögð fjármálaráðherra.

 

Þessi hér  hann virðist hreinlega vera í hálfgerðri krossferð gegn hjúkrunarfræðingum. 

 

Er þetta þvermóðska ?


mbl.is Hjúkrunarfræðingar felldu samninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég get nú ekki betur séð en þvermóðskan sé hjá hjúkrunarfræðingum.

Jóhann Elíasson, 15.7.2015 kl. 20:02

2 identicon

Settu þig bara í spor skattgeiðenda,  Ríkið er búið að verja mörgum mánuðum í að semja við hóp sem telur sig betri en svo að 20% hækkun nægi ekki.  Svo gerir þessi formaður samning við ríkið, en hefur sjálfur engan áhuga á að sitt fólk samþykki samninginn sem hann ber sjálfur ábyrgð á, ætlar hann að axla einhverja ábyrgð á því að félagsmenn hans telja hann hafa gert vondan samning?

Bara sorry, ég held að þessi samningur hafi bara verið til málamynda og ætlað að nota sem vopn í baráttunni.  Gerðadómur ræður þessu auðvitað á endanum þar sem það er skýrt í kjarasamningum að undir þá er skrifað með fyrirvara um samþykki félagsmanna.  og það samþykki fékkst ekki og því er ekki búið að skrifa undir neitt.

Stebbi (IP-tala skráð) 15.7.2015 kl. 20:59

3 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Stebbi, settu þig líka í spor sjúklinga (sem eru líka skattgreiðendur). Vilt þú vera fárveikur á spítala og vita að hjúkrunarfræðingurinn þinn er á svo miklum harðahlaupum alla vaktina að hann kemst varla á klósett? Er það eðlilegt? Er það þannig á þínum vinnustað? Þær eru ekki bara að flýja lág laun, þær eru líka að flýja vinnuþrælkun. Stjórnvöld eru að leggja niður heilbrigðisþjónustu á Íslandi með aðgerðum sínum og hvað kostar það fyrir skattgreiðendur þegar verður farið að senda veikustu sjúklingana til útlanda í aðgerðir?

Margrét Birna Auðunsdóttir, 26.7.2015 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband