Árlega er
8.9.2011 | 00:33
alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna hér á Íslandi sem og annarsstaðar.
Hann verður sífellt myndarlegri í sniðum. Núna, deginum áður, á að opna nýja vefsíðu fyrir þá sem eru langt niðri og líður illa, eru jafnvel að hugsa um sjálfsvíg og síðan er líka fyrir okkur hin, sem eftir stöndum. Við sem stöndum særð fyrir lífsstíð og þurfum að kljást við allskonar erfiðar tilfinningar.
Síðasta vetur fór ég í sorgarhóp sem sr. Svavar í Fella og Hólakirkju hélt utan um. Það gerði óskaplega gott, að hitta aðra í sömu stöðu. Eftir að starfinu lauk í kirkjunni þá höfum við hist áfram - í heimahúsi bara.
Núna á laugardagskvöldið verður samvera í Dómkirkjunni í Reykjavík og eftir hana verður gengið að Reykjavíkurtjörn og kertum fleytt til minningar um aðstandendur okkar sem látnir eru. Samveran hefst klukkan 20.
Upplýsingar eru hérna á þessum tengli
Nýja síðan um sjálfsvíg er hérna (http://sjalfsvig.is/) . Sorg eftirlifenda er svo sterk og þung, mikil og sár byrði. Það er miklu betra að standa fleiri saman undir þyngdinni.3337 sjálfsvíg á ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Guðrún unnur þórsdóttir, 8.9.2011 kl. 16:19
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.9.2011 kl. 03:12
"Sorg eftirlifenda er svo sterk og þung, mikil og sár byrði. Það er miklu betra að standa fleiri saman undir þyngdinni."
Hrönn Sigurðardóttir, 9.9.2011 kl. 07:07
Gæti ekki orðað þetta betur en Hrönn, gangi ykkur vel elsku vinkona
Ásdís Sigurðardóttir, 9.9.2011 kl. 11:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.