Yfir þessu mætti

kannski heldur væla.
Þetta eru ekki náttúruhamfarir heldur kjarabarátta sem stýrt er af fólki.

Þessir gætu til dæmis hinkrað aðeins í nokkrar vikur - tekið tillit til ferðaþjónustuaðila.

Það er annað með náttúruhamfarir, þær skeyta engu né hlífa neinu.

Þær þurfum við að umbera - lifa þær af og þola þær. Hjálpast að og vera almennileg.


mbl.is Næstu skref óráðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gleymum því ekki að sjaldan veldur einn þá tveir deila. Ég tel að ef Icelandair hefðu ekki sagt upp hátt í 60 flugmönnum í miðri samningalotu hefði samningurinn verið samþykktur. Það er greinilegt að yngti mennirnir eru pirraðir yfir litlu atvinnuöryggi og finnst troðið á sér. Það eru þeir sem eru að fella þennan samning, hef ég heyrt á mönnum sem ég þekki innan stéttarinnar. Þarna fékk Icelandair hrokann beint í andlitið aftur.

Sigurður Konráðsson (IP-tala skráð) 12.7.2011 kl. 03:20

2 Smámynd: Ragnheiður

Já það má vel vera rétt hjá þér Sigurður. Auðvitað er tveir aðilar að þessu samningsferli.

Ég var nú meir að fjalla um samanburðinn á þessu tvennu, verkfalli (mögulegu) og náttúruhamförum. Samanber síðasta blogg um náttúruhamfarir og skaðræðisvein ákveðinna aðila sem tala eins og hamförunum hafi verið beint persónulega gegn þeim og hamfarirnar séu í boði stjórnarinnar.

Legg svosem engan dóm á kaup og kjör flugmanna, þekki það ekki nóg til þess.

Ragnheiður , 12.7.2011 kl. 04:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband