með óbragð í munni

verð ég að játa að ég taldi Ólaf Skúlason nánast í heilagra manna tölu.

Jesús hvað ég má skammast mín og hvað ég hef bara verið mikið fífl !

Þið elsku konur, fyrirgefið fávísum aula.

Ég skammast mín


mbl.is Lýsti alvarlegum brotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert nú ekkert ein um það að hafa ekki séð hvaða mann hann hafði að geyma - annars hefði hann nú aldrei komist til þessara metorða innan kirkjunnar.

Guðrún Ebba á mikið hrós skilið fyrir að stíga fram, það þarf ómælt hugrekki til að gera það!

Guðrún (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 11:12

2 identicon

Við höfum öll vitað þetta í mörg ár... við sáum konur berjast fyrir rétti sínum án árangurs... því guðsmennirnir eru jú ósnertanlegir.

Taka sig svo saman í andlitinu og skrá sig utan trúfélaga... það er eina leið almennings til að sýna að svona gera menn ekki

Barnaníð og trúarbrögð ganga hönd í hönd

doctore (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 11:35

3 Smámynd: Ragnheiður

sammála þér Guðrún

en alls ekki sammála þér doktore - frekar en oft áður. Það er afar margt gott fólk sem starfar innan kirkjunnar. Þjóðkirkjan erum við sjálf sem erum í henni. Við erum almennt ekki barnaníðingar.

Það er orðið afskaplega þreytt þetta sífellda ofstæki ´

Það er svo miklu víðar pottur brotinn og það er einfaldlega ekki hægt að dæma alla kirkjunnar menn svona hart. Það væri eins og að segja að ALLIR karlar séu níðingar, það er einfaldlega rangt !

Ragnheiður , 20.8.2010 kl. 11:44

4 identicon

Þegar ég var fermdur af þessum manni stóð ég í þeirri trú að maðurinn væri amk ekki algjör mannfíla, reyndar taldi ég um góðann mann að ræða, en í ljósi þess hvessu mikill skíthæll hann reyndist vera, get ég ekki litið svo á að samningur minn við kirkjuna um ferminuna væri úr gildi vegna forsendubrests.  þannig að ég er bara eftir allt alls ekki fermdur.

joi (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 12:02

5 Smámynd: Brattur

Sammála þér Ragnheiður, það á ekki að dæma alla út frá því sem einn einstaklingur gerir...

Í æðsta embætti kirkjunnar á að veljast manneskja sem búin er öllum bestu mannlegum kostum...

Það setur að manni hroll að sjá hvað hægt er að fela ljóta hluti á bak við skrautleg kirkjuklæði.

Brattur, 20.8.2010 kl. 12:05

6 Smámynd: Ragnheiður

Jói ég skil það bara vel. Hefði ég þegið þjónustu af honum þá hefði ég farið og endurtekið athöfnina með presti sem hefði verið mér meira að skapi !

Ragnheiður , 20.8.2010 kl. 12:05

7 identicon

Fyndið að sjá að þið gleymið því að karlinn hefði aldrei getað gert þetta.. ef kirkjan hefði ekki tekið þátt í þöggun.

doctore (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 12:28

8 Smámynd: Ragnheiður

ég þekki nú mann í allt annarri starfstétt sem komst upp með svipað áratugum saman.

Það skiptir engu máli hvar menn starfa. Það var ekki til siðs að tala um slík mál og þess vegna kemur ófögnuðurinn upp svo löngu síðar

Ragnheiður , 20.8.2010 kl. 12:34

9 Smámynd: Brattur

... illskan getur leynst hvar sem er... barnalegt að halda því fram að hún sé meiri í röðum kirkjunnar manna en annars staðar...

Brattur, 20.8.2010 kl. 12:48

10 identicon

Auðvitað eru til barnaníðingar í öllum starfsgreinum, það er óumdeilt.

Sú starfsgrein sem er með flesta barnaníðinga eru einmitt prestar, það er td talið að 1 af hverjum 20 kaþólskra presta séu barnaníðingar.

Sú stétt sem kemur á eftir prestum eru kennarar... en þeir eru ekki hálfdrættingar miðað við presta.. að auki geta kennarar ekki falið glæpi sína ábakvið guði og galdrabækur.

doctore (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 12:53

11 identicon

Nú vil ég ekki draga orð doctore í efa, en langar mikið að vita hvar þessar tölur eru fengnar, eða hverjir það eru sem telja svo.

Magnús Már (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 13:13

12 identicon

Sammála Doctore, Hrikalegt að vita til þess að sú stofnun sem á að vera mest lærð í hvað má og hvað má ekki er verst í yfirhilma yfir sýnu fólki!!!!!!

Og það þarf ekki að fara marga áratugi aftur í tímann til að sjá blóði drifna slóð kirkjunar "G'OÐU"

Svo þesssi stofnun er frat.

Óskar (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 13:15

13 identicon

Ég hef þessar upplýsingar í gegnum fréttir af kaþólsku kirkjunni, það er hreint glæpsamlegt að láta börn í hendur kaþólskra presta.
Ég get birt margar fréttir daglega um presta sem eru að nauðga börnum.. þetta er svo rosalega algengt að það má kalla þetta heimsplágu..
Við getum skellt okkur yfir til rússlands, í réttt´runaðar kirkjuna: Þar nauðga þeir börnum á fullu, þeir pynta þau líka.

Kirkjur or guðsmenn segja sig vera siðgæðisvita fyrir okkur hin, að það sé hreinlega ekki hægt að vera góður maður án þess að trúa á himnadrauginn... að menn hreinlega gangi út og myrði og nauðgi ef menn óttist ekki að guð hendi mönnum í helvíti.
Þarna eru guðsmennirnir að lýsa eigin siðgæði, eða vöntun á siðgæði..

Rúsínan í pylsuendanum er sú að biblían MÆLIR MEÐ NAUÐGUNUM... og þá einna helst á hreinum meyjum óvinarins..
Meira að segja er fórnarlamb nauðgana SEK samkvæmt biblíu; það á að grýta konuna til bana, eða að láta hana giftast nauðgara.

En hey, ekki trúa mér; Flettið þessu sjálf upp í biblíu...

doctore (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 14:08

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég verð nú að segja að ég er frekar sammála doctore í þessum færslum, kirkjunar menn hafa komist upp með ljótustu hluti í skjóli trúar því miður.

Ásdís Sigurðardóttir, 20.8.2010 kl. 14:34

15 Smámynd: Ragnheiður

Kaþólska kirkjan er töluvert annað en íslenska þjóðkirkjan þó að því miður leynist greinilega óvættir inn á milli þar. Það er bara ekki hægt að heimfæra tölur þaðan hráar upp á aðrar kirkjudeildir og söfnuði !

Lífið er bara ekki svona í svörtum og hvítum einstefnum !

Ragnheiður , 20.8.2010 kl. 16:14

16 Smámynd: Heiða  Þórðar

Gæti ekki verið meira sammála!

Heiða Þórðar, 20.8.2010 kl. 17:43

17 identicon

Aumkunarvert að heyra í biskup í fréttum: Enginn mannlegur máttur getur dæmt svona... við skulum ekki dæma, bara hryggjast... Frelsarinn bla bla


DoctorE (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 19:21

18 Smámynd: Ragnheiður

Ég er ekki viss um að Herra Karl sé rétti maðurinn í þetta embætti nú um stundir.

Hann er hreinlega of góður (ekki alveg orðið sem mig vantaði þarna) það vantar beinið í nefið á honum sko ..

Ragnheiður , 20.8.2010 kl. 20:50

19 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jesús, Jósef og María! Drottinn minn sæll og dýri er ekki DoctorE mættur á svæðið?

Ég verð að segja að það kemur mér verulega á óvart.

Hrönn Sigurðardóttir, 20.8.2010 kl. 21:05

20 identicon

Gott að þið skammist ykkar sem tókuð þátt í að úthúða og úthýsa þeim konum er voru nógu hugrakkar að stíga fram strax 1996!

Jóhanna (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 23:36

21 identicon

Auðvitað leita svona níðingar í störf þar sem nálægð er við börn. Það á ekki að koma neinum á óvart að barnaníðingar sæki í æskulýðsstöf, prestastörf, kennslu eða annan vettvang þar sem börn er að finna. Það segir sig sjálft að hlutfall barnaníðinga er hærra í kaþólsku kirkjunni en í t.d. togarasjómennsku.

Páll (IP-tala skráð) 21.8.2010 kl. 00:37

22 identicon

Karl er enn í þöggunargírnum... tekur þann pól í hæðina að ekkert sé að marka það sem biskupsdóttir sagði... að við getum ekki dæmi...
Níðingurinn er kominn undir græna torfu Karl... En stofnunin sem leyfði þessu að gerast án þess að aðhafast nokkuð... hana þarf að dæma... og það verður ekki afsökunin eina, hann Jesú; Íslendingar munu dæma þessa stofnun

DoctorE (IP-tala skráð) 21.8.2010 kl. 11:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband