Og hvað ?
20.7.2009 | 10:03
Sko þegar bankadraslið hrundi þá fann ég ekki beinlínis fyrir neinni breytingu í bankanaum mínum. Ég þurfti ekkert að klofa yfir drasl eða passa mig á að fá ekki straum. Bankinn var þarna, eins og áður. Ég segi það ekki, starfsfólkið var sumt mun þreytulegra og fækkaði auðvitað eins og fram kemur í viðtengdri frétt.
Nú var ég ekki með neinar dramatískar viðskiptaaðferðir, var bara að leggja inn og eitthvað...
Og hvað gerist nú?
Afhverju hefur ríkið aura til að leggja í Sjóvá og bankana...?
Botna ekki í þessu...
Komin líka í heilan hring í hausnum á mér með Icesave dótaríið
Ég held að það sé verið að plata mig- bigtime.
Fór í messu í gær, í Garðakirkju í fyrsta sinn. Gríðarlega falleg kirkja.
Glitnir eignast Íslandsbanka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nýliðar á alþingi kvarta undan því að skjöl séu falin og plottið og óheiðarleikinn sé svo mikill hjá ríkisstjórninni.Það má fátt líta dagsins ljós þar á bæ.Maður ruglast við minni vitleysu en þá sem þarna fer fram.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 11:05
Hvar finn ég nýju peysusíðuna þína. ??
Ásdís Sigurðardóttir, 20.7.2009 kl. 11:36
á facebook ...
Hvernig eigum við þá að skilja það þegar þau gera það ekki Birna ?
Ragnheiður , 20.7.2009 kl. 12:43
Hver skilur það sem í gangi er ?
Hversu mikið og rétt er upplýsingaflæðið ?
Fáum við að vita alveg 100% hvað er að gerast ?
Ásgerður Einardsóttir (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 18:13
já ég auglýsi eftir einhverjum sem skilur þetta !!
Sigrún Óskars, 21.7.2009 kl. 12:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.