Nenni ekki svona súrum færslum

Skrapp með Lappa að labba, það er svona haltur að leiða blindan í orðsins fyllstu merkingu.

dýramyndir 001

Þessi elskar að liggja í sólinni

dýramyndir 009

Þessir vildu báðir vera hjá "pabba" og leystu það svona...stuttu síðar flúði þessi hugaði hundur.

dýramyndir 006

Þessi sæti kom í heimsókn og finnst amma eiga alveg rosalega skemmtilega ryksugu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auður Proppé

Æi hvað hann er sætur hann Lappi og honum finnst gott að láta sólina skína á sig.  Mig langar svo í svona ryksugu, láta hundarnir hana alveg vera?

Auður Proppé, 23.2.2009 kl. 18:53

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Finnst þér hún ekki æði ryksugan? Minn maður er voða glaður með sína og hér er allt miklu ryklausara en áður.

Er það Lappi sem er að missa sjónina?

Knús í ykkar bæ
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.2.2009 kl. 19:09

3 Smámynd: Ragnheiður

Hundarnir láta hana alveg vera Auður, helst að hún keyrir á þá þegar þeir gleyma að passa sig. Miklu minna hræddir við hana en þessa venjulegu.

Milla mín, alveg æði. Lappi er alveg orðinn blindur

Ragnheiður , 23.2.2009 kl. 19:18

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Flottar  myndir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.2.2009 kl. 20:27

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æi elskan það er ekki gott. vel á mynnst Hilmar litli er bara flottur þessi elska, hann er náttúrlega að hjálpa til.
Neró minn er ekki hræddur við róbótinn en hrikalega hræddur við bæði gömlu og handryksugurnar

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.2.2009 kl. 20:45

6 Smámynd: Einar Indriðason

*knús* á þig, gaman að sjá hvað kisi á allt í einu heiminn.  Verra með lappa greyið.  Hvað segir læknirinn?

Einar Indriðason, 23.2.2009 kl. 22:33

7 Smámynd: Ragnheiður

Einar knús til baka, læknir segir erfðagalli og ólæknanlegt.

Ragnheiður , 23.2.2009 kl. 22:56

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Humm... gæti alveg hugsað mér eina svona ryksugu fyrir hundahárin.

Eigðu góðan dag

Ía Jóhannsdóttir, 24.2.2009 kl. 08:01

9 identicon

Minn maður fær ekki að horfa á sjónvarp í friði. Ljónið á fótunum og Tína klesst upp við hann svo hann getur ekki hreyft sig. Þannig hef ég nokkrum sinnum komið að þeim öllum steinsofandi yfir sjónvarpinu

Langar mikið í svona draumaryksugu en kemst hún alls staðar? 

Knús og klús

Kidda (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 09:12

10 Smámynd: Dísa Dóra

Mín skotta er nú svo skíthrædd við okkar ryksugu.  Enda hún stillt þannig að hún vinni þegar daman er á leikskólanum.  Ég skil vel að hún sé hrædd við þetta þar sem mér finnst þetta líta út eins og risastór padda

Dísa Dóra, 24.2.2009 kl. 12:35

11 Smámynd: Ragnheiður

Kidda hún er frekar þunn og kemst undir flest hjá mér.

DísaDóra, æj æj litla skottan

Ía þetta er draumaverkfæri alveg

Ragnheiður , 24.2.2009 kl. 14:20

12 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Smá innlit og knús kveðjur frá mér Ragga mín. Ég hef lítið verið á blogginu. Tölvan fór í hakk hjá okkur, svo fór ég í aðgerð og bóndinn var svo að koma úr hnéaðgerð no. 5 í dag. Alltaf nóg að gera. Gaman að sjá myndir af Lappa-lúsinni og kisumjásunni. Knús á þig Ragga mín og kveðjur.

Sigurlaug B. Gröndal, 24.2.2009 kl. 17:06

13 Smámynd: Sigrún Óskars

sætar myndir - sendi þér knús yfir hliðið

Sigrún Óskars, 24.2.2009 kl. 22:32

14 Smámynd: egvania

Kærleiks kveðja Ásgerður

egvania, 27.2.2009 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband