Er þetta þá jákvæð frétt ?
2.2.2009 | 11:43
Ja það hlýtur að vera það, amk fyrir starfsmenn þessa fyrirtækis ...
við erum ekki búin að fá reikninginn enn fyrir þessa miklu viðgerð á Steinars bíl. Siggi skrapp á honum í búð í gær og kvartaði yfir hávaða undir honum, það þarf ss enn að laga eitthvað meira. Verkstæðiskallinn hefði bara átt að gegna mér um daginn þegar ég spurði hvort hann væri ekki tryggður ef bíllinn "dytti" óvart af lyftunni og í gólfið..
en vandamál eru til þess að leysa þau og við finnum leið....
Ég hef hinsvegar ákveðið að sortéra reikningana og borga húsið umfram allt, ég verð þó að búa einhversstaðar.
Toyota eykur starfshlutfall á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Húsið vann í reikningalottóinu.Líka hjá mér
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 12:14
ég skil þetta sem sigur verkalýðsbaráttu... starfsmaður toyota rífur kjaft yfir þessari skerðingu meðan yfirmenn fá bónus, hann er rekinn, málið fær athygli, toyo reyna að bæta ímyndina
http://folkerfifl.blog.is/blog/folkerfifl/entry/790056/
Gullvagninn (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 12:55
Já ok flott mál þá.
Kíki á linkinn
Ragnheiður , 2.2.2009 kl. 13:11
Húsið var ekki dregið upp úr hattinum hjá mér, átti ekki fyrir því. Veit ekki með önnur sveitafélög en hérna í Kópavoginum kemur greiðsluseðillinn fyrir janúar í lok jánúar og svo strax 1.feb nr 2. Þannig að við þurfum að borga rúm 70þús í fasteignagjöld núna um mánaðarmótin
Átti ekki heldur fyrir bankabókinni minni
Knús og klús
Kidda (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 15:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.