Í dag eru 11 mánuðir

síðan hann fór. Ég sakna hans hvern einasta dag og tala við hann og um hann hvern dag við mitt fólk. Í fyrradag herti ég mig upp, druslaði mér í kirkjugarðinn og fór með blóm til mömmu í tilefni af sjötugsafmæli hennar. Ég fór líka með blóm til Himma og klappaði krossinum hans. Svo bað ég hann að leiðbeina mér til Hauks hennar Birnu Dísar. Síðast þegar ég fór þá fann ég hann alls ekki og það var í fyrsta sinn sem það gerðist. Núna labbaði ég nánast beint til hans og sá fallega steininn sem kominn er hjá honum. Áður en Himmi dó þá las ég síðuna hjá Birnu Dís og skoðaði myndir af hennar syni, hann minnti mig um margt á Himma minn. Ekki vissi ég þá að svo stuttu seinna stæði ég í sporunum hennar, líka búin að missa son. Það er vond spor að vera í. En maður hefur svosem ekkert val. Þetta gerðist og einhvernveginn verður maður að finna leið til að lifa með þessum skelfilega raunveruleika. Maður verður aldrei samur eftir....það kemur óbætanlegt skarð. Samt var ég orðin nokkuð sjóuð í að hafa ekki Himma um mislangan tíma. Hann sat inni í 4rða sinn og ég var að æfast í því að vera án hans. En ég var samt ekki og verð aldrei klár í að hitta hann aldrei meira. Það er svo óendanlega erfitt.

Ljósasíðan hans hefur lifað í ellefu mánuði. Fyrir það þakka ég ykkur, þið hafið verið yndisleg að halda henni gangandi með því að hafa alltaf á henni ljós.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------

Hér er verið að smíða og reyna að klára glugga. Einn var lélegur og fékk nýja pósta. Það er að klárast og þá þarf bara að setja gler í 2 aðra. Þetta verður frábært að sleppa við lekann....handklæðasprettir um allt hús þegar rignir. Við þurfum svo að setja nýtt járn á þakið. Það er víst eitthvað plastklætt dótarí eða eitthvað svoleiðis. Það gerist vonandi á næsta ári.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------

Sumarfríið fer ágætlega af stað. Ég er náttlega á spretti í hinni vinnunni á meðan en stefnan er að komast samt eitthvað í sumar. Steinar er fastur í sinni vinnu og ekki nennir frúin ein eitthvað út á land.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 19.7.2008 kl. 21:36

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Kærleik til þín Ragga mín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.7.2008 kl. 21:39

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Svo langt síðan en samt svo stutt. Þú hefur gert ótrúlega mikið á þessum tíma við að minnka fordóma og breyta hugarfari fólks til þeirra sem sitja í fangelsi, leyfðir okkur að kynnast Himma og sjá hann sem þá yndislegu manneskju sem hann var. Fyrir það áttu  mikinn heiður skilið. Ég kveikti einmitt á kerti á kertasíðunni hans Himma fyrr í kvöld og geri það reglulega.

Sendi risastórt knús frá Skaganum og þú ert að sjálfsögðu alltaf velkomin hingað!

Guðríður Haraldsdóttir, 19.7.2008 kl. 21:41

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.7.2008 kl. 21:57

5 identicon

Kærleikskveðja til þín og þinna!

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 21:58

6 identicon

Megi allir englar alheimsins vaka yfir þér,og þínum.

Kærleikskveðja

Guðrún.

Guðrún (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 22:08

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ljúfar hugsanir hafa liðið til þín allan daginn yfir heiðina. Ætli þú eigir ekki stóran þátt í því, með þínu bloggi, að fá almenning til að horfa á fanga sem fólk með tilfinningar og líf þó svo að eitthvað hafi bjátað á og gengið illa. Ótrúlegar framfarir hafa átt sér stað og ég held að meira muni gerast fljótlega. Kærleikskveðja Love You

Ásdís Sigurðardóttir, 19.7.2008 kl. 22:33

8 identicon

Svala Breiðfjörð Hauksdóttir (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 22:41

9 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þú ert í ástríki þínu að lyfta bautasteini frá augum fáfróðra með þínu bloggi, hvunndagshetja.  Langt síðan ég kveikti á kerti fyrir Himma, gjöri slíkt nú.

Steingrímur Helgason, 19.7.2008 kl. 23:23

10 identicon

Kæra Ragnheiður!

Blessuð sé minning drengsins þíns

Kærleikskveðja, 

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 23:52

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

 

Anna Einarsdóttir, 20.7.2008 kl. 00:09

12 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Kærleikskveðjur

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 20.7.2008 kl. 00:13

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Tíminn þýtur áfram.  Himmi dó tveimur dögum eftir að Maysa mín átti afmæli.  Stundum átta ég mig ekki á hvað verður um dagana.

Þú ert dugleg Ragga og flott í þokkabót.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.7.2008 kl. 00:24

14 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 20.7.2008 kl. 03:11

15 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Dánardægur Himma er afmælisdagur Jónu dóttur minnar hún verður 21 árs gömul  þann 19 ágúst.  Mér finnst þú vera hetja, hvernig þú hefur tekið á þessum hræðilega missi. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.7.2008 kl. 03:35

16 Smámynd: Helga skjol

Helga skjol, 20.7.2008 kl. 07:28

17 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Blessuð sé minning Himma og meigi guð vaka yfir ykkur

Kristín Gunnarsdóttir, 20.7.2008 kl. 07:43

18 identicon

Æi já þau eru erfið sporin okkar Ragga mín.Það líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um Haukinn minn.Ég ken við "hjá"Himmanum þínum oftast þegar ég er í garðinum.Ég er oft þar enda passlegur hjólatúr þangað.Tíminn líður svo hratt en samt svo hægt.Dagarnir verða smátt og smátt bjartari.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 11:46

19 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 20.7.2008 kl. 14:28

20 Smámynd: Hugarfluga

Mér þykir ósköp vænt um þig, Ragga mín.

Hugarfluga, 20.7.2008 kl. 14:55

21 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þú ert þvílík hetja Ragga mín. Svo ótrúlega sterk. Það er á móti gangi náttúrunnar að foreldrar jarði barnið sitt. Það alskelfilegasta sem nokkur getir orðið fyrir.

Helga Magnúsdóttir, 20.7.2008 kl. 15:30

22 Smámynd: Ragnheiður

Nei það er líklega rétt hjá þér Hallgerður, ég fékk ekkert val amk ekki með hann Himma minn. Ég hef oft áður haft val um ýmislegt annað en ekki hann.

Ragnheiður , 20.7.2008 kl. 19:28

23 Smámynd: .

Kíki hér inn við heimkomuna, varð hugsað til þín í gær.......

., 20.7.2008 kl. 19:49

24 Smámynd: Tiger

 Guð blessi þig elsku Bloggvina mín - mín kæra Ragnheiður.

Tiger, 22.7.2008 kl. 02:46

25 Smámynd: Marta smarta

Ragga mín. 
Skil þig svo vel.  En eins og þú segir hefur maður ekki alltaf val og verður bara að taka því sem manni er rétt.
Eftir 7 daga verður liðið 1 ár síðan Stefán var tekinn frá okkur, og ég veit ekki hvernig ég á að höndla þann dag.  Ég er ennþá svo reið.
Ég vona að allar góðar vættir gefi þér, og okkur öllum sem þurfum að upplifa barnsmissi, styrk til að halda áfram.

Marta smarta, 22.7.2008 kl. 14:44

26 Smámynd: Ragnheiður

Já Marta mín, þessir dagar eru slæmir, þeir kvelja sálina. Sendu mér póst

Ragnheiður , 23.7.2008 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband