Búinn !
16.6.2008 | 11:46
Munið þið eftir þessum ? Nú kemur auðvitað skýringin á því hversu langan tíma þetta tók, dóninn neitaði að hvolfa í sig laxerolíu. Hann hefur kannski haldið að löggan myndi gefast upp á biðinni og senda hann heim með dópið....öhhh...nei.
Átta hundruð grömm af kóki komu úr iðrum Hollendings
Hollendingurinn, sem hefur setið sveittur undanfarnar tvær vikur við að losa smokka fulla af kókaíni úr iðrum sínum, hefur lokið sér af. Og afraksturinn er rétt tæp 800 grömm af kókaíni. Þetta staðfesti Eyjólfur Kristjánsson hjá Lögreglunni á Suðurnesjum í samtali við Vísi.
Hollendingurinn, sem er rúmlega fertugur, var gripinn á leiðinni inn í landið fyrir rúmum tveimur vikum og kom í ljós við röntgenmyndatöku að hann hafði gleypt smokka sem grunur lék á að innihéldu eiturlyf. Illa gekk að koma smokkunum niður og hjálpaði ekki að hann neitaði að taka hægðalosandi lyf. Nú hefur hann hins vegar lokið sér af og situr í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.
Athugasemdir
úff ekki vil ég fá það "djobb" að skeina eftir svona bið...
Ásta Björk Hermannsdóttir, 16.6.2008 kl. 11:47
jakk!
Hrönn Sigurðardóttir, 16.6.2008 kl. 11:51
Ætli þetta hafi loksins gengið hjá honum þegar hann fór með klósettvísur ?
Anna Einarsdóttir, 16.6.2008 kl. 11:56
öhhh þetta er eiginlega mjög fynndin lesning, og alvarleg auðvitað.
Ekki var þetta orðað svona í blaðinu... eða hvað???
Þetta er ekkert smá magn!
Hvað er fólk eiginlega að hugsa? Kræst.
Hulla Dan, 16.6.2008 kl. 11:56
fréttin er afrituð af vísi bara inngangurinn er minn hehe
Ragnheiður , 16.6.2008 kl. 12:07
Hefði skilið ef þetta hefði verið sá á áttræðisaldrinum sem smyglaði með Norrænu og hægðirnar eftir því
M, 16.6.2008 kl. 12:20
ÞAð er kúkalikt af þessu máli verð ég að segja
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 16.6.2008 kl. 12:24
Það sem menn leggja á sig fyrir dópið...þetta er eins og ganga með tifandi tímasprengju inn í sér......
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 16.6.2008 kl. 12:40
Það hafa þó nokkrir látist eftir að hafa gleypt svona drasl. Þetta sýnir bara hvað fólk er reiðubúið að gera fyrir peninga. Ekki hefði ég viljað taka efnin úr smokkunum Oj bara.
Helga Magnúsdóttir, 16.6.2008 kl. 13:53
Greyið karlinn. mér finnst að það ætti að sýkna karlinn, hann er búinn að tala út sína refsingu. Búinn að sitja sveittur á klósettinu í tvær vikur að kúka!!
NOT. Þetta er gott á hann.
Mummi Guð, 16.6.2008 kl. 19:43
Búin!
Sigrún Jónsdóttir, 16.6.2008 kl. 20:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.