Búin að telja
18.4.2008 | 00:19
og yfirfara öll eldhúsverkfæri og get róleg lagst til svefns. Fjúkk...en þessir rússar kalla ekki allt ömmu sína greinilega.
Maður er brytjaður niður og fer svo bara ósvífinn að sofa eins og manni komi þetta bara ekki við. Djö er þetta eitthvað ömurlegt fórnarlamb !
Annars á maður kannski ekki að hlæja að þessu en well shit happens og maður hlær að öllum fjandanum - það er fínt.
Farin að sofa. Gúddnæt.
Vaknaði með hníf í bakinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
hahaha shit happens, nákvæmlega. Aumingja maðurinn og fann ekkert fyrir þessu, fer bara heim að sofa. LOL
Linda litla, 18.4.2008 kl. 00:33
Hafðu ljúfa nótt Ragga mín
Brynja skordal, 18.4.2008 kl. 00:43
Rússneski Vodkinn alltaf jafn vinsæll, hvort heldur til drykkju, eða sem deyfing eða til sótthreinsunar.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 18.4.2008 kl. 01:02
Pabbi eignaðist einusinni Ginflösku og hugsaði sér gott til glóðarinnar seinna. Flöskuskömmin var inn í búri hjá mömmu og eiginlega gleymdi pabbi henni lengi en svo rankaði hann við sér og ætlaði að næla sér í. Þá brá svo við að flaskan var tóm. Þá hafði mamma notað eitthvað af henni til að sótthreinsa sár og svoleiðis og restin gufaði upp enda stóð flaskan við heitavatnsrör.
Svoleiðis fór um sjóferð þá!
Ragnheiður , 18.4.2008 kl. 01:13
He-he Þessi aðferð finnst mér nú eiginlega bara öllu heiðalegri en þessi íslenska. Það er að vera með hnífinn í bakinu án þess að hann sjáist. Ætla samt a taka þig til fyrirmyndar Ragga og telja eldhúsáhöldin áður en ég fer að sofa.
Bárður Örn Bárðarson, 18.4.2008 kl. 01:56
Miðað við hversu mikið Rússi getur drukkið af vodka, þá er ég ekki hissa.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.4.2008 kl. 02:14
Vodkinn klikkar ekki hahaha.Góðann Dag frú mín góð
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 08:59
Það er aldeylis að vodkinn deifir
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 18.4.2008 kl. 09:29
Góðan daginn hér. Þetta er svona ýkt birtingarmynd á alkahólisma og ég get ekki annað en hlegið. Mér finnst nefnilega svolítið krúttað að sá sem fékk hnífinn í bakið var ekki fúll. Hann sagði réttilega: Allt getur gerst á fylleríi. Er í kasti.
Ég hef ekki grænan grun um hversu margir hnífar eru hér en það er í lagi, allir edrú á heimilinu
Jenný Anna Baldursdóttir, 18.4.2008 kl. 11:14
Góðan daginn, nei hann var alveg líbó með þetta.
Ragnheiður , 18.4.2008 kl. 11:17
Þú kannt að orða það.
Þessi hefur verið í meira lagi ligeglad.
Anna Einarsdóttir, 18.4.2008 kl. 13:33
Hugarfluga, 18.4.2008 kl. 18:37
Kristín Katla Árnadóttir, 18.4.2008 kl. 18:41
Æi já, stundum getur maður bara ekki annað en brosað þó ekki sé beint broslegt að vakna upp með hnífasett út um allan kroppinn... Eigðu góða helgi kæra Ragnheiður mín!
Tiger, 18.4.2008 kl. 19:29
Ætli maðurinn hafi hætt að drekka eftir þetta?
Mummi Guð, 18.4.2008 kl. 21:21
annars bara kærleiks og helgarknús til þín elsku Ragga mín
Ásdís Sigurðardóttir, 18.4.2008 kl. 21:41
Hahahahaha sofðu vel
Góða helgi Ragga mín.
Eyrún Gísladóttir, 18.4.2008 kl. 23:37
Sá hefur verið búin að fá sér vel af vodka
Huld S. Ringsted, 18.4.2008 kl. 23:48
Já hversu oft hefur maður ekki vaknað með hnífinn í bakinu eftir svona fillerý, óþolandi þegar það gerist haha
Ylfa Lind Gylfadóttir, 19.4.2008 kl. 01:11
Haha þessi er góður
Ásta Björk Hermannsdóttir, 19.4.2008 kl. 10:31
Þessi er frábær
Marta B Helgadóttir, 19.4.2008 kl. 20:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.