Gömul mistök endurtekin
24.3.2008 | 00:17
Þegar Björn var lítill þá var hann áberandi rólegur og góður snáði. Hann er enn rólegur og góður en alls ekki lítill. Móðir hans endurtók í kvöld gömul mistök.
Þegar hann var lítill þá gleymdi ég honum í innkaupakerru í búð. Það var ekki fyrr en Solla hnippti í mig í bílnum og sagði : Mamma, en Bjössi ? að fyrirmyndarforeldrið áttaði sig og rauk inn og sótti snáðann sem sat hinn þægasti í kerrunni.
Í kvöld hringdi Björn í mig í vinnuna og bað mig um að sækja sig þegar ég væri á heimleið. Við Steinar vorum næstum komin heim þegar ég áttaði mig á raunveruleikanum........
Ooops I did it again
og við snerum við í ofboði og sóttum Bjössa. Á bakaleið meðgekk maðurinn minn að hann hefði verið að spá í að setja mig úr bílnum við Hrafnistu í Hafnarfirði (við snerum við hjá þeim afleggjara) en Björn taldi öll tormerki á að skilja móðurvesalinginn eftir þar og benti á notagildi téðrar móður í deild eldamennsku og hreingerninga.
Ó boj, ég er fegin að ég á þó inni það mörg prik hjá syninum að ég slapp við elliheimilið að þessu sinni.
Góða nótt
Athugasemdir
Já, heppin varstu, Björninn elskar þig greinilega þrátt fyrir gleymsku ofl. Þú verður að strjúka Steinari réttsælis svo hann fyrir gefi þér. Knús á ykkur elskuleg.
Ásdís Sigurðardóttir, 24.3.2008 kl. 00:23
Hehe já takk Ásdís mín, ég slapp með skrekkinn þarna.
Ragnheiður , 24.3.2008 kl. 00:24
Ahhhhhh........ óheppnir voru þeir á Hrafnistu núna. Þeir hefðu haft svakalega gaman af að fá þig inn. En það þarf víst að nota þig í eldhúsinu heima .. ... a.m.k. fram yfir páska. *dæs*
Skemmtileg færsla.
Anna Einarsdóttir, 24.3.2008 kl. 00:41
hehe gleðilega páska elsku vina
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 24.3.2008 kl. 00:42
Ég eldaði páskalambið heima hjá mömmu í kvöld, þannig að ég náttúrlega hefði tekið undir 'Dassssið' ...
Steingrímur Helgason, 24.3.2008 kl. 00:47
... þetta minnir mig á sögu af konu sem ég þekkti... hún átti mann og hjá þeim bjó nokkuð fullorðinn sonur... þau þvældust mikið um á bíl um landið... einu sinni fóru þau til Þingvalla og röltu um í góðu veðri. Héldu svo ferð sinni áfram í sumarbústað sem þau áttu á Þingvöllum, en úpps... feðgarnir gleymdu konu greyinu á Þingvöllum...
...það var orðið frekar hvasst í henni þegar karlarnir mættu, heldur lúpulegir að sækja hann löngu seinna...
Brattur, 24.3.2008 kl. 00:54
Ég hef oft þurft að telja börnin til þess að öll sem ég fór með, komi með heim Ég man samt ekki eftir því að gleyma barni
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.3.2008 kl. 01:06
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 09:08
Frábær færsla hjá þér,eins og alltaf.
knús á þig
Helga skjol, 24.3.2008 kl. 11:03
Heppin ertu Britney hvað Heimsljósið þitt er umburðarlyndur Bangsi
Hrönn Sigurðardóttir, 24.3.2008 kl. 11:27
Hehe já ýmislegt fyrirgefur Björn...sem betur fer.
Ragnheiður , 24.3.2008 kl. 11:30
Fékkst þú meilið frá mér Ragga mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 24.3.2008 kl. 11:36
Gott að þú mundir eftir honum áður en þú sofnaðir!
Hafðu það nú gott í dag, Ragnheiður.
Sigrún Óskars, 24.3.2008 kl. 11:36
Já Katla mín, ég fór að kíkja í pósthólfið mitt. Kærar þakkir.
Já segðu Sigrún, ég mundi þó eftir honum fyrir rest hehe
Ragnheiður , 24.3.2008 kl. 11:38
Þetta er matarástin Ragga mín sem liðið hefur á manni. Ef ekki væri fyrir hana værum löngu komnar í spennitreyju.
Jenný Anna Baldursdóttir, 24.3.2008 kl. 11:52
Björnin er yndislegur
Knús og klús
Kidda (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 12:04
minnir mig á mitt eigið húsband.....hann man ekki alltaf hvort hann er að koma eða fara og hver er með í för.....
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 24.3.2008 kl. 13:35
Hehehe, frábær færsla!
Hugarfluga, 24.3.2008 kl. 14:06
Æj Bjössinn minn....ég er alveg sammála þér að Björn er rólegur og hefur alltaf verið mér datt bara eitt í hug til að bæta við þetta eins og hann sagði svo oft þegar hann var lítill þegar hann vildi eitthvað líka.....íííggggaaa..... en það vantar bara hans bassa tóní þetta....knús á ykkur Kveðja Heiður.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 24.3.2008 kl. 15:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.