Varlega
1.1.2008 | 15:20
læðist ég hér inn á hvíta blaðið sem táknar árið 2008. Það er varla að ég tími að skemma. Við erum ein heima gamla settið og bæði eiginlega hálfóhrjáleg. Hann ók leigubifreið í nótt í svörtu myrkri og slagveðri. Ég sat og talaði stanslaust í alla nótt. Ég talaði reyndar eiginlega bara við bílstjórana mína en Nína sá um fólkið á línunni. Nú er ég eins og ég hafi verið draugfull.......fyrir nokkuð löngu vöknuð enda á ég morgunvakt á morgun og þarf að snúa sólarhringnum rétt.
Merkisdagur í dag. Elskulegur tengdasonur fagnar 25 ára afmæli...til hamingju Jón minn
Lappi byrjar árið á skakkaföllum. Honum hefur tekist að meiða sig á loppu og hann haltrar. Þess vegna fór Keli einn út áðan en kom heim í fylgd nágrannans. Þá hafði girðingin fokið hér alveg upp við húsið og við sáum það ekki. Keli kom bara hinn ánægðasti heim.
Hérna eru hinir bestu nágrannar. Ekki flugeldaóðir. Ekki partýóðir. Ekki á neinn hátt óðir. Hér er gott að búa.
Nú ætla ég að senda hausverkinn eitthvað annað......hver vill hann ?
Gleðilegt ár og takk fyrir kveðjurnar.
Athugasemdir
Gleðilegt ár. Það er gott að eiga góða nágranna.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 1.1.2008 kl. 15:26
Ég skal taka hausverkinn þinn.... ekki málið. Tek svo bara eina litla verkjatöflu og málið er leyst.
Mig dreymdi í nótt að ég væri handleggsbrotin, stóð bein upp í loftið rétt við olnbogann í draumnum.... og þegar ég vaknaði var ég hundaum á þessum sama stað. En svo ég sé nú alveg hreinskilin, held ég að ég sé ekki handleggsbrotin í alvörunni, heldur með oggolítinn marblett.
Anna Einarsdóttir, 1.1.2008 kl. 15:27
Gleðilegt ár og til hamingju með tengdasoninn. njóttu nýju auðu síðnana ég efast ekki um að þú skrifar eitthvað alveg magnað á þær
Kristín Snorradóttir, 1.1.2008 kl. 15:29
Gleðilegt ár og til lukku með tengdasoninn. Verður veisla.?? Hér er allt mjög rólegt, við hjónin sváfum í nótt svo hér er bara venjulegur dagur. Maður byrjar svo í rólegheitum að skrifa á auða blaðið. Efst hjá mér stendur núna "takk mamma fyrir að vera svona lengi til staðar fyrir mig og leyfa mér að elska þig svona mikið" kær kveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 1.1.2008 kl. 15:31
Ég held að það verði ekki veisla enda hefði ég ekki heilsu í að mæta í hana
Ragnheiður , 1.1.2008 kl. 15:37
óska þér innlega gleðilegt ár elsku Ragnheður og óska þér og fjölsk góða helgi kveðja Ólöf Jónsd
lady, 1.1.2008 kl. 15:37
Sendu hausverkinn og óhrjáleikann beint til mín, gerir ekkert til að bæta aðeins á það sem fyrir er fer ekki að vinna alveg strax.
Til lukku með Jón Berg
Það verður fróðlegt að sjá hvað verður á óskrifuðu blöðunum okkar.
Knús og klús
Kidda (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 15:42
Gleðilegt ár, elskan, og til hamingju með tengdasoninn. Knús í bæinn!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 1.1.2008 kl. 15:54
gleðilegt ár vina mín og til lukku með tengdasoninn
Guðrún Jóhannesdóttir, 1.1.2008 kl. 17:11
Til lukku með tengdasoninn. Til lukku með nýtt ár. Til lukku með lífið elsku Ragga. Fortíðina og allt annað sem gerir þig að þér. Gleðilegt nýtt ár kæra bloggvinkona.
Jóna Á. Gísladóttir, 1.1.2008 kl. 17:20
Gleðilegt nýtt ár Ragga mín, ég veit að þú með hjálp guðs og alheimsorkunnar færð gott nýtt ár.
Til hamingju með tengdasoninn og allt og alla.
Leiðinlegt með Lappa vona að hann lagist sem fyrst.
Ég skal taka hausverkinn ég ber bara á mig lavender súper
leggst aðeins útaf allt horfið.
Kveðja til þín og þinna.
Þín Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.1.2008 kl. 18:07
Gleðilegt ár aftur elsku Ragga og til hamingju með tengdasoninn. Aldeilis stórafmæli.
Knús á nesið, þar sem þú ert væntanlega með ÓRG sem nágranna næstu 4 ár, hehe.
Jenný Anna Baldursdóttir, 1.1.2008 kl. 19:55
Hann er ágætur granni..ekkert vesen á honum enn allaveganna
Ragnheiður , 1.1.2008 kl. 20:22
Ég var nú að spá í mótframboð. Bara til að verða þess heiðurs aðnjótandi að fá að vera nágranni þinn
Hrönn Sigurðardóttir, 1.1.2008 kl. 20:29
Hahaha takk Hrönn..krúttlegasta innlegg dagsins
Ragnheiður , 1.1.2008 kl. 21:28
Til hamingju með hann jón tengdasoninn.
Æj leitt að Lappi sé meiddur.
Kveðja til ykkar.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 1.1.2008 kl. 22:07
Vonandi lagaðist hausverkurinn Ragga mín
Knús
Maddý (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 22:41
Nú vorum við samtaka, báðar að kíkja á dugnaðarforkinn Þórdísi Tinnu á sömu mínútunni. Gleðilegt nýár annars og takk fyrir liðna árið.
., 1.1.2008 kl. 23:24
Gleðilegt nýtt ár!
Greta Björg Úlfsdóttir, 1.1.2008 kl. 23:35
Gleðilegt ár Ragga og megi nýtt ár verða þér og þínum gæfuríkt.
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 1.1.2008 kl. 23:39
Gleðilegt ár bloggvinkona. Takk fyrir heimsóknir og bloggsamskipti á nýliðnu ári.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 2.1.2008 kl. 02:19
Gleðilegt og gæfuríkt nýtt ár !!!!
Steinvör (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 03:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.