Amman á spennutrippi **uppfærsla**
27.11.2007 | 21:04
en barnið er ekki komið enn, miðað við gang mála um klukkan 18 þá getur biðin ekki verið löng í viðbót.
Fórum á American Style áðan...gríðarlöng bið. Kallinn sneri bílnum öfugt þannig að ég gat ekki farið í faraldsfræðirannsókn í huganum á holdafari viðskiptavinanna. Í staðinn sinnti ég ímynduðu umferðareftirliti út á götunni. Við biðum samt grínlaust í ca 40 mínútur þarna fyrir utan....brjálað að gera þarna.
Nú ætlar vinur minn að skella sér í kaffi til mína og ég ætla að gera hlé að skriftum og halda áfram að vera á skjálftavaktinni....
það gengur heldur hægt að koma barninu í heimiÞað gengur nn, sumir eru litlir sætir þverhausar. Eins og amman segir Steinar og er fjallviss um að það sé að birtast stórbrotin kvenpersóna í ættinni. Verst er að í hans haus er stórbrotin kvenpersóna þverhaus og þrjóskupúki eins og amman...
Amma áfram á vaktinni..(hver sýndi barni mynd af ömmu ?)
Athugasemdir
Þú mátt ekki klikka á upplýsingum kona góð. Þetta er spennandi, mjög, mjög spennandi eins og Jenný Una Eriksdóttir myndi segja.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.11.2007 kl. 21:07
Knús til þín Ragnheiður mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 27.11.2007 kl. 21:47
Hí,hí ég er líka svo spennt Knús til ykkar Ef barnið fer ekki að koma að þá verð ég örugglega vaknandi í alla nótt til að gá hvort að það eru komnar uppl.
Katrín Ósk Adamsdóttir, 27.11.2007 kl. 22:00
Ohhh.... ég get ekki beðið, nú verð ég límd við skjáinn í allt kvöld.
Gangi ykkur vel..
Guðrún B. (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 22:13
En spennandi :D .... það verður fyrsta sem maður gerir á morgunn áður en ég kíki á mbl.is að kíkja á síðuna þína og athuga með ömmubarnið
Gangi ykkur vel ... kveiki á tveimur kertum í kvöld. Eitt Himmaljós og eitt fyrir ömmuljósið
Hjördís Ósk (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 23:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.