Kerfisfræðingur
28.10.2007 | 21:45
ég er svoleiðis. Er það ekki annars þegar maður fer í kerfi ?
Auður litla er klár, Auður er litla systir hans Himma. Elst af Grindavíkursystkinunum, brosmild og ljúf hnáta. Hún sýndi mömmu sinni mynd af mér í sunnudagsmogganum. Þá hafði morgunblaðið birt áskorun mína varðandi myndbirtingar af banaslysum í umferðinni. ,,Hvernig fór ég að því að sjá þetta ekki !" sagði Björn alveg hneykslaður. Þá hafði hann eytt löngum tíma í að stúdera teikningu Sigmunds sem er bara beint fyrir ofan. Björn fær mínus fyrir athyglisgáfu en Auður fær plúsinn !
Ég er eitthvað dösuð í bili og skrifa síðar. Munið ljósasíðurnar og eigið góða nótt.
Athugasemdir
Sko þig.
Gott mál bara. Það er allt í lagi að láta aðeins í sér heyra þegar það á við. Gott að þeir tóku eftir þér.
Knús.
Guðrún B. (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 21:51
ég er líka svona kerfisfræðingur. Dúllan. Smjúts inn í nóttina.
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.10.2007 kl. 22:05
Auður kom alveg hlaupandi með blaði og sagði ...mamma RAGGA er í blaðinu rosalega glöð að sjá þig.....
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 28.10.2007 kl. 22:37
Birti Mogginn þetta ? !! Þá hafa þeir líklega lesið það líka.... og bregðast vonandi við. Þú ert kjarnakona Ragnheiður.
Anna Einarsdóttir, 28.10.2007 kl. 23:26
Bjarndís Helena Mitchell, 29.10.2007 kl. 00:17
Góð
Salka, 29.10.2007 kl. 00:59
Þeir fara þá vonandi eftir þessu og hætta að birta myndir af vettvangi slysa.
Alveg sammála þér með einkunnagjöfina
Sumir fara í nám til að verða kerfisfræðingar, en okkur mörgum er það bara meðfæddur eiginleiki
Knús og klús
kidda, 29.10.2007 kl. 11:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.