Alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna

Hann er í dag.

Ég hafði ekki hugmynd um að slíkur dagur væri til þar til sonur minn fyrirfór sér fyrir 6 árum. Ég vissi nánast ekkert um sjálfsvíg, hafði ekki leitt hugann að því.

Ég vissi ekki að ég sem foreldri stæði brotin eftir - löskuð fyrir lífstíð.

Allskonar erfiðar tilfinningar hafa gert vart við sig. Hjálparleysið og sorgin, óskin um að hafa getað hjálpað áður en svo afdrifarík ákvörðun var tekin. Óskin um að hafa verið treyst nóg til að segja manni hvað væri að gerast og hvað væri að. Óskin um að hafa staðið sig betur svo barnið hefði orðið sterkari einstaklingur og fundið aðra leið í sínum vandræðum. Sársaukafull sjálfsskoðun sem stendur enn yfir, yfirtekur lífið að nokkru leyti og veldur svo sárri kviku innra með mér. Stundum þarf ég að anda mig í gegnum andlega sársaukann, þvílíkar kvalir.

 

Áður undirliggjandi andlegar flækjur hafa magnast upp. Félagsfælnin er alveg laus úr sínum böndum og valsar um frjáls. Mér finnst hæfnin til mannlegra samskipta hafa tapast mikið. Enda hvernig mætti annað svo sem vera ? Mér tekst að rífa sjálfa mig niður daglega, ég skal alltaf finna eitthvað bilað og brogað við mig og þá oftast sem persónu.

 

Í kvöld verður samvera í Dómkirkjunni - klukkan átta. Þar minnunst við þeirra sem tekið hafa líf sitt.

 

Góðar stundir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta smarta

Elsku Ragga mín <3

Marta smarta, 17.9.2013 kl. 13:39

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ég vild að ég hefði séð þetta blogg fyrr. Ég sé að það er ritað 10.9. Já, það er gott að það er vakin athygli á þessu. Það vonandi hjálpar einhverjum og vonandi er hægt að hindra sjálfsvíg. Ég veit að enginn getur skilið hvað þú hefur gengið í gegn um sem ekki hefur reynt það og ég veit að hvert orð sem þú skrifar hér er satt og rétt. Ég get bara ímyndað mér hve erfitt þetta er. Elsku Ragga mín, faðmlag og knús frá mér er það eina sem ég get gefið þér og geri sannarlega. <3

Jórunn Sigurbergsdóttir , 18.9.2013 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband