ætti að vera auðvelt..
19.5.2011 | 01:12
að sporna við afbrotum í sveitarfélaginu. Við erum meira að segja betur sett en Seltjarnarnes, þar eru tvær aðkomur á nesið. Hjá okkur er bara ein.
Mig minnti nú samt að afbrot á Álftanesi væru ekkert svo mikil, sá einhverja tölfræði frá lögreglunni. En það er sama, betra að vera viðbúinn.
Einhverjir eiga samt eftir að verða gríðarlega hneykslaðir og æpa hástöfum um stóra bróður og hið alsjáandi auga.
Ætli það hafi einhverntímann verið brotist inn hjá þeim ?
Mynda þá sem koma á Álftanes | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mig grunar að í þessu tilfelli skipti máli að Beesstaðir eru þarna líka.....
Eyþór Örn Óskarsson, 19.5.2011 kl. 01:51
Persónuvernd stendur með glæpamönnum en vinnur gegn heiðarlegu fólki. Þeir hljóta að gera athugasemd við þetta ef stofnunin er sjálfri sér samkvæm.
Jón Óskarsson, 19.5.2011 kl. 09:00
Veit ekki hvað mér finnst um þetta ef satt skal segja. En tel samt að það væri hægt að fara árangursríkari leiðir að vandamálinu. Eins og að byrja á því að TAKA Á upphafi vandans strax, en ekki þegar allt er komið í hnút.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.5.2011 kl. 11:57
Ég fer að kíkja inn hjá þér yndið mitt :)
Ásdís Sigurðardóttir, 19.5.2011 kl. 12:14
Þeir gera þetta í Hveragerði :)
Hrönn Sigurðardóttir, 19.5.2011 kl. 14:31
Úbbs ekki hef ég orðið vör við það, og hef meira að segja farið bæði ómáluð og ógreidd í Hveragerði
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.5.2011 kl. 17:53
Jesús Pétur og María!!
Þú mátt aldrei láta það koma fyrir aftur
Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2011 kl. 22:15
Nebb ég lofa
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.5.2011 kl. 23:36
Svo ætlaði Pósturinn að fara að auðvelda glæpamönnum umgengni um hverfin, einkum hin fámennari, með því að neita að skila pósti þar sem aðeins er ein póstlúga nema nöfn íbúanna séu skráð þar utan á. Svo glæpamenn geti a)leikið sér með blekkingar út frá þessum nöfnum b)gert sér grein fyrir hve margir búa á tilteknum stað og gert sínar ráðstafanir út frá því.
Sem betur fer hefur þessu verið frestað um sinn. Vegna kvartana, m.a. frá mér.
Sigurður Hreiðar, 23.5.2011 kl. 11:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.