hænur
3.12.2010 | 17:03
Sterileseruð borg, ó borg mín borg.
Það er einmitt gaman að fjölbreyttni í umhverfinu sínu.
Hér heima eru vorin dásamleg, allir fuglarnir sem koma.
Ég er með hænur, var líka með hana en við förguðum honum. Ég reyni að leitast við að ekki sé ónæði af hænunum mínum eins og lykt. Ég set kattasand í gólfið. Ég er líka með spæni á gólfinu.
Þarna er ein kona sem kvartar. Það er víst nóg.
Fær ekki að halda hænur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Vonandi átt þú betri nágranna en þessi kona
Kidda, 3.12.2010 kl. 17:55
Það væri best að allir ættu hænur, og þeir sem efni hafa á kæmu sér eigin gróðurhúsi. Egg gefa prótín í nægilegu magni. Nú er bæði fátækt og óeðlileg staða í verslunarmálum eins og fréttir sýna. Þjóðin á að sýna sjálfstæði og hugrekki. Breytum þessum fáránlegu lögum. Það er ekkert meira ónæði af hænum en köttum eða háværum páfagaukum!
Hænur takk! (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 18:26
Við viljum hænur !
Ég styð hænsnabændur landsins, hvar sem þeir eru.
Anna Einarsdóttir, 3.12.2010 kl. 20:06
Styð hænur og langar í eins og þrjár eða fjórar :)
Hrönn Sigurðardóttir, 4.12.2010 kl. 12:37
Ég er með hænur, meira að segja bæði íslenskar og þýskar. Varð að láta farga hananum, því hann var með ofbeldi við aðrar hænur en sínar tvær uppáhalds. Er að fá annan, sem verður vonandi ljúfur og góður.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.12.2010 kl. 13:18
Já hænur eru snjallar. Það er ótrúlega gaman að spá í þær.
Haninn minn var fantur við hænurnar og réðist á yngri hænurnar - það hefði líklega jafnað sig en hann hafði alltaf verið með tilburði í að hjóla í mig og þar brast þolinmæðina.
Ragnheiður , 4.12.2010 kl. 13:53
Ótrúleg geðvonska að kvarta yfir hænunum.Hefði skilið það er það hefði verið hani sem galaði um miðja nótt en smá kvak í hænum .Sorglegt að vera svona pirruð típa.Hænurnar eiga minn stuðning
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.12.2010 kl. 17:53
Ef ég er alveg hreinskilin þá finnst mér hanar mjög leiðinlegir - sorrý !!
Ég verð ekkert vör við hænurnar þínar Ragnheiður, en er ekki bara heimilislegt að hafa hænur í garðinum?
Sigrún Óskars, 4.12.2010 kl. 19:36
Hanar eru hundleiðinlegir :) það er bara þannig... Jú jú þær eru bara hérna í garðinum. En í girðingu samt þannig að þær fari ekki út um allt
Ragnheiður , 4.12.2010 kl. 19:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.