spurning

hvort fólk er á leiðinni í öskuflótta eða bara í frí eins og fólk gerir.

Þessi aska hér sunnanlands truflar okkur lungnaspaðana - mismikið auðvitað. Ég get ekki verið úti og á dálítið bágt þegar ég þarf að komast milli húsa. Samt er ég alls ekki svo slæm , ég finn til með þeim sem eru verri í lungunum en ég.

Ég hinsvegar fæ strax aukaverkanir astmans, þessa lamandi þreytu sem orsakast líklegast af lélegri súrefnisupptöku. Fer sko bráðum að lúlla mér.

°°°°° °°°°°

Ég horfði á nýjan borgarstjóra uppi á þaki í dag og reyndi enn að skilja hann - hann segir ekkert hvað hann vill gera og ég er að spá í. Getur verið að hann vilji ekkert segja ? Það er ekki hægt að hanka hann á að hann hafi sagt þetta og hitt ef hann bullar bara ? Ég vil nú ekki ganga svo langt að segja að mér lítist ekki á þetta - ég vil nefnilega sjá og gefa þessu sjéns.

°°°°° °°°°°

Annars þyrfti ég að komast út úr húsi - ég finn ekki hann Rómeó minn , rauðbröndótta töffarann minn.


mbl.is Mikil umferð út úr öskunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Mér líst vel á Jón Gnarr.  Ég held hann auki gleði landsmanna sem síðan eykur vinnugleði (og framlegð) sem skilar sér í fleiri krónum í ríkiskassann sem síðan styttir kreppuna. 

Mér finnst að askan eigi bara að falla einn dag á ári.  Á öskudag.

Anna Einarsdóttir, 4.6.2010 kl. 21:48

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er illa stödd hér í bæ með mín lungu, þyrfti að komast norður, ætla að sjá til í nokkra daga.  Farðu vel með þig Ragga mín. Mér líst ekkert á Jón og Dag, en þeir fá sinn séns eins og aðrir.

Ásdís Sigurðardóttir, 4.6.2010 kl. 22:26

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vonandi skilaði þinn rauðbröndótti köttur sér

Hrönn Sigurðardóttir, 5.6.2010 kl. 01:06

4 Smámynd: Kidda

Sammála Önnu bæði með Gnarrinn og öskuna. Best væri ef það kæmi rétt átt af miklum krafti í nokkra daga sem myndi feykja öskunni langt út á haf og hún kæmi ekki aftur. Fékk smá nasasjón  af því hvað bíður mín ef ég hætti ekki að reykja fljótlega, finn til í lungunum eftir að hafa verið út í gær í þessu öskufalli.

Yfir Álftanesini var brúnn mökkur séð frá mér svo að ég skil þig vel. 

Vona að Rómeó hafi bara farið í skjól fyrir öskunni og skilað sér svo heim.

Knús og klús

Kidda, 5.6.2010 kl. 08:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband