Borgarstjórn og bæjarstjórnir
26.5.2010 | 12:25
þurfa að virka líkt og gott hjónaband. Málamiðlanir og gagnkvæm virðing. Ólafur F. hefur áreiðanlega ekki verið sveiganlegur og telur sér það hér til tekna, líklega ætti það að fara á galla-listann hinum megin á síðunni hans.
Að kalla önnur framboð ljótum nöfnum hjálpar honum áreiðanlega ekki að sættast við "núllið" sem við blasir. Hann hefur aldrei átt sérlega gott með að lesa í hug kjósenda blessaður.
Sumir ganga aldrei í hjónaband.
Aðrir reyna og reyna en aldrei endist hjúskapurinn.
Þeir eru eins og Ólafur F. Blindir á veruleikann, viljandi eða óviljandi. Það er ekki gott að segja.
Ólafur: Könnunin ómarktæk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Besti flokkurinn virðist besti kostur í höfuðborginni,þeir bulla minnst
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 12:37
Hugsa svei mér þá að ef Besti byði sig fram í Kópavoginum að ég myndi slá til. Við höfum líka hér í mínum bæ veruleikafirrta einstaklinga í kjöri.
Knús og klús
Kidda, 26.5.2010 kl. 21:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.