Það er ekki nóg
21.5.2010 | 19:53
að hér hafi öllu verið riðið á svig og allt keyrt í kaf.
Það þarf enn að pukrast og fela og vesenast.
Það er allt í lagi - auðvitað ekki. Ég hef ákveðið að kjósa (ykkurvarðarekkiumþað) og ekkert sem þetta fólk segir og gerir kemur mér á óvart.
Þegar ég pikka þetta inn þá hlusta ég að ræðu Vilmundar Gylfasonar - og sakna hans gríðarlega.
Ég býst við spennandi kosningum í Reykjavík, það verður fjör að fylgjast með þessu
Miðað við kannanir þá mun Besti rúlla þessu upp.
Ég missti alveg úr slag í gær þegar ég horfði á myndbandið með mótmælendunum, myndbandið sem sannar að þingverði var ekki hrint á ofn - myndbandið sem SÝNIR að ekki er sagt satt, hver tilgangurinn er ...nú get ég ekki svarað. Átta prósent örorka - trygging í vinnunni - nei hvað veit maður. Mér finnst viðkomandi þingvörður hafa gert alvarlega skyssu og rétt væri að hann bættist í raðir atvinnulausra. Það hlýtur að vera hægt að velja einhvern annan úr þeim bunka sem er sæmilega heiðarlegur. Maður veit þó ekki - lengi má menn reyna og svo hef ég grun um að sótthreinsa þurfi húsið. Það gengur lygabrandur þarna ljósum logum um allt.
Það segi ég satt. Löggan hefði átt að snúa hinsegin í búsáhaldabyltingunni !
Njótið hvítasunnuhelgarinnar - það ætla ég að gera, af lífi og sál :)
Skýrsla um Álftanes birt eftir kosningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Við yrðum nú fínir þingverðir. Við gætum boðið upp á kaffi og kleinur ef gesti bæri að garði.
En í alvöru; Það er fyrir neðan allar hellur að ætla að setja ungmennin í fangelsi fyrir þetta hnoð.
Anna Einarsdóttir, 21.5.2010 kl. 21:02
Úbbs, gleymdi......
Rosa góða helgi !
Anna Einarsdóttir, 21.5.2010 kl. 21:03
Jamm.... það ætla ég líka að gera :)
Ég held að alþingi sé reist á álagabletti! Það gerist eitthvað fyrir fólk sem ræður sig til starfa þarna...........
Hrönn Sigurðardóttir, 21.5.2010 kl. 21:03
...og þá eru allir hlutar heilans á sama staða á sama tíma! ÞAÐ kemur ekki oft fyrir ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 21.5.2010 kl. 21:04
Hahaha brein power stelpur !
Rosa góða helgi til baka - þið eruð bestar !
Ragnheiður , 21.5.2010 kl. 21:59
Hrönn Sigurðardóttir, 21.5.2010 kl. 23:33
Nú beið ég aðeins með hjartað. Of áberandi ef við erum ALLTAF á sama tíma.
Anna Einarsdóttir, 22.5.2010 kl. 00:07
hafðu það gott um helgina Ragnheiður og til hamingju með stelpuna þína
Sigrún Óskars, 23.5.2010 kl. 09:20
takk Sigrún mín
Ragnheiður , 26.5.2010 kl. 18:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.