Góður dagur
14.9.2008 | 15:53
enda hitti ég afar hamingjusaman frænda áðan, hann kom hér í fylgd móður sinnar til að sýna frænku bílinn sinn nýja. Strákur fær prófið 23 nóvember og hann er lengi búinn að telja dagana. Það birtir alltaf yfir öllu þegar þessi yndislegi sólargeisli birtist.
Steinar grunnaði nýja gluggann og það er allt annað að sjá hann. En ég þarf greinilega að mála einn stofuvegginn aftur. Kelmundur á til að elta ljósið um allt og upp alla veggi líka. Hann er búinn að sleikja vegginn þannig að hann er allur skellóttur fyrir ofan sófann. Asnaprik hann Keli.
Keli segir að mér hafi bara sjálfri verið nær að mála ekki með hærra gljástigi!
Ég á ekki von á að vera nógu dugleg að blogga til að halda athygli ykkar í vetur. Ég hef tekið nokkur skref fyrir sjálfa mig og þessi bloggsíða lenti utangarðs í skipulaginu. Það er auðvitað gangur lífsins, bloggarar koma og fara.
Ég fer þó líklega ekki lengra en það að í mig næst í emaili -en kannski ekki endilega samdægurs.
Munið ; Þolinmæði er dyggð
(fliss)
Farin- bæ
Bloggar | Breytt 21.9.2009 kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Ja hvað skal segja
13.9.2008 | 21:03
ég les yfir fréttamiðlana, með hroll og óbragð í munni, allt of margar fréttir fjalla um kynferðislega misnotkun á börnum. Það yngsta alvarlega slasað, vikugamalt kríli.
Mér býður við þessu.
Veðrið er ekki til að kæta mig heldur, rok og rigning.
Það væri líklega best að steinhætta að lesa fréttir, horfa og hlusta á fréttir. Vera bara eins og bjöllusauður og vita ekki neitt um neitt.
Bloggar | Breytt 21.9.2009 kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Hér er eitthvað sniðugt
12.9.2008 | 20:19
http://visir.is/article/20080912/LIFID01/261503177
en ég ætla að horfa á þá nágranna mína í útsvari !
Ég bý í gáfuðustu götunni hér hehehehe
Bloggar | Breytt 21.9.2009 kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Afmæli
11.9.2008 | 21:46
Hann Pétur uppáhaldsfrændi minn á afmæli í dag, hann (hemmhemm mamma hans) bauð gamla settinu héðan í kjúkling .
Þannig að nú sit ég hér heima-pakksödd -alveg.
Undanfarna daga hef ég óskað þess að ég væri milli...eða margmilli, það er reyndar ekki fyrir mig sjálfa. Mig vantar ekki neitt. Líður alveg ferlega vel í mínu eigin skinni og lífi enda vinn ég í því hörðum höndum að geðheilsan verði í lagi.
En ég vildi óska þess að ég gæti hjálpað meira með sjúkrahúsreikning Ellu Dísar.
Síðan hennar Rögnu móður Ellu Dísar
Ég er reyndar alltaf að setja inn eitthvað svona, örugglega margir orðnir dauðleiðir á mér með þetta en það verður að hafa það. Hér er ansi mikil umferð og mér finnst rétt að reyna að nýta "gestina" mína til góðs. Ég veit nefnilega að það þarf ekki mikið frá hverjum og sér í lagi ekki ef einhver fyrirtæki eru að leggja inn stærri upphæðir.
__________________________________________________
Að öðru.
Einelti er ljótt orð og enn ljótari athöfn. Margir tengja það við börn og ungmenni en það þekkist líka meðal fullorðinna. Oft gerir fólk þetta ómeðvitað en stundum með svo rætnum og ógeðslegum undirtón, vitandi vits, að manni verður eiginlega illt.
Þannig leið mér þegar ég las í dag um sérstaka facebook síðu sem virðist ekki hafa neinn annan tilgang en að sverta Stefán Fr. sem bloggar hér á vef Morgunblaðins. Það má finna slóð á þessa síðu hjá Jennýu og Jens. Mig langar ekki að afrita hana hingað, nóg er nú samt.
Ef þið þolið ekki Stefán þá lesið þið einfaldlega ekki síðuna hans og málið er dautt ! Að ráðast svona að honum eins og gert er -er auvirðilegt og ekki nokkrum manni til sóma.
Ég les oft Stebba-blogg og sé bara ekkert athugavert við það en ef mér leiddist það þá myndi ég ekki svekkja mig á að lesa það. Hvað er eiginlega málið með fólk sem situr um að lesa síður sem það hatar að lesa og les þær samt ? Masókistar ?
Djö myndi ég ekki nenna því...nóg getur lífið verið leiðinlegt samt !!
Bloggar | Breytt 21.9.2009 kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Vondar hugmyndir, lumið þið á svoleiðis ?
11.9.2008 | 16:32
Öll höfum við gert skandal á einhverjum tímapunkti í lífinu og nú er kominn tími til að deila svoleiðis reynslu með hinum.
Ég er ekki að meina misheppnuð ástarsambönd eða slíkt enda þarf tvo í svoleiðis tangó...ein misvitur kelling er ekki nóg.
Sko þegar ég var tvítug þá fannst mér tilhlýðilegt að halda upp á afmælið enda komin með mann -barn og annað barn í smíðum. Ég bauð helling af liði og þar á meðal konum tveim sem þá höfðu ekki talast við í mörg ár. Allt kvöldið sátu þær eins og festar upp á þráð, önnum kafnar við að sjá ekki hina.
Hvað hélt ég ? Að þær myndi stökkva í faðmlög eins og þarna Heathcliff og hvaðhúnhétkonanþaráheiðinni ?
Í áraraðir á eftir spurðu þær mig alltaf þegar ég bauð þeim heim hvort HIN yrði þar.
Þetta er baneitraðasta hugmynd sem ég hef fengið ....
Hver er þín versta hugmynd ?
Bloggar | Breytt 21.9.2009 kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Borgarstjórinn í Reykjavík
11.9.2008 | 10:31
hefur ekki farið í lýtaaðgerð. Þetta sá ég á einhverjum vefmiðlinum í morgun. Mér varð hugsað til hina fyrri borgarstjóra og það veit sá sem allt veit að um næga borgarstjóra hefur verið að ræða. Ekki minnist ég þess að gert hafi verið að umtalsefni mögulegar lýtaaðgerðir á þeim. Þá er spurningin þessi ; eru það karlar sem eru að spá í þetta ?
Það er ég viss um að er ekki. Það eru konur sem eru að spá í útlit borgarstjórans. Það er bara einfaldlega horft allt öðruvísi á konur en karla í opinberum embættum.
Það er asnalegt.
Bloggar | Breytt 21.9.2009 kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Hvað finnst fólki um
8.9.2008 | 20:59
þessa ritskoðun sem er í gangi hér á blogginu.
Sjá t.d. hérna www.blekpenni.blog.is
Hún hefur ekki verið einn minna bloggvina en ég hef oft lesið síðuna hennar, ekkert sammála henni í öllu en þó frískleikablær á síðunni hennar oft á tíðum.
Veit einhver hvernig svona virkar ? Afhverju missir fólk möguleikann á að tengja við fréttir ? Hvað veldur ? Kvartanir ? Frá hverjum og hvernig ?
Ég var að breyta aðeins hérna hjá mér....setti inn aðra mynd (me on a bad hairday) og tók út ræðuna í höfundarboxi...aðeins að skapa smá fjarlægð við netið.
En endilega..deilið með mér skoðunum ykkar á ritskoðun.
Svo eitt enn, tengi einhver við frétt og fer eitthvað útaf sporinu í færslu sem um það fjallar, er það virkilega frágangssök ? Verður hvert orð í færslunni að víkja nákvæmlega að frétt þeirri sem tengt er í ?
Má ekki segja sem svo....tengt í frétt og svo kemur kannski skemmtisaga frá viðkomandi bloggara um Gróu frænku sem lenti svo nákvæmlega í svipuðu ?
Búa til umræður um viðkomandi fréttir ....
Hvað má hérna !?
Bloggar | Breytt 21.9.2009 kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Sumir dagar
8.9.2008 | 20:08
eru asnalegir en það er allt í lagi. Næst þegar ég fer út þá ætla ég að muna eftir að kveikja á heilanum áður en ég æði af stað.
Sat eins og sá sofandi sauður sem ég er við Sögu í dag og tók ekki eftir stærstu gerð af rútu sem varð að brölta upp á eyju. Kunningi minn var á öðrum Kynnisferðabíl þarna hinu megin við og kom og skammaði mig.... Ekki veit ég hversu trúlegt honum fannst að ég sá ekki þennan fjórtán metra langa bíl.......
Svo kom farþegi sem var að flýta sér. Ein ljósin sem ég tróðst yfir í umferðinni voru orðin....ehhh....öhhh.....svona appelsínugul. Þar er myndavél. Ég horfði á hana og hún gerði ekkert, augun hvörfluðu niður staurinn og þar sat mótorhjólalögga... Ég sá hann náttlega ekkert frekar en 14 metra rútuna rétt áður...og beið eftir að hann elti mig upp og skammaði mig í formi sektarmiða.
Það gerðist ekki. Ég slapp. Með skrekkinn
Annars hef ég eytt deginum mest í borðalagða menn. Það er hressandi fyrir konur eins og mig - men in uniform jú sí Steinar af síðunni minni !
Annars er ég góð, vetrarplanið er að smella saman og ég er ferlega góð bara...dadída..
Bloggar | Breytt 21.9.2009 kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ráðist á gamlingjann
8.9.2008 | 10:13
og það fauk alveg herfilega í kallinn minn.
Það er girðingardrusla þarna í kringum völlinn en auðvitað er ekkert mál að klöngrast yfir hana. Steinar vill fá rafmagn í girðinguna þannig að um leið og þeir klofa yfir þá kemur myndarlegur straumur beint í p.....inn á þeim. Það myndi kenna þeim, hvæsti hann sótrauður í framan af hneykslun á meðferðinni á Páli vini sínum.
Svo undarlegt árátta sem þetta er þá svipar þessu helst til merkinga sem fresskettir (ógeltir) stunda. Kettirnir marka sér svæði, yfirráðasvæði, og þetta er eins. Ég held að það sé styttra síðan "krotararnir" duttu úr trjánum en við hin almennt. Það munar amk einum ættlið eða meira síðan.
Auðvitað vaxa menn uppúr þessu.
![]() |
Skemmdarverk á Þristinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 21.9.2009 kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þótt þú langförull legðir
7.9.2008 | 22:33
Og hér er óneitanlega ferðalangur dagsins kominn, með nafn fyrrum eiganda á nebbanum og hliðunum. Þessi bíll er í Afganistan.
Mér hefði nú þótt betra að hafa M númerið á honum áfram en það verður ekki á allt kosið í þessu lífi.
Ríkissjónvarpið olli mér nokkrum vonbrigðum áðan. Þeir voru með þátt helgaðan minningu Sigurbjörns Einarssonar og mér fannst þessi þáttur alls ekki nógu vel unninn. Það hefði verið hægt að setja upp svo miklu skemmtilegri þátt. Af nógu er að taka á langri ævi Sigurbjörns.
Í mínum huga og svo margra annarra var hann mesti andans maður sem uppi hefur verið. Ég hlustaði á þessi ræðubrot sem þó voru flutt og fannst mikið til koma og saknaði þess að hafa ekki haft á því skárra vit sem barn að hlusta á hann.
Bloggar | Breytt 21.9.2009 kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)