Yndisleg fyrirsögn-svo greinileg
4.10.2009 | 17:24
en ég ætlaði að gera að stuttu umtalsefni gatnamótin sem þarna var um að ræða. Þetta var hörð aftanákeyrsla við innkeyrsluna í Túnin og að nýrri stórverslun Hagkaupa í Garðabæ. Þarna eru líka gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar. Þarna hafa orðið margar aftanákeyrslur og eiga eftir að verða margar enn. Algerlega óásættanlegt að ekki skuli koma aðrein að þessari útkeyrslu á Hafnarfjarðarvegi.
Jú jú öll eigum við að fylgjast með en ef allir væru alltaf fullkomnir í umferðinni þá yrðu aldrei árekstrar.
Önnur slaufa sem truflar mikið ökumenn er af Bústaðabrú til vinstri í átt að Kópavogi. Þarna stöðva ökumenn efst í þessum ramp, snúa sig nánast úr hálslið til að fylgjast með umferð af Bústaðavegi og niður sama rampinn í stað þess að aka aðeins greiðar inná, nota speglana og skjótast inn í röðina þegar færi gefst.
Tveggja bíla árekstur í Garðabæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Bestu kveðjur Ragga mín. Ég geti vettvangsarannsókn þara.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 4.10.2009 kl. 23:56
Maður verður alltaf að passa sig og gera ráð fyrir að hinir sjái mann ekki, þá sleppur þetta til.
Ásdís Sigurðardóttir, 5.10.2009 kl. 13:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.