Okkar framtíð ?
10.2.2009 | 14:09
ég er alltaf að skilja betur og betur hvernig AGS (IMF) virkar. Hann setur löndin í þumalskrúfur og þau eiga að bregðast við eins og samningurinn segir til um. Það hefur verið talað um að allsstaðar þar sem AGS hefur komið að málum þá séu viðkomandi lönd rjúkandi rústir á eftir.
Við erum hér æpandi á torgum, berjandi í potta og pönnur. Spurningin er sú ; skiptir það í raun máli ? Ekki misskilja, ég er hreykin af búsáhaldabyltingunni en spurningin kemur einfaldlega upp í hugann vegna þess að ég er farin að hallast að því að það sé skítsama hver er í stjórn á Íslandi.
VIÐ RÁÐUM ENGU !!!!!!!!!!!!!
IMF lán Úkraínu í uppnámi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er einmitt það sem ég hef verið að reyna að segja síðustu mánuði. Við ráðum sko engu og það er miður. Kveðja.
Ásdís Sigurðardóttir, 10.2.2009 kl. 14:11
Ragga, þetta sögðu nú VG í haust þegar þeir voru að vara við AGS. Sögðu að með því værum við að framselja okkur til þeirra.
Kannski að þeir hafi haft rétt fyrir sér.
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.2.2009 kl. 14:41
Já ég veit Jenný, ég tók ekki nóg mark á því. Hélt að það væri hræðsluáróður
Ragnheiður , 10.2.2009 kl. 14:49
Já og annað! Höfum við eitthvað við þetta lán að gera?
Hrönn Sigurðardóttir, 10.2.2009 kl. 14:59
Af hverju þurfum ég og þú og allir hinir að gjalda fyrir glæpi annarra
Af hverju eigum við íslendingar að taka á okkur klúður annað hvort EES eða ESB í sambandi við regluverkið og fjármálastofnanir.
Ég vil fá líf mitt til baka eins og það var 28.september.
Mér er illa við að setja svona ljóta kalla á síðuna þína en þegar þetta mál er til umræðu þá er bara ekki annað hægt.
Knús og klús í staðinn
Kidda (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 16:58
Gott að fá þig aftur í bloggvinahópinn Ragnheiður mín.
Já stundum spyr maður sjálfan sig, hvort það skipti einhverju máli hver er við stjórn, en ég hef samt meiri trú á því fólki sem stjórnar núna, en sjálfstæðisflokknum.
Margrét St Hafsteinsdóttir, 10.2.2009 kl. 23:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.