Ég hef ákveðið

að óska sjálfri mér til hamingju með nýjan forsætisráðherra, frú Jóhönnu Sigurðardóttur. Ég hef fulla trú á henni.

Ég hlakka til að sjá handbrögðin.

Ég lenti í smá aldurskrísu áðan, yngsti ráðherrann sem á afmæli í dag er fædd á fermingarárinu mínu...Crying

Jæja, hvar fær maður keypt ný fæðingarvottorð ? Þetta gengur auðvitað ekki.

Hérna kemur ferilskrá hinnar ungu Katrínar Jakobsdóttur

Katrín Jakobsdóttir

      F. í Reykjavík 1. febr. 1976. For.: Jakob Ármannsson (f. 7. maí 1939, d. 20. júlí 1996) bankamaður og kennari og k. h. Signý Thoroddsen (f. 13. ágúst 1940) sálfræðingur, dóttir Sigurðar S. Thoroddsens alþm., bróðurdóttir Katrínar alþm. og Skúla S. Thoroddsens alþm., sonardóttir Skúla Thoroddsens alþm. M. Gunnar Örn Sigvaldason (f. 13. mars 1978) framhaldsnemi í heimspeki. For.: Sigvaldi Ingimundarson og k. h. Sigurrós Gunnarsdóttir. Synir: Jakob (2005), Illugi (2007).
      Stúdentspróf MS 1996. BA-próf í íslensku með frönsku sem aukagrein HÍ 1999. Meistarapróf í íslenskum bókmenntum 2004.
      Málfarsráðunautur á fréttastofum RÚV í hlutastarfi 1999–2003 auk fjölmargra sumarstarfa. Dagskrárgerð fyrir ljósvakamiðla og ritstörf fyrir ýmsa prentmiðla 2004–2006. Kennsla fyrir Endurmenntun, símenntunarmiðstöðvar og Mími tómstundaskóla 2004–2007. Ritstjórnarstörf fyrir Eddu-útgáfu og JPV-útgáfu 2005–2006. Stundakennsla við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Menntaskólann í Reykjavík 2006–2007.
      Í Stúdentaráði HÍ og háskólaráði 1998–2000. Formaður Ungra vinstri grænna 2002–2003. Fulltrúi í fræðsluráði, síðar menntaráði, Reykjavíkur 2002–2005. Formaður nefndar um barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur 2002–2006. Varaborgarfulltrúi fyrir Reykjavíkurlistann 2002-2006. Varaformaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs síðan 2003. Formaður samgöngunefndar Reykjavíkur 2004. Formaður umhverfis- og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 2004.

      Alþm. Reykv. n. síðan 2007 (Vg.).
      Efnahags- og skattanefnd 2007-, menntamálanefnd 2007-.

¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨

Svo unnu Frakkar heimsmeistaratitilinn í handboltanum og ég hélt með þeim.

 


mbl.is Slá skjaldborg um heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

SushiKnús knús og ljúfar kveðjur........

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 1.2.2009 kl. 18:50

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Katrín er frábær, held ég, og ég treysti Jóhönnu vel. Svo hef ég alltaf verið mjög hrifin af Ástu R. Hún hefur áorkað ýmsu frábæru í gegnum tíðina.

Knús til þín, elsku dúllan mín. 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 1.2.2009 kl. 19:04

3 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

já Jóhanna og katrín eiga eftir að standa sig vel

knús og kram til þín Ragga mín

Guðrún unnur þórsdóttir, 1.2.2009 kl. 19:42

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mér líst vel á Katrínu! Hún er skelegg, segir það sem hún meinar og meinar það sem hún segir.

Hlakka til að nálgast peysuna - verð í sambandi við þig þegar ég kem í peysuferð

Hrönn Sigurðardóttir, 1.2.2009 kl. 20:00

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Katrín er alveg frábær og skelegg þótt ung sé.  Ég kynntist henni aðeins í nefndarstarfi hjá Reykjavíkurlistanum.  Þar var hún formaður og yngst okkar sem þar sátum.  Hún var skipulögð, ákveðin, skýr og skynsöm og ekki með snefil af hroka.  Mér sýnist hún halda þessum einkennum með aldrinum

Sigrún Jónsdóttir, 1.2.2009 kl. 20:17

6 identicon

Ég fékk einmitt pínu aldurskrísu þegar ég sá að hún er árinu yngri en ég.......og unglingarnir sem ég kenni eru 18-19 árum yngri en ég og ég sem er bara unglingur sjálf - þýðir þetta að ég þurfi að fara að ákveða hvað ég ætla að verða þegar ég verð fullorðin??????

Finnst gaman að lesa það sem þú skrifar þó ég kommenti ekki oft - takk fyrir að blogga það stækkar heiminn minn!!!!

Knús af norðurlandinu, Valgerður Ósk

Valgerður Ósk (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 21:49

7 identicon

Efnileg er hún en reynslulítil en stundum er það kostur. En með Jóhönnu við hlið sér er allt hægt. Vonandi hefur það glatt þig jafn mikið að Liverpool vann Chelsea eins og að Frakka urðu heimsmeistarar. Dagurinn var bara fjandi góður.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 23:00

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Vonandi stendur Jóhanna sig vel, og stjórnin hennar líka.  Ég hef smá trú á þessari stjórn.   

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.2.2009 kl. 02:20

9 identicon

Ég hef gaman að ættfræðinni,Katrín J.er frænka Katrínar Thorodddsen sem var skörungur.Katrín Th. vildi að Íslendingar tækju á móti gyðingabörnum fyrir seinna stríð en var fálega tekið með þá ráðagerð. Það hefðu nokkur mannslíf bjargast ef hún hefði fengið stuðning.

Hörður H. (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 04:35

10 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Katrín er mjög efnileg en vantar kannski reynsluna.Jóhanna hefur góda reynslu og ætla ég ad vera jákvæd og stóla á hana.Ég vil óska tessu góda fólki velfarnadar í starfi.Tau eru  jú ad vinna fyrir okkur ekki satt?

Hjartanskvedjur til tín

Gudrún Hauksdótttir, 2.2.2009 kl. 08:19

11 identicon

Held að við sem þjóð megum óska okkur sjálfum til hamingju með nýja forsætisráðherrann.

Fyrst til að byrja með var ég ekki viss um Katrínu en hún vinnur á hratt og vel. Vonandi verður þessi stjórn okkar mesta gæfa. Reyndar er ég alls ekki VG manneskja og þoli ekki hina 3 aðilana en Jóhanna er sú sem ég treysti 100%

Kidda (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband