arg!
31.1.2009 | 18:09
Árans flensan er komin í mig nema þetta sé bara svartsýniskast vegna vantrúar minnar á framsóknarflokkinn ?
Það gæti alveg verið, ég treysti þeim flokki sko ekki í hvarf. Þeir geta sportað með nýjan formann og eitthvað slagorðadót en þeir voru í "sofandiríkisstjórninni" og það man ég alveg og er stólpamóðguð yfir tilætlunarsemi framsóknarmannanna , þeir ætlast til þess að við, kjósendur, munum þetta ekki !
Hér gengur vel með dýrasafnið.
Athugasemdir
Láttu þér batna fljótt og farðu vel með þig.
Jenný Anna Baldursdóttir, 31.1.2009 kl. 18:13
Farðu vel með þig, hér er flensa í gangi óska þér góðs bata. kv Álfhildur
Álfhildur (IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 19:16
Æj litli labbakúturinn Lappi! Sér hann sólina?
Rómeó góður og algjörlega öruggur
Hrönn Sigurðardóttir, 31.1.2009 kl. 19:19
Láttu þér batna. Ekki láta þér verða kalt. Og, það er skemmtilegra að heyra sögur af dýrunum, heldur en úr stjórnmálum eða af framsóknarflokknum.
Einar Indriðason, 31.1.2009 kl. 19:33
Hrönn : hann sá ekki sólina en hann finnur ylinn og vissi um köttinn líka hehehe..
Takk Jenný, Álfhildur og Einar, ég er alveg sammála þér
Ragnheiður , 31.1.2009 kl. 20:13
Láttu þér batna
Huld S. Ringsted, 31.1.2009 kl. 20:23
Batakveðjur inn í kvöldkyrrðina
Ía Jóhannsdóttir, 31.1.2009 kl. 21:21
bata kveðjur til þín .
Rómeó er búin að skoða garðinn hjá okkur, gengur meðfram skúrnum og húsinu - held bara að hann sé nokkuð ánægður með þetta
Sigrún Óskars, 31.1.2009 kl. 22:59
Hehe já hann gengur svona eins og húsvörður meðfram hjá okkur líka hehe..hann er ágætlega sáttur held ég við þessi vistaskipti. Oft vont fyrir svona fullorðna kisa að skipta um heimili en það truflar ekki þennan kisustrák.
Knús yfir
Ragnheiður , 31.1.2009 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.